Lillesand |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 - 12 ára.
DROPS Children 37-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 83 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (10 kantlykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,56 lykkjur. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá röngu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (rétta), prjónið uppsláttinn snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsi (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir næstu 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með ca 6-6½-7½-7-7½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Kantlykkjur að framan eru settar á þráð og afgangur af berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 83-85-87-89-91-93 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með ryð. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 99-101-103-107-109-111 lykkjur. Setjið nú ystu 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á 1 þráð (= kantlykkjur að framan) og fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið í 2 næstu umferðum þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið og prjónið sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir í hinni hliðinni, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið = 91-93-95-99-101-103 lykkjur – kantar að framan eru prjónaðir síðar og saumaðir niður við framstykki innan við 1 kantlykkju þegar flíkin hefur verið prjónuð til loka. Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið 0-0-2-4-6-8 umferðir sléttprjón fram og til baka með ryð og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Kantlykkjurnar eru síðan prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkjan í mynstri. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 44-45-46-48-49-50 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi aldveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 107-111-115-119-123-127 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-28-29-30-31 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út 40-36-44-40-48-44 lykkjur jafnt yfir = 147-147-159-159-171-171 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-3: Aukið út 36-44-40-48-44-52 lykkjur jafnt yfir = 183-191-199-207-215-223 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum, en passið uppá að A.2 er núna 5 lykkjur). Ör-4: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 207-219-231-243-255-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-5: Áður en þessi umferð er prjónuð geymið þá stykkið aðeins á prjóni og prjónið kanta að framan. Setjið 5 kantlykkjur að framan af þræði á vinstra framstykki á prjón 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka með ryð í ca 13-13-14-15-15-16 cm – leggið kantinn að framan meðfram miðju að framan og athugið málið, strekkið aðeins á kanti að framan (endið eftir umferð slétt frá röngu). Setjið lykkjur á 1 þráð. Prjónið hægri kant að framan alveg eins, en munið eftir hnappagat í hægri kanti að framan. Prjónið síðan frá réttu í umferð merktri með ör 5 í A.1 þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni, fækkið um 1 kantlykkju við miðju að framan, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 205-217-229-241-253-265 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, fækkið um 1 kantlykkju og prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni = 219-231-243-251-263-275 lykkjur. Ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið að réttu máli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-37-39-41-43-45 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-37-39-41-43-45 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 143-151-159-171-179-187 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 38-40-42-45-47-49 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 67-71-75-81-85-89 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-5-6-6-7-8 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 155-163-171-183-191-199 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykki mælist 16-20-23-25-28-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-50-54-58-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1= 201-211-221-237-249-259 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ryð. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið fallega niður kanta að framan innan við 1 kantlykkju á berustykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Nicole Curry wrote:
Where can I find the pattern for the matching hats with the Icelandic sweater patterns for children
04.09.2020 - 19:48DROPS Design answered:
Dear Mrs Curry, you will find the Lillesand Hat pattern here. Happy knitting!
07.09.2020 - 08:14Lizet Weber wrote:
Hvor er mønsteret henne til denne trøje
03.09.2020 - 22:37DROPS Design answered:
Hej Lizet, nu er det sidste også lagt ud. Tak for info og god fornøjelse!
04.09.2020 - 11:33