DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lillesand

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 - 12 ára.

DROPS Children 37-6
DROPS Design: Mynstur me-063-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-400 g litur 42, ryð
50-50-50-50-50-100 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 503: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 83 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (10 kantlykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,56 lykkjur.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá röngu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (rétta), prjónið uppsláttinn snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsi (þegar flíkin er mátuð).
Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir næstu 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með ca 6-6½-7½-7-7½-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Kantlykkjur að framan eru settar á þráð og afgangur af berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 83-85-87-89-91-93 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með ryð.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 99-101-103-107-109-111 lykkjur.
Setjið nú ystu 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á 1 þráð (= kantlykkjur að framan) og fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið í 2 næstu umferðum þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið og prjónið sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir í hinni hliðinni, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið = 91-93-95-99-101-103 lykkjur – kantar að framan eru prjónaðir síðar og saumaðir niður við framstykki innan við 1 kantlykkju þegar flíkin hefur verið prjónuð til loka.
Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið 0-0-2-4-6-8 umferðir sléttprjón fram og til baka með ryð og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Kantlykkjurnar eru síðan prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkjan í mynstri.
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 44-45-46-48-49-50 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi aldveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1:
Ör-1: Aukið út 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 107-111-115-119-123-127 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-28-29-30-31 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 40-36-44-40-48-44 lykkjur jafnt yfir = 147-147-159-159-171-171 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 36-44-40-48-44-52 lykkjur jafnt yfir = 183-191-199-207-215-223 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum, en passið uppá að A.2 er núna 5 lykkjur).
Ör-4: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 207-219-231-243-255-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum).
Ör-5:
Áður en þessi umferð er prjónuð geymið þá stykkið aðeins á prjóni og prjónið kanta að framan.
Setjið 5 kantlykkjur að framan af þræði á vinstra framstykki á prjón 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka með ryð í ca 13-13-14-15-15-16 cm – leggið kantinn að framan meðfram miðju að framan og athugið málið, strekkið aðeins á kanti að framan (endið eftir umferð slétt frá röngu). Setjið lykkjur á 1 þráð.
Prjónið hægri kant að framan alveg eins, en munið eftir hnappagat í hægri kanti að framan.
Prjónið síðan frá réttu í umferð merktri með ör 5 í A.1 þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni, fækkið um 1 kantlykkju við miðju að framan, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 205-217-229-241-253-265 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, fækkið um 1 kantlykkju og prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni = 219-231-243-251-263-275 lykkjur.
Ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið að réttu máli.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-37-39-41-43-45 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-37-39-41-43-45 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 143-151-159-171-179-187 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki 38-40-42-45-47-49 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 67-71-75-81-85-89 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 4-5-6-6-7-8 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 155-163-171-183-191-199 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykki mælist 16-20-23-25-28-31 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-50-54-58-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1= 201-211-221-237-249-259 lykkjur.
ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjóna 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ryð.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 38-40-40-42-42-44 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið fallega niður kanta að framan innan við 1 kantlykkju á berustykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ryð
symbols = natur
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Linda Raddstad wrote:

Jeg forstår ikke oppskriften på Lillesand jakken der det står strikk A1 til det gjenstår 2 masker på pinnen(=44 45 46 48 49 50 rapporter a 2 masker).Så strikke A2.Får ikke det til å stemne med mønsteret.

23.08.2023 - 08:08

DROPS Design answered:

Hei Linda. Se vårt svar til deg på ditt forrige spørsmål. mvh DROPS Design

28.08.2023 - 11:47

country flag Linda Raddstad wrote:

Jeg forstår ikke oppskriften på Lillesand jakken der det står strikk A1 til det gjenstår 2 masker på pinnen(=44 45 46 48 49 50 rapporter a 2 masker).Så strikke A2.Får ikke det til å stemne med mønsteret.Håper på svar

23.08.2023 - 08:07

DROPS Design answered:

Hei Linda. Etter halskanten skal det nå strikkes bærestykket. Strikk 1 kantmaske, deretter strikkes A.1 til det gjenstår 2 masker, strikk A.2 og avslutt med 1 kantmaske i riller. Ved at du strikker A.2 (A.2 består av 1 maske), vil mønsteret starter og slutter likt i hver side mot midt foran. Eller er det noe annet du ikke får til å stemme? Husk å oppgi hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design

28.08.2023 - 11:47

country flag Roz wrote:

Work on the Lillesand pattern and have done the yoke and band to the point where I am to start Arrow 5 . My question is that I completed the band to this point using size 3 mm needles. How I want to join the body. I work the band at the same time. My question is for the yoke and body you use 4 mm needles….do I use the 4mm needles for the band as well since the body and band are now worked together?

25.06.2023 - 20:09

DROPS Design answered:

Hi Roz, Yes, the bands are also worked with size 4 mm needles, which is in fact the case for the bands after the neck as well. If there is a notable difference on the bands after changing needles, it might be an idea to unpick back to the neck but hopefully it will be ok. Happy knitting!

26.06.2023 - 06:52

country flag Roz wrote:

I am working on the yoke and starting the pattern. The first row of pattern (A1 &A2) would it be done as a straight dark color? 2nd row 1 dark, 1 light, 2 dark, 1 light, 2 dark,repeat.. when I look at the photo the first row of pattern looks like it has a light color between the dark? The instructions are confusing as it states work A1 until 2 sts are left (46 repeats) of 2 sts work A2. This is confusing as A1 & A2 are one color so the row would be all dark??

11.06.2023 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Roz, when working the diagrams you will repeat A.1 in width until 2 stitches remain at the end of the row, then work the stitch in A.2 (so that the pattern will be symmetrical on each side), and end with 1 stitch garter stitch; from WS work A.2 then repeat A.1 - ie A.2 will always be worked only one time: at the end of the right side rows and at the beginning of the wrong side rows. Happy knitting!

12.06.2023 - 08:46

country flag Josie wrote:

Bonjour, ce modèle est vraiment magnifique ! Puis Je l'adapter pour un petit garçon à qui je voudrais l'offrir ? Et si oui, les boutonnieres changent elles de côté ou est-ce que ce n'est pas important en 2 ans ? Merci pour votre travail, j'apprécie beaucoup votre aide. Je fais le pull siberia à mon mari en soft tweed.

06.10.2022 - 10:20

DROPS Design answered:

Bonjour Josie, vous pouvez tout à fait le tricoter pour un garçon, ce modèle commence en 2 ans justement. Pour les boutonnières, à vous de choisir de quel côté vous préférez les mettre pour le garçon. Bon tricot!

06.10.2022 - 11:28

country flag Ania wrote:

Zaczynamy w końcu od karczku czy wykończenia dekoltu? Z opisu wynika ,że z od wykończenia. Natomiast jak już mamy narzucone oczka jesteśmy na prawej stronie z automatu, tak więc jak zrobić 1szy rząd na lewej stronie czy o co dokładnie z tym chodzi? Jestem początkująca i dla mnie to nie jest jasne niestety.

09.05.2022 - 02:45

DROPS Design answered:

Witaj Aniu,zaczynamy od wykończenia dekoltu. Najpierw narzucasz oczka, następnie 1-szy rząd przerabiasz na lewej stronie robótki (to jest oczywiście umowne). Żeby się nie pogubić, zawsze wkładam marker na prawej stronie robótki. Powodzenia. Nie wahaj się pisać, gdy będziesz miała problemy. Zaglądaj też do instrukcji video. Pozdrawiamy!

09.05.2022 - 10:05

country flag Nicole Studer wrote:

Guten Abend:) Ich bin neu hier und das ist meine erste Jacke. Ich würde gerne das Garn für die Lillesand Jacke bestellen. Die Größe wäre 92. Wieviel Garn bräuchte ich dann? Vielen Dank und Mit freundlichen Grüßen Nicole Studer

08.05.2022 - 19:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Studer, die Garnmenge finden Sie immer unter den Kopfzeilen, Größe 92 ist die 1. Größe hier, so brauchen Sie: 250 g DROPS Merino Extra Fine/50 g das Knäuel = 5 Knäuel in Farbe rost + 1 Knäuel in Farbe Natur. Viel Spaß beim stricken!

09.05.2022 - 08:37

country flag Margret Koch wrote:

Hallo ! Der Mustersatz für die Kinderjacke Lillesand enthält teilweise Einzelreihen für eine Farbe. Da ich die andere Farbe dann nicht mitführe, müsste ich den Faden abschneiden, um ihn von der anderen Seite weiterstricken zu können. Das würde aber dazu führen, dass viel vernäht werden müsste. Oder gibt es eine andere Lösung, eventuell mit mehreren Knäueln derselben Farbe? Danke für Ihre Antwort, Margret

30.11.2021 - 23:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Koch, in solchen Fällen können Sie diese beiden Reihen z.B. auf der gleichen "Seite" stricken, dh: die 3. Reihe ist eine Hinreihe mit zeder, die 4. Reihe sollen Sie mit natur stricken aber da der Faden auf der anderen Seite ist, stricken Sie dann die 4. Reihe wie eine Hinreihe aber dieses Mal mit natur (= 1 Hinreihe mit zeder, 1 Hinreihe mit natur) - und wenn sowas nicht möglich ist, dann können Sie den Faden abschneiden. Noch eine Möglichkeite: mit Steek-Maschen stricken (siehe Video. Viel Spaß beim stricken!

01.12.2021 - 07:32

country flag MC wrote:

Bonjour, Je suis arrivée au niveau AUGMENTATION 1 Flèche 1. Une fois les augmentations faites, je dois avoir 115 mailles, (en 5/6 ans), les mailles lisières sont-elles comprises dans ce chiffre ? Merci

15.11.2021 - 07:54

DROPS Design answered:

Bonjour MC, tout à fait, vous aviez 95 mailles (y compris les mailles lisières), vous augmentez 20 mailles = vous avez 115 mailles au total. Bon tricot!

15.11.2021 - 08:42

country flag Maria Andersson wrote:

Halskant: lägg upp 85 maskor (strl3/4) inklusive 5 framkantsmaskor. Betyder det 85+5+5 plus ytterligare 1 kantmaska på var sida?

11.11.2021 - 17:03

DROPS Design answered:

Hej Maria. Du lägger upp totalt 85 m (av dessa 85 är 5 maskor på varje sida framkantsmaskor). Mvh DROPS Design

12.11.2021 - 07:59