DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cool Cables Set

Prjónuð peysa, hálsskjól með axlarsæti og vettlingar úr DROPS Merino Extra Fine. Allt settið er prjónað með köðlum með köntum í stroffprjóni.

DROPS 214-25
DROPS Design: Mynstur me-209
Garnfokkur B

-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M – M/L

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500 g litur 13, gallabuxnablár

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3. Lengd 40 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Lengd frá öxl: Ca 36-38 cm.
Breidd: Ca 36-40 cm.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300 g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5. Lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Lengd: Ca 30-32 cm. Ummál: Ca 18-19 cm.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3, A.4 og A.5.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.6, A.7 og A.8.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir eftir 4. og 5. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukning fyrir axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir þumal):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um efst á vettlingum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 108-108 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14-18 cm.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-132 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6 mynsturteikningar með 22 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina í báðum stærðum, prjónið A.2 hringinn (= 6-6 mynstureiningar með 22 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 48-48 lykkjur eftir.
Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 12-12 lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-35 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 7-9 cm í stroffi.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Lykkjum er síðan fækkað á hvorri öxl og hvort stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 128-136 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (frá vinstri öxl að aftan, séð þegar hálsskjólið er mátað) þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 sléttar lykkjur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 7-8 cm.
Setjið 1 merkiþráð í umferð. Stykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að auka út fyrir axlarsæti.
Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 42-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 22-26 lykkjur (= öxl), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-42 lykkjur (= framstykki) og setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 22-26 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl, á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt þeirra.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3a (= 1 lykkja), prjónið A.4 (= 40 lykkjur), prjónið A.5a (= 1 lykkja), haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 22-26 lykkjurnar, prjónið A.3a (= 1 lykkja), prjónið A.4 (= 40 lykkjur), prjónið A.5a (= 1 lykkja) og haldið áfram með stroff eins og áður yfir þær 22-26 lykkjur sem eftir eru. Nú eru 136-144 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsæti og aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan (mynstrið heldur áfram eins og útskýrt er að ofan, en þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynstrið endurtekið alveg eins áfram - sjá A.4b):
Aukið út um 1 lykkjur á EFTIR 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir 22-26 lykkjum í stroffi) og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan 22-26 lykkjum í stroffi) – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Þegar aukið er út svona þá kemur fjöldi axlalykkja að haldast óbreyttur, en það verða fleiri lykkjur á framstykki og bakstykki.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 25-31 sinnum (aukið er út til viðbótar alls 24-28 lykkjur í A.3a og A.5a eins og útskýrt er í mynsturteikningu) = 260-296 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 9-11 cm meðfram öxl mælt frá merkiþræði við háls.
Þegar 1 umferð er eftir í A.3a og A.5a, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður fram að 2. prjónamerki, fellið af 22-26 axlalykkjurnar, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, prjónið eins og áður fram að 4. prjónamerki og fellið af þær 22-26 axlalykkjur sem eftir eru. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 108-122 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.3b yfir fyrstu 32-39 lykkjurnar, haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 44-44 lykkjurnar eins og áður og prjónið A.5b yfir þær 32-39 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram fram og til baka og endurtakið A.3b, A.4b og A.5b á hæðina þar til stykkið mælist ca 33-35 cm frá öxl mælt innst við hálsmál þegar stykkið liggur flatt (stykkið mælist ca 28-29 cm frá prjónamerki við hálsmál) – ATH: stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í A.4.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið stroff þannig: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 30-37 lykkjurnar, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjur, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 30-37 lykkjur og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 36-38 cm frá öxl þegar stykkið liggur flatt.

FRAMSTYKKI:
= 108-122 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki.
-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-13 cm. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.6 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 52-52 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í umferð hér. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-6 lykkjur jafnt yfir þessar 27 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt, A.7 (= 18 lykkjur) yfir A.6 og endið með 4 lykkjur slétt = 44-46 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1½ cm frá prjónamerki, aukið út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum á hæðina = 54-58 lykkjur.
Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 44-46 lykkjur.
Prjónið áfram þar til vettlingurinn mælist 15-16 cm frá prjónamerki – stillið af að síðasta umferð sé ekki umferð með snúning í kaðli í A.7, þ.e.a.s. ekki umferð 4 eða 8.
Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið nú A.8 yfir A.7 – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 40-42 lykkjur í umferð.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á vettlingi þannig að það verða 20 lykkjur innan í vettlingi og 20-22 lykkjur ofan á vettlingi. Það eru 3-4 lykkjur slétt á milli prjónamerkja og A.8.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 16-18 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-9 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel. Vettlingurinn mælist ca 30-32 cm ofan frá og niður. Brjótið e.t.v. uppá neðstu 6-6½ cm á stroffi.

ÞUMALL:
Setjið 11-13 þumallykkjur frá þræði á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur í kringum op á þumli = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5½ cm. Nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1-0 lykkjur slétt, prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-13 cm. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.6 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 52-52 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í umferð hér. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-6 lykkjur jafnt yfir þessar 27 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt, A.7 (= 18 lykkjur) yfir A.6 og endið með 4 lykkjur slétt = 44-46 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1½ cm frá prjónamerki, aukið út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við 19.-21. lykkju í umferð – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum á hæðina = 54-58 lykkjur.
Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 44-46 lykkjur.
Afgangur af vettling er prjónað á sama hátt og hægri vettlingur.
Prjónið þumal á sama hátt og hægri þumall.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.10.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning og texti fyrir A.4b hefur verið uppfært.
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2020
Leiðrétting: Tákni og texta í mynsturteikningu hefur verið bætt við: "þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu"

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Cool Cables

Ann Duke, United States

Cool Cables Set

Yuliya, Russian Federation

Cool Cables Hat

julysnow, Russian Federation

Cool Cables Set

Daniela, Slovakia

Cool Cables

Daniela, Slovakia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Vanja wrote:

Har också nått felet i A4. Det blir till att rita om det hela innan jag kan fortsätta. Tack för ett jättebra mönster i övrigt!

13.10.2020 - 10:37

DROPS Design answered:

Hej! Tack för info! Diagrammet är nu rättat (du kan behöva uppdatera sidan för att se det nya diagrammet). Mvh DROPS Design.

14.10.2020 - 09:50

country flag Cicki Östman wrote:

Fel i mönster halsvärmare. Mönsterdel A-4b som ska upprepas har det smugit sig in ett fel i. I sicksackflätan blir det vid upprepning bara ett varv emellan, vid slutet och när man börjar om, och det är även två flätningar åt samma håll. Jag har fått rita om hela den mönsterdelen för att få det att stämma. Först trodde jag att jag hade gjort fel men vid närmare granskning stämmer det inte i mönstret.

04.10.2020 - 11:00

DROPS Design answered:

Hej! Tack för info! Diagrammet är nu rättat (du kan behöva uppdatera sidan för att se det nya diagrammet). Mvh DROPS Design.

14.10.2020 - 09:50

country flag May Craig wrote:

You have many many beautiful patterns both to buy and for free, however the instructions are all in chart form. I need patterns to be written. Do you have a list or a site that shows what patterns are in written form? I am especially interested in your Aran/cable patterns and you have many beautiful ones. Please make my day and tell me you have a site full of these written patterns.

01.10.2020 - 14:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Craig, all our patterns are available for free in our website - they might have either diagrams or be only written depending on the pattern - you will find how to read knitting diagrams here so that you can follow them. Happy knitting!

01.10.2020 - 16:18

country flag Violetta wrote:

Das Modell ist wunderbar!!!

08.06.2020 - 07:34

country flag Grażyna wrote:

Piękne warkocze

05.06.2020 - 11:26