DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 36-11
DROPS Design: Mynstur z-104-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Ca 27 cm (meðtalin eyru)

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 100, natur
50 g litur 2925, appelsína
50 g litur 9021, þoka
50 g litur 6309, turkos/grár
50 g litur 506, dökk grár – eða notið afganga fyrir augu, nef og munn.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju, byrjaðu því með þessari aðferð:
Haltu í þráðar endann með vinstri hönd og gerðu lykkju í kringum vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haltu í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sækja þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggðu þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragðu þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú fyrir aftan og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna á prjóninum, * stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláðu 1 nýjum uppslætti á prjóninn (aftan við og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu lykkjuna sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dregst saman og gatið hverfur.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðal, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjurnar í kaðli þar fækkað hefur verið um allar lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

REFUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað á sokkaprjóna. Fyrst er höfuðið prjónað fram og til baka frá nefi í tveimur stykkjum með útaukningum, stykkin eru síðan saumuð saman og prjónaður er afgangur af höfði að aftan í hring. Eyrun eru prjónuð í hring og saumuð við höfuðið. Búkurinn er prjónaður í hring, ofan frá og niður. Síðan eru hendurnar prjónaðar, fætur og skott fram og til baka, áður en saumað er saman og saumað við búkinn. Að lokum er peysan prjónuð – fram- og bakstykki er prjónað í hring og ermar og berustykki er prjónað fram og til baka. Slaufan er prjónuð fram og til baka.

HÖFUÐ:
Gerið GALDRAHRINGUR með litnum dökk grár Alpaca – sjá útskýringu að ofan = 7 lykkjur í umferð. Skiptið lykkjunum á 3 st sokkaprjóna 3 (prjónið með fjórða prjóninum) og prjónið í hring þannig:
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 14 lykkjur.
Skiptið stykkinu í tvennt og setjið 6 lykkjur á prjón fyrir hlutann í litnum appelsína og 8 lykkjur á prjón fyrir hlutann í litnum natur.
Nú er prjónað fram og til baka yfir 8 lykkjurr með litnum natur þannig:
ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan , * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón = 13 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 3-4: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 5: 3 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina = 18 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. UMFERÐ 7: 3 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina = 23 lykkjur.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 9: 3 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina = 28 lykkjur.
UMFERÐ 10: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 11: 1 kantlykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja garðaprjón = 35 lykkjur.
UMFERÐ 12: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 13: 1 kantlykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja garðaprjón = 42 lykkjur.
UMFERÐ 14: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Setjið lykkjurnar á þráð.
Nú er prjónað yfir 6 lykkjur í hluta í litnum appelsína þannig:
ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja garðaprjón = 8 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
UMFERÐ 3-6: Prjónið eins og umferð 1-2 = 12 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 14 umferðir í litnum appelsína.
Saumið saman hlutann í litnum natur og appelsína innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvoru stykki með litnum natur. Passið uppá að lykkjur sem eru saumaðar innan við (þ.e.a.s. þessar 4 kantlykkjur) festist vel. Þær eru ekki lengur með í lykkjufjöldanum.
Nú er prjónað áfram með litnum appelsína þannig: Prjónið yfir 10 lykkjur með litnum appelsína, síðan eru 40 lykkjurnar prjónaðar með litnum natur inn á prjóninn = 50 lykkjur.
UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt = 63 lykkjur.
UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 5: * Prjónið 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= 9 lykkjur færri) = 54 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * Prjónið 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= 9 lykkjur færri) = 45 lykkjur.
UMFERÐ 8: Prjónið slétt.
Haldið svona áfram með úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með úrtöku er prjónuð 1 lykkja færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 9 lykkjur færri í hverri umferð) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru á prjóni (án þess að draga þær saman).
Saumið út augu, munn og nef með litnum dökk grár, fyllið höfuðið með vatti, herðið lykkjurnar að og festið enda (= mitt aftan á höfði).

EYRA:
Fitjið upp 16 lykkjur með litnum appelsína og skiptið lykkjunum á 2 st sokkaprjóna (prjónið með þriðja prjóninum).
UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 12 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: * Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 8 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 4 lykkjur.
Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.
Samið saman neðst með nokkrum sporum og saumið eyrað niður á höfuðið. Prjónið annað eyra á sama hátt og saumið á.

BÚKUR:
Fitjið upp 16 lykkjur með litnum appelsína – skiptið lykkjunum á 4 st sokkaprjóna (prjónið með fimmta prjóninum).
UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 5: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 36 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 48 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5½ cm. Skiptið yfir í litinn turkos/grár og prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Síðan eru prjónaðar 8 umferðir sléttprjón.
Fækkið síðan lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: * 6 lykkjur, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 42 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 36 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Haldið áfram með úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með úrtöku er prjónuð 1 lykkja færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 6 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku) þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar á prjóninum (án þess að draga saman). Fyllið búkinn með vatti, herðið lykkjurnar að og festið vel. Saumið höfuðið við búkinn – hlutinn í litnum turkos/grár á að snúa niður (= buxur).

FÓTUR:
Fitjið upp 18 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum appelsína. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið fram og til baka í 3 cm. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5 lykkjur slétt, prjónið 6 næstu lykkjur slétt saman 2 og 2, 5 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón = 15 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, 5 lykkjur brugðið, fellið af næstu 3 lykkjur, 5 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja garðaprjón = 6 lykkjur eftir í hvorri hlið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 fyrstu lykkjur í umferð og síðan 6 næstu lykkjur í umferð (þessar 3 lykkjur færri mynda nú gat mitt í stykki).
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið yfir 12 lykkjur, þar til fóturinn mælist ca 8 cm.
Skiptið yfir í litinn turkos/grár, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ1 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju slétt = 23 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 3: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju slétt = 34 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til fóturinn mælist ca 11 cm, fellið af.
Saumið saman opið mitt á fæti. Saumið fótinn saman mitt undir og haldið áfram upp meðfram miðju að aftan – saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Fyllið fótinn með vatti. Þræðið þráð upp og niður í gegnum affellingarkantinn efst á fæti. Herðið síðan að þannig að fóturinn verði aðeins bústinn.
Prjónið hinn fótinn á sama hátt. Saumið báða fæturna á búkinn.

SKOTT:
Fitjið upp 10 lykkjur með litnum appeslína á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
UMFERÐ 7: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón = 14 lykkjur.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 9: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón = 18 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka þar til skottið mælist 4½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu:
Prjónið nú mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjurnar, 1 kantlykkja garðaprjón.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með litnum natur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 4 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, setjið eitt prjónamerki hér, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, 1 kantlykkja garðaprjón. Nú eru 3 prjónamerki í stykkinu og það hafa verið auknar út 3 lykkjur og fækkað um 3 lykkjur í umferð = 18 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu eru prjónaðar 2 síðustu lykkjurnar á undan hvoru prjónamerki slétt saman (= 1 lykkja færri) alls 3 sinnum = 9 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið síðustu umferðina þannig: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja slétt = 5 lykkjur. Klippið frá, en skiljið eftir smá enda til að saum saman það sem er með litnum natur lit á skotti. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að, saumið síðan skottið innan við 1 kantlykkju garðaprjón upp að skiptingunni með litnum appelsína, fyllið skottið með vatti og saumið síðan með litnum appelsína þar til allt skottið hefur verið saumað saman. Festið skottið ca mitt í svæðið með litnum þoka/grár aftan á refnum.

HENDI:
Fitjið upp 10 lykkjur með litnum appelsína á sokkaprjóna 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til ermin mælist 11½ cm.
Klippið frá (haldið eftir smá enda sem dugar til að sauma ermina saman með), þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar á prjóninum (= neðst á hönd), herðið að og saumið síðan innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Fyllið höndina með vatti og saumið niður efst á búk, innan við háls (undir höfði).
Prjónið hina hendina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið.

PEYSA:
Fyrst er prjónað fram- og bakstykki í hring á sokkaprjóna upp að handveg.
Síðan eru ermar prjónaðar fram og til baka á sokkaprjóna upp að handveg.
Síðan eru ermar settar inn á sama prjón og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, þannig að það myndist smá op aftan á peysu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum þoka. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir með stroffi, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (mitt á milli 2 lykkjur slétt = í hlið á fram- og bakstykki og þetta er núna byrjun á umferð). Prjónið mynstur þannig: * 3 lykkjur slétt, A.2 (= 30 lykkjur), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Haldið áfram hringinn svona þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að endað sé eftir 1. umferð í A.2. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið næstu 32 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 4 lykkjur, prjónið næstu 32 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af síðustu 2 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 22 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum þoka og skiljið eftir smá enda ca 15 cm til að sauma saum undir ermum með (þetta er gert í lokin).
Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 5 cm, fellið lykkjur af þannig: Fellið af fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 16 lykkjur, fellið af síðustu 3 lykkjur. Klippið frá og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama prjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 96 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Byrjið umferð mitt að aftan, þ.e.a.s. mitt á milli miðju 2 lykkja brugðið í A.2. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið mynstur á bakstykki og framstykki eins og áður (en prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í stað brugðnar lykkjur yfir fyrstu og síðustu lykkjuna í umferð = að miðju að aftan), prjónið sléttprjón á ermum, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4 sinnum = 64 lykkjur.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 52 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð til baka í mynstri.
UMFERÐ 3: Prjónið alveg eins og 1. umferð (= 12 lykkjur færri) = 40 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 umferð slétt, í lok umferðar eru fitjaðar upp 15 lykkjur.
UMFERÐ 5: Fellið af fyrstu 15 lykkjurnar með brugðnum lykkjum (frá réttu), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 40 lykkjur, fitjið upp 15 nýjar lykkjur í lok umferðar.
UMFERÐ 6: Fellið af fyrstu 15 lykkjur með sléttum lykkjum (frá röngu), fellið síðan af þær 40 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum (frá röngu). Klippið frá. Saumið saum undir ermum og festið alla enda.

SLAUFA:
Fitjið upp 5 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum turkos/grár. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm, fellið af. Saumið skammhliðarnar saman í ystu lykkjubogana þannig að stykkið myndi hring. Klippið þráðinn og festið enda. Takið nýjan þráð, vefjið honum utan um nokkrum sinnum í kringum miðju á slaufu. Saumið slaufuna í hálsmálið á peysunni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja með natur
symbols = slétt lykkja með appelsína
symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Else Karin Hatlevik wrote:

Jeg trenger hjelp til hvordan det blir hull i arbeidet på benet. Litt rart forklart.

26.06.2023 - 22:49

country flag Maija Heikkinen wrote:

Miten puserossa voi ottaa kaikki silmukat samalle puikolle tehtäessä kaarroketta, kun etu-ja takakappaleet on kuitenkin neulottu suljettuna neuleena,

08.05.2021 - 15:35

DROPS Design answered:

Hei, tämä onnistuu, koska kainaloiden kohdalta on päätetty silmukoita. Ensimmäiset kerrokset voivat kuitenkin olla hieman hankalia neuloa.

19.05.2021 - 17:31

country flag Rebecka wrote:

Hej! Se min fråga 9/4 och Drops svar 26/4. Min ursprungliga fråga gäller EFTER varv 14 när man sytt ihop. Då ska natur och orange del på huvudet stickas runt - men rent tekniskt blir det ju då inget fäste i färgbytet, eftersom det sker på samma ställe varje gång? Finns alternativ att sticka natur och orange fortsatt för sig själva och sedan sy ihop med kantmaska, liksom första delen efter nosen i grått?

27.04.2021 - 09:38

country flag Rebecka wrote:

Hej! När man sytt nosen och ska övergå i rundstickning resten av huvudet - hur får man gränsen mellan natur och orange att sitta ihop när man byter färg på garnet efter hälften, då blir det ju inte ihopstickat i gränsen? Finns ett rakt alternativ där man stickar vardera färg för sig och sedan syr ihop huvudet? MVH

09.04.2021 - 11:14

DROPS Design answered:

Hei Rebecka. Man strikker dele hver for seg, bortsett fra 1. omgang /snuten i farge grå. Når du har strikket 1. omgang av snuten, deles arbeidet slik at du strikker 1 del i natur for seg selv og 1 del i orangemelert for seg selv. Så når 1.-14. pinne i natur er ferdigstrikket og 1.-14. pinne i orangemelert er ferdig skal disse delene sys sammen innenfor 1 kantmaske rille på hver del med natur. Pass på at maskene det blir sydd innenfor (dvs, de 4 kantmaskene) blir festet godt. mvh DROPS design

26.04.2021 - 10:45

country flag Kerstin Lademann wrote:

Hallo, wie bekommt man den Farbwechsel beim Stricken des Kopfes in Runden hin, also wie führt man den zweiten Faden mit? Vielen Dank für die Hilfe!

11.02.2021 - 20:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lademan, es wird nicht in Runden mit 2 Farben gestrickt: nach der 1. Runde stricken Sie mit natur über nur 8 Maschen (bis 14. Runde), dann stricken Sie die 6 Maschen mit orange über 14 Maschen, dann stricken Sie alle Maschen in der Runde - später nähen Sie beide Teile zusammen. Viel Spaß beim stricken!

12.02.2021 - 07:47

country flag Sigrid wrote:

Er der en fejl i snoningsdiagrammet og forklaringen? Jeg kan ikke få det til at passe. Maskerne skal vel ikke på snoningspinden foran i begge sider?

19.09.2020 - 22:36

DROPS Design answered:

Hei Sigrid. Ja, her var det en feil i den danske oversettelsen. Skal være bak på det siste ikonet. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette, vi vil ordne det med engang. mvh DROPS design

21.09.2020 - 13:40

country flag Frances Jones wrote:

Please can you make a you tube video of this fox being made, to go along with the written pattern? Thanks

18.08.2020 - 22:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jones, we have added your wish on our todolist - a whole video for the entire fox might be way too long but we'll do our possible. Thank you!

20.08.2020 - 09:44

country flag Beth Dacchille wrote:

Cast on 72 stitches with double-pointed needles size 3 mm and fog - what does fog mean the instructions? I am unfamiliar with this abbreviation. Thanks in advance. Beth

13.07.2020 - 09:29

DROPS Design answered:

Dear Beth, "fog" is the colour DROPS Alpaca (= color Nr 9021) listed under Materials. Happy knitting!

13.07.2020 - 10:04

country flag Barbara wrote:

Wie "fixiere" ich denn die krausen Randmaschen für die Schnauze? Ich verstehe nicht, wie die letzte Endmasche sich nicht auftrennen soll. Bitte bitte Hilfe!

27.06.2020 - 00:29

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, dieses Video zeigt, wie man eine unsichtbare Naht arbeitet, damit können Sie die beiden Teilen vom Kopf zusammennähen, damit die Randmaschen nicht mehr sichtbar sind. Viel Spaß beim stricken!

29.06.2020 - 07:39