DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Peppermint Twist

Prjónað eyrnaband, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum.

DROPS 214-35
DROPS Design: Mynstur me-217
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300 g litur 31, skógargrænn

EYRNABAND:

STÆRÐ:
Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm – eða að óskuðu ummáli

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 31, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Mál: Lengd: ca 17-21 cm frá öxl og niður (+ 7 cm kant í hálsi).

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 g litur 31, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - M/L

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 31, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: Fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 4,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um vettlinga):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.
Næsta útaukning er prjónuð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann utan með útauknar lykkjur.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Lykkjum er fækkað innan í hönd þannig:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður fram að fyrsta merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) á öxlum og prjónað er sléttprjón á framstykki og bakstykki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman mitt að aftan.

EYRNABAND:
Fitjið upp 32 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur A.1 yfir allar lykkjurnar í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið mynsturteikningu þar til eyrnabandið mælist 49 cm – eða að óskaðri lengd og stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Saumið eyrnabandið saman mitt að aftan með lykkjuspori innan við affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 124-128 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 152-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið einn merkiþráð hér (= mitt á milli 2 lykkja slétt). Þetta er nú byrjun á umferð.
Prjónið nú mynstur þannig: 11-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.2 yfir næstu 20 lykkjurnar (= í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri öxl), prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 2 lykkjur brugðið (= hægri öxl), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli hægri öxl og framstykkis), sléttar lykkjur yfir næstu 22-26 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli framstykkis og vinstri öxl), prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 2 lykkjur brugðið (= vinstri öxl), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli vinstri öxl og bakstykkis), sléttar lykkjur yfir næstu 11-13 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur og í 2. umferð í mynstri byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-20 sinnum = 280-320 lykkjur.
Í stærð S/M hefur A.2 verið prjónað 3 sinnum á hæðina + fyrstu 2 umferðir í A.2 (= 32 umferðir með mynstri). Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.
Í stærð M/L hefur A.2 verið prjónað 4 sinnum á hæðina. Prjónið 2 umferðir til viðbótar með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (= 42 umferðir með mynstri). Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

Báðar stærðir:
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27-33 lykkjur (þ.e.a.s. fram að fyrstu einingu A.2). Setjið 1 prjónamerki hér. Nú er þetta byrjun á umferð.
Prjónið A.3 yfir A.2, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 44-52 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.3 yfir A.2, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 17-21 sinnum (= yfir 51-63 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð = 316-364 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 86-94 lykkjurnar, prjónið 1 lykkju slétt, * prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 17-21 sinnum, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð.
Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir í stroffi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 44-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér (= byrjun á umferð), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 2-4 lykkjur sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 46-50 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2-4 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 20 lykkjur (uppsláttur frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 6-7 cm, setjið 1 prjónamerki í 25.-29. lykkju í umferð (= þumallykkja).
Aukið nú fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir þumal í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 56-62 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 9-11 cm. Í næstu umferð eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjurnar á þræði = 46-50 lykkjur.
Prjónið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka 4 sinum á hæðina. Stykkið á nú að mælast ca 17-18 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið þannig að það verða 1-2 lykkjur slétt á milli merkiþráða og A.4 í hvorri hlið. Nú eru 24-26 lykkjur slétt á milli merkiþráða innan í vettlingi. Prjónið nú A.5 yfir A.4 og þegar prjónað hefur verið upp að umferð með ör í mynsturteikningu, heldur mynstrið áfram eins og áður og úrtaka byrjar – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum og í hverri umferð 5 sinnum. Þegar úrtöku er lokið og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 19-23 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-6 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Vettlingurinn mælist ca 22-23 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur frá þræði á sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5½ cm (nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 44-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér (= byrjun á umferð), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 2-4 lykkjur sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 46-50 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2-4 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 20 lykkjur (uppsláttur frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur hringinn.
Þegar stykkið mælist ca 6-7 cm, setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= þumallykkja).
Aukið nú fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir þumal í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 56-62 lykkjur.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 9-11 cm. Í næstu umferð eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjurnar á þræði = 46-50 lykkjur.
Prjónið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka 4 sinum á hæðina. Stykkið á nú að mælast ca 17-18 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið þannig að það verða 1-2 lykkjur slétt á milli merkiþráða og A.4 í hvorri hlið. Nú eru 24-26 lykkjur slétt á milli merkiþráða innan í vettlingi. Prjónið nú A.5 yfir A.4 og þegar prjónað hefur verið upp að umferð með ör í mynsturteikningu, heldur mynstrið áfram eins og áður og úrtaka byrjar – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum og í hverri umferð 5 sinnum. Þegar úrtöku er lokið og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 19-23 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-6 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Vettlingurinn mælist ca 22-23 cm ofan frá og niður.
Prjónið þumal á sama hátt og hægri þumall.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)

symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)

symbols = í þessari umferð byrjar úrtaka innan á vettlingi (í viðbót við lykkju sem fækkað er um í mynsturteikningu á framhlið á vettlingi)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Hampus wrote:

Hej! Jag är lite förvirrad angående tummens placering på vanten (jag stickar storlek M/L). I beskrivningen uppfattar jag det som att varvets början förskjuts med två maskor till vänster. När det sedan är dags att öka för tummen så görs det på sidorna av den 29:e maskan. Tummen hamnar då 4 maskor till vänster om mönstret. På bilden ser det ut att vara flera maskor emellan, och jag upplever att tummen bör vara längre bak, mot handflata). Har jag gjort något fel?

20.11.2021 - 22:16

country flag Heidi wrote:

Hei! Jeg slet litt med å forstå fellingen på vottene. Skal jeg felle alle fire pinnene på samme punkt eller felles innsiden av votten og utsiden av votten uavhengig av hverandre?

24.10.2021 - 21:35

DROPS Design answered:

Hei Heidi, Du feller etter 1. merket og før 2. merket, slik at fellingene er på innsiden av hånda, ikke på toppen. Fellingen skjer på samme omgangen på begge sider, og du feller 2. hver omgang x 3 og hver omgang x 5. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

25.10.2021 - 08:54

country flag Judit wrote:

Grazie per la vostra veloce risposta! Infatti è una treccia, leggendo il diagramma ho visto male il simbolino.

18.04.2021 - 20:58

country flag Judit wrote:

Buonasera, avrei bisogno di un chiarimento riguardo la fascia per la testa che ho appena iniziato. Seguendo il diagramma A.1 indica le diminuzioni di 2m al settimo ferro. Dopo come si torna ad avere di nuovo 32m sul ferro? Dovrei fare gli aumenti all'ottavo ferro? Non so come devo continuare:( grazie per il vostro aiuto!!!

18.04.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Buonasera Judit, il simbolo a montagna sul 7° ferro si lavora in questo modo: trasferire 2 maglie sul ferro ausiliario davanti al lavoro, 2 maglie diritto, 2 maglie diritto dal ferro ausiliario. Non c'è nessun aumento, è una treccia. Buon lavoro!

18.04.2021 - 20:20

country flag Krabbendam wrote:

Bonjour Concernant les augmentations pour le pouce des moufles vous dîtes de marquer les 25ième et 29ième mailles et augmenter une maille de chaque côté de ces mailles marquées. Ça fait une augmentation de 4 mailles et non de 2 ??????

12.03.2021 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Krabbendam, la maille du pouce est soit la 25ème maille (1ère taille) soit la 29ème taille (2ème taille), on ne va augmenter que 2 mailles à chaque fois - cf AUGMENTATIONS-2. Bon tricot!

15.03.2021 - 07:58

country flag Christel wrote:

Bonjour , Je suis au niveau du bandeau,et dès le début je ne comprends pas. Quand on monte les mailles normalement le 1 rang c’est sur l’endroit. Et là vous dites envers sur l’envers. Les rangs sont donc inversés ?

10.12.2020 - 13:26

DROPS Design answered:

Bonjour Christel, effectivement, dans ce modèle (et d'autres parfois), le 1er rang va être l'envers du tricot, on va donc le tricoter ici en mailles envers et continuer ensuite en tricotant le diagramme A.1 = le 1er rang = sur l'endroit. Bon tricot!

10.12.2020 - 14:03

country flag Kathy wrote:

This is a question, and a comment I am afraid. I absolutely love your patterns! This warmer set is so striking. Sadly enough, I have a learning disability, and I am unable to use charts. Do you ever offer patterns with line by line directions as well as charts?

01.11.2020 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Kathy, thank you very much for your comment -our patterns are most of the time only with diagram, but you can get helped from this lesson. Hope this will help you to understand how to read knitted diagrams. Happy knitting!

02.11.2020 - 09:42

country flag Sarah wrote:

Hello, I have 2 questions about raglan increases on neckwarmer- I did the 8 increases on round 2, but then when I get to round 4, I am confused, where the increases go. Do I do the new increase of round 4, before the increase made in row 2, then A2, then have increase in row 2, then 2nd new increase of round 4? Also there are 8 increases made on each round, can you tell which are rib and which are stockinette, i.e is 1st stockinette, 2nd rib etc. Thanks

19.10.2020 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Sarah, the new stitches increased for raglan are worked either in stocking stitch (= front and back piece) and the new stitches on shoulders are worked in rib and you will increase on each side of each A.2, this means you will increase on every other round before the first stitch in A.2 and after the last st in A.2. The new stitches on shoulders should be worked in rib: if rib starts with K2, purl first 2 inc (= rib will start with P2, K2) then work next 2 inc knit (to get K2, P2, K2 again) and so on. At the end of "sleeve", continue in rib the same way. Happy knitting!

19.10.2020 - 16:10

country flag Lisbeth Erlandsson wrote:

Jättefint set kommer absolut att göra detta.

04.06.2020 - 20:06

country flag Bettina29 wrote:

Elégant ensemble

04.06.2020 - 17:10