Elegant Emerald |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 214-36 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 11. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Nýjar lykkjur á fram- og bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og nýjar lykkjur á öxlum eru prjónaðar inn í storff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og axlir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram kanti á öxlum og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-132-132 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Næst umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið síðan sléttar lykkjur yfir næstu 44-44-44 lykkjur og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-22-22 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 44-44-44 lykkjur og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-20-20 lykkjur = 132-140-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki eftir 26. lykkju í umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið fyrsta prjónamerki eftir þessa lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis – þetta er nú byrjun á umferð). Setjið næstu 3 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Hoppið yfir næstu 50-50-50 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri öxl), hoppið yfir næstu 16-20-20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri öxl og framstykkis), hoppið yfir næstu 50-50-50 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri öxl), nú eru 16-20-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið nú mynstur þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 30 lykkjur, 9-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki situr hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 8 lykkjur fleiri fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-15-19 sinnum = 252-260-292 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 11-11-14 cm frá prjónamerki sem sett var í eftir kant í hálsi. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram án útaukningar að réttu máli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er 1.,3., 5., 7. eða 9. umferð í A.1. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 81-81-89 lykkjur og setjið þær á þráð (= bakstykki), prjónið eins og áður yfir næstu 44-48-56 lykkjur og setjið þær á þráð (= hægri öxl), prjónið næstu 82-82-90 lykkjur eins og áður og setjið þær á þráð (= framstykki), prjónið eins og áður yfir næstu 44-48-56 lykkjur (= vinstri öxl) og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni. Færið inn síðustu lykkjuna í umferð á þráðinn saman við lykkjur á bakstykki (= 82-82-90 lykkjur af þræði fyrir bakstykki). Öll laskalínan er nú færð að framstykki og bakstykki. Prjónið nú stykkin fram og til baka hvort fyrir sig. VINSTRI ÖXL: = 44-48-56 lykkjur. Prjónið fram og til baka með stroffi eins og áður með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 8 umferðir, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og vinstri öxl. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu með hringprjón 4 og Merino Extra Fine og prjónið upp 8 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hlið á hægri öxl (þ.e.a.s. 8 umferðir með stroffi), prjónið inn 82-82-90 lykkjur af þræði fyrir framstykki í mynstri eins og áður á prjóninn, prjónið upp 8 lykkjur jafnt yfir innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hlið á vinstri öxl (þ.e.a.s. 8 umferðir með stroffi) = 98-98-106 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir 82-82-90 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram fram og til baka, þ.e.a.s. prjónið mynstur eins og áður með 8 lykkjum stroff í hvorri hlið (ystu 2 lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni svo að kanturinn rúllist inn í hliðum). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 18-18-18 cm frá skiptingu (þar sem 8 lykkjur voru teknar upp í hvorri hlið á framstykki) – stillið af að endað sé eftir 4. umferð í A.1. Nú er aukið út um 8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, hvoru megin við A.1 (ekki er aukið út yfir lykkjur í stroff í hvorri hlið) = 114-114-122 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir slétta lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur og haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 34-34-38 lykkjur, prjónið A.2 yfir A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 34-34-38 lykkjur og haldið áfram með stroff eins og áður út umferðina. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir með stroffi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Hálsskjólið mælist ca 34-35-38 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Nicole wrote:
Would love to see this as a pullover or cardigan pattern
09.11.2020 - 07:17Birgitte wrote:
Jeg er begyndt på denne, men synes ikke mine snoninger bliver som på billedet. Er det mig der har misforstået noget eller er der fejl i diagrammet?
11.10.2020 - 21:17DROPS Design answered:
Hej Birgitte, starter du diagrammet i nederste højre hjørne og strikker opad? For at kunne sammenligne er du nødt til at vende dit arbejde om, så den vender samme vej som på billedet (da du strikker halsen ovenfra og ned). God fornøjelse!
12.10.2020 - 15:43Annarosa wrote:
Mi piace molto questo scaldacollo che scalda anche le spalle
07.06.2020 - 12:17Eva wrote:
Shield maiden
06.06.2020 - 15:57Knitter wrote:
I love this as it is! Usually these kind of garments leave shoulders cold, but this seems like a perfect solution.
05.06.2020 - 23:21Dawn Wynne wrote:
I'd love this as a jumper pattern!
04.06.2020 - 13:02