Sunset Hug |
|
|
|
Prjónað sjal í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Delight og DROPS Alpaca.
DROPS 211-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓNS LYKKJA: Klukkuprjóns lykkja er lykkja (sem hefur verið lyft af prjóni) með tilheyrandi uppslætti sem lykkjan er prjónuð saman við (í næstu umferð) – uppslátturinn er þar af leiðandi ekki talinn sem eigin lykkja. ATH! Í umferð með útaukningu, er ekki neinn uppsláttur um lykkjurnar sem hafa verið auknar út. Það þýðir að þessar lykkjur eru prjónaðar stakar – án uppsláttar. AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa þeim af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa þeim af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). AUKIÐ ÚT 4 LYKKJUR: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa þeim af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður. Prjónað er til skiptist með Delight og Alpaca. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4 með Alpaca og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 4 LYKKJUR í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan (= miðjulykkjan, setjið gjarna eitt prjónamerki í þessa lykkju og látið það fylgja með í stykkinu. Þannig er auðveldara að sjá hvar auka á út), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 8 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Skiptið yfir í Delight. Sjá KLUKKUPRJÓNS LYKKJA í útskýringu að ofan. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, aukið út 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, aukið út 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 4 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá röngu. UMFERÐ 5 (= ranga): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= rétta): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 kantlykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju og prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 4 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 8 (= ranga): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu umferð. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 4 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá röngu. UMFERÐ 9 (= ranga): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 kantlykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 10 (= rétta): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjónslykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 4 LYKKJUR í næstu lykkju (= miðjulykkja), prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 8 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu. UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 12 (= frá röngu): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÖNGU í næstu umferð. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 4 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá röngu. UMFERÐ 13 (= ranga): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 14 (= rétta): Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju slétt, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 4 LYKKJUR í næstu lykkju (= miðjulykkja), prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR FRÁ RÉTTU í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt (= alls 8 lykkjur fleiri). Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu. UMFERÐ 15 (= rétta): Skiptið yfir í Delight. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4-15 þar til stykkið mælist ca 56 cm mælt meðfram miðjulykkju. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja (þá verður 1 lykkja + 1 lykkja með uppslætti að 3 lykkjum þegar fellt er af). Ef kanturinn er enn stífur, þá er hægt að nota grófari prjón til að fella af með. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Maria wrote:
Vacker 😍
29.12.2019 - 18:01Carmen wrote:
Genial, para combinar con todo por el combinado de colores...muy ponible, me encanta!!!
20.12.2019 - 10:01Claudia wrote:
Fresco e moderno
10.12.2019 - 21:08