Baby Fox Onesie |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð samfella fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með refamynstri, axlaböndum og vasa. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 36-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 3 lykkjur garðaprjón. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar prjónað er með 2 litum, prjónaðu með þráðum bæði innan úr og utan með dokkunni í litnum ljós perlugrár, þá sleppur þú við löng hopp með þráðinn á röngunni. Þ.e.a.s. prjónað er með 1 þræði í litnum ljós perlugrár, 1 þræði í litnum appelsína og 1 þræði í litnum ljós perlugrár. ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskiptin, þá verður að tvinna þræðina um hvorn annan. Breiða rúðan í kringum lykkjur á 2 fyrstu umferðum merkja hvar sauma á lykkjuspor fyrir nef á refnum. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 stykkjum fram og til baka áður en þau eru sett saman og prjónað er í hring á stuttan hringprjón. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og stykkin eru prjónuð til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Prjónaður er upp 1 kantur í kringum hvora skálm. Prjónaður er laus vasi með refamynstri sem saumaður er á í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp (8) 10-10-12-12 (14-14) lykkjur á hringprjón 3 með litnum appelsína Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (6) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (1) 1-2-2-2 (3-3) cm, fitjið upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls (5) 6-7-7-8 (8-9) sinnum í hvorri hlið, fitjið síðan upp (5) 5-5-6-7 (8-9) lykkjur í lok næstu 2 umferða = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp (8) 10-10-12-12 (14-14) lykkjur á hringprjón 3 með litnum appelsína Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, (6) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stykkið mælist (3) 4-5-6-7 (8-10) cm, fitjið upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 3 sinnum í hvorri hlið, síðan eru fitjaðar upp (9) 11-13-14-17 (18-21) lykkjur í lok næstu 2 umferða = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjurnar af framstykki og bakstykki á sama stutta hringprjón 3 = (76) 88-96-104-116 (124-136) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli stykkja. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist (9) 12-16-17-19 (21-23) cm frá prjónamerki, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 4 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki (= alls 8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur fyrir handveg hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 lykkjur færri í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = (32) 38-42-46-52 (56-62) lykkjur. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls (4) 4-6-6-7 (6-7) sinnum = (24) 30-30-34-38 (44-48) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (4) 5-5-6-7 (8-10) cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju mitt á stykki með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = (23) 29-29-33-37 (43-47) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist (5) 6-6-7-8 (9-11) cm frá skiptingu, fellið af fyrir 2 hnappagötum í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu. BAKSTYKKI: = (32) 38-42-46-52 (56-62) lykkjur. Stykkið er prjónað áfram fram og til baka með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = (24) 30-34-38-44 (48-54) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = (23) 29-33-37-43 (47-53) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (4) 5-5-6-7 (8-10) cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka með stroff þar til stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og prjónað er áfram frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum, 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd), fellið af næstu (5) 7-11-15-21 (25-31) lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum og endið með 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd). Prjónið fram og til baka með stroffprjóni og garðaprjóni yfir annað axlabandið, á meðan hitt hvílir á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 til 14 cm frá skiptingu, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar og fellið síðan af með sléttum lykkjum. Prjónið hitt axlabandið á sama hátt. VASI: Fitjið upp (33) 42-42-42-54 (54-54) lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós perlugrár Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 (= (31) 40-40-40-52 (52-52) lykkjur) og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Allt A.1 er prjónað með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Allt A.1 er prjónað með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru (21) 28-28-28-36 (36-36) lykkjur í umferð. Stykkið er nú prjónað til loka með litnum appelsína. Stykkið mælist ca (7) 10-10-10-12 (12-12) cm. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, en fækkið jafnframt um (0) 1-1-1-1 (1-1) lykkjur, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju garðaprjón = (21) 27-27-27-35 (35-35) lykkjur. Prjónið stroff í ca 2 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið 1 kant frá þar sem (3) 4-4-4-4 (4-4) lykkjur voru felldar af á vasa og upp að affellingarkanti þannig: Prjónið upp 18-28 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá réttu. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið * 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar kanturinn mælist ca 1 cm – sjá AFFELLING. Prjónið annan kant alveg eins í hinni hliðinni á vasanum. KANTUR Í KRINGUM SKÁLM: Prjónið upp frá réttu ca 40 til 74 lykkjur meðfram öðru opi á skálm á hringprjón 3 með litnum appelsína. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 og að kanturinn herði ekki á opinu á skálminni. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón) fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar kanturinn mælist 2-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Endurtakið meðfram hinni skálminni. FRÁGANGUR: Saumið saman opið á milli skálma. Saumið 1 tölu í hvort axlaband. Saumið augun á refnum á vasanum með 1 lykkjuspori með litnum dökk grár í hvorn reit með litnum ljós perlugrár – sjá hring í mynsturteikningu. Saumið nefið á refnum á vasanum með 1 lykkjuspori með litnum dökk grár í hverja af (3) 4-4-4-4 (4-4) lykkjum í 2. og 3. umferð neðst á vasa – sjá merkt með ferning í mynsturteikningu. Saumið við uppfitjunarkantinn á vasanum ca 2-4 cm upp frá þar sem síðustu lykkjur voru fitjaðar upp á framstykki, með lykkjuspori og saumið affellingarkantinn á vasanum við samfelluna, þannig að vasinn liggi flatur. Saumið hliðar á vasanum við samfelluna, upp að affellingarkanti á vasanum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Desiree Delsing wrote:
Hej! Stickar i storlek 1-3 månader. När jag har gjort bakstycket som framstycket och ska maska av till hals har jag precis som på framstycket 30 maskor. Ska då 11 maskor vara hängslen på varje sida och halsen 30 maskor blir detta 42 maskor. Alltså inte avmaskat som på framstycket. Frågan om det ska minskas som på framstycket är besvarad med ja och då förstår jag inte.
11.03.2020 - 21:10DROPS Design answered:
Hej Desiree, du har 42 maskor, stickar som framstycket till arb mäter 7 cm från delningen, nu börjar du sticka hängslen = 11 m, maskar av 20 maskor, sedan 11 m hängslen i andra sidan. Lycka till!
18.03.2020 - 15:00Lillian Norn wrote:
Hej. Jeg kunne ikke finde ud af om der skulle tages ind på rygstykket, som på forstykket. Der står at ryggen strikkes ligesom forstykket, men er det uden undtagninger og kun længden? Har strikket mange drops modeller uden problemer. Denne her drillede meget. Hilsen lillian
06.03.2020 - 08:06DROPS Design answered:
Hei Lillian. Bakstykket/ryggstykket strikkes som forstykket (det skal felles), men det felles ikke til knapphull på bakstykket/ryggstykket. Når arbeidet måler (6) 7-7-8-9 (10-12) cm fra delingen, felles det av masker til hals, og det strikkes seler videre fra retten. God Fornøyelse!
09.03.2020 - 10:35Carolyn wrote:
I have come to the point where I am binding off at the neck andworking the straps for size 6-9 months. The math doesn't work, I knit in the pattern the first 11 stitches then I am supposed to bind off 24 stitches and then work 11 stitches for the second strap. That totals 48 stitches and there are only 33 stitches on my needles before I start the neck and straps. What am I not understanding?
26.02.2020 - 04:06DROPS Design answered:
Dear Carolyn, in size 6/9 months you are supposed to have 46 sts on back piece, then you will work: 3 sts garter st, 4 sts in rib (K1, 1 st in garter st), 2 sts in garter st (= 11 sts), cast off 24 sts, 3 sts in garter st, 4 sts in rib (K1, 1 st in garter st), 2 sts in garter st (= 11 sts), so that there are 11 + 24 + 11 = 46 sts. Does it help? Happy knitting!
26.02.2020 - 09:55