Follow the Fjord |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með útaukningu á öxl fyrir axlarsæti úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-21 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 12 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið fram að prjónamerki, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón, þannig að vinstri hliðin á hlekknum komi að réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt (hlekkurinn verður nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjan snýr til hægri), færið nú prjónamerkið á hægri prjón. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið fram að prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón, þannig að hægri hliðin á hlekknum komi að réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt í aftari lykkjubogann (hlekkurinn verður nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjurnar snúi til vinstri). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokinn. Á berustykki eru auknar út lykkjur fyrir öxl/framstykki/bakstykki, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-104-104-112-120-128 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff hringinn í 8½ cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. mitt að aftan). Látið prjónamerkið sitja í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru lykkjur auknar út, mynstur er prjónað og það eru sett 4 prjónamerki (prjónamerkin eru sett á milli lykkja), þannig: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) yfir 16-20-20-20-20-24 lykkjur (= 4-5-5-5-5-6 sinnum á breiddina = ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, prjónið 12-12-12-12-16-16 lykkjur á meðan aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, setjið 2. prjónamerki (= axlarlykkjur), A.1 yfir næstu 36-40-40-44-44-48 lykkjur (= 9-10-10-11-11-12 sinnum á breiddina = framstykki), setjið 3. prjónamerki, prjónið 12-12-12-12-16-16 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki (= axlarlykkjur) og A.1 yfir síðustu 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd = ca hálft bakstykki) = 104-112-120-128-136-144 lykkjur. ÚTAUKNING Á ÖXLUM: Prjónið sléttprjón yfir axlarlykkjur og mynstur A.1 yfir lykkjur á framstykki/bakstykki. Í næstu umferð er aukið út yfir öxl þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. fjöldi axlarlykkja verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Mynstur A.1 er endurtekið á hæðina. Aukið svona út í hverri umferð alls 20-20-24-24-28-28 sinnum = 184-192-216-224-248-256 lykkjur. Stykkið mælist ca 8-8-9-9-11-11 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚTAUKNING Á ERMUM: Nú er aukið út fyrir ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út í axlarlykkjur. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 14-11-13-12-12-14 sinnum = 240-236-268-272-296-312 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-16-19-18-20-22 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 19-17-19-19-20-22 cm. Aukið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur á framstykki/bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 og útauknar lykkjur á ermi eru prjónaðar í sléttprjóni (þ.e.a.s. lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og 3. og 4. prjónamerkis). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-12-12-16-16-16 sinnum = 304-332-364-400-424-440 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 25-26-28-30-32-34 cm frá kanti í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 44-52-56-60-64-68 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 60-62-70-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-12 lykkjur undir ermi, prjónið 92-104-112-124-132-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-62-70-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 48-52-56-64-68-68 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-224-240-264-280-296 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 eins og áður og sléttprjón yfir 8-8-8-8-8-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Þ.e.a.s. mynstur A.1 er endurtekið 23-26-28-31-33-34 sinnum á breidd bæði á framstykki og bakstykki. Þegar fram- og bakstykki mælist 22-23-23-23-23-23 cm, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir gatamynstur, yfir 8-8-8-8-8-12 sléttar lykkjur undir hvorri ermi er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið. Þ.e.a.s. prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 60-62-70-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-8-8-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-70-78-84-88-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 6-5-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-5-8-10-11-14 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-32-31-30-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-16-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður að röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (44)
TAN wrote:
Follow the Fjord pas de diagramme dans l explication merci
06.05.2024 - 05:13DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tan, vous trouverez le diagramme A.1 à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!
06.05.2024 - 09:25Bernet wrote:
Je trouve ce modèle très joli mais du fait que le col est haut et que le devant est pareil que le dos ,quand je mets le pull ça fait une bosse devant juste en dessous du col J’ai démonter le col et en refaire un que j ai recousu sur l’encolure
13.03.2024 - 09:07Patricia Ribeiro wrote:
Je tricote le modèle 215-21. Je viens de terminer le col : 104 mailles taille M. J’ai un problème pour réaliser l’empiècement. En effet sur le patron, il est indiqué : tricoter A1 = 4 mailles augmentations 1/2 dos ; toujours A1 augmenter 4 mailles épaule gauche ; idem 8 mailles devant ; à nouveau 4 mailles épaules droite et 4 mailles pour le second 1/2 dos soit au total 24 augmentations. 104 mailles du col + 24 augmentations = 128 mailles correspondant à la taille XL.
04.02.2024 - 21:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ribeiro, tricotez ainsi: 20 m de A.1 pour le demi-dos + (12+4) m pour la manche + 40 m de A.1 pour le devant + (12+4) pour la manche + 20 m de A.1 pour le demi-dos soit: 20+16+40+16+20=112 m (vous aviez 104 m et avez augmenté 2 x 4 m, soit 104 + 8 = 112). Bon tricot!
05.02.2024 - 09:37Lia De Wind wrote:
Een vraag over de stekenverhouding: Van welke naald gaan jullie uit. Dit staat er namelijk niet bij Vriendelijke groet
01.04.2023 - 19:19DROPS Design answered:
Dag Lia,
Het proeflapje wordt met naald 4,5 gebreid of de dikste naald. Naald 3,5 is alleen voor de boorden.
05.04.2023 - 10:22Maja wrote:
I’ve really enjoyed knitting this sweater, but I don’t really like that the sleeves end up really wide at the bottom. Could you suggest an interval for further decreases to make the sleeves a bit more tapered, please? Any help would be greatly appreciated. Thank you
21.02.2023 - 22:21DROPS Design answered:
Dear Maja, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, maybe you can calculate your own decreases following your own measurements. Feel free to contact your DROPS store for any individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
22.02.2023 - 08:40Ragnhild Brudevik wrote:
Strikker str M Antall under «Bærestykke» er feil. Ved setting av merker har vi 20+12+40+12+20=104(ikke 112) Etter økning +4x20=80 har vi da 104+80=184(ikke 192) Hva er riktig??
04.11.2022 - 13:17Inge Andersen wrote:
Det ser ud til at diagrammet er faldet ud af opskriften, jeg kan ikke finde det. Er der ikke en tekstforklaring til mønsteret?
17.10.2022 - 22:16DROPS Design answered:
Hei Inge. Diagram A.1 finner du ved siden av målskissen (under ermet, lite diagram). mbh DROPS Design
24.10.2022 - 14:31Christy wrote:
It might be helpful if the questions and answers were translated into English (and those in English translated into German or French). That would make them accessible to more of your fans. Thank you for your consideration.
07.03.2022 - 06:44Cath wrote:
Il semble manquer le diagramme du point fantaisie est-il possible de l’obtenir ?
14.01.2022 - 09:28DROPS Design answered:
Bonjour Cath, vous trouverez le diagramme du point fantaisie (A.1) à droite du schéma des mesures (sous la manche). Bon tricot!
14.01.2022 - 16:32Kirsten wrote:
Hej Drops-team. Når man tager ud til for-og bagstykke, så tager man 2 masker ud (1 efter og 1 før mærket). Når jeg kommer rundt til samme sted på næste pind, så har jeg øget maskeantallet med 2, men mønsteret strækker sig over 4 masker. Hvordan skal de sidste to masker strikkes? Hvis jeg starter med mønsteret straks efter den nye udtagning, så "mangler" jeg to masker til sidst (f.eks. der, hvor man skal strikke første maske vrang og derefter to masker ret sammen).
03.12.2021 - 11:52DROPS Design answered:
Hej Kirsten, du strikker de nye masker ind i mønsteret, men først når du har 2 m glatstrik efter hinanden, kan de strikkes sammen ifølge diagrammet. God fornøjelse!
03.12.2021 - 15:42