DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sleigh Ride

Prjónaðir sokkar úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 – 43. Þema: Jól.

DROPS 214-63
DROPS Design: Mynstur li-124
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: Ca 22-24-27 cm.
Hæð á sokk: Ca 15-16-16 cm.

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 0519, dökk grár
100-100-100 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5: Fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: Fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 16. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju slétt saman.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-15-13 lykkjur eru eftir í umferð.

ÚRTAKA (á við um tá á):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið miðjulykkju í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

SOKKAR:
Fitjið upp 64 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna 3 með litnum dökk grár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60 lykkjur í öllum stærðum.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 7-8-8 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 27 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 27 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir (A.3 er ekki lokið), fækkið um 4-2-2 lykkjur jafnt yfir 27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 56-58-58 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-16 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33 lykkjur á fæti á þráð). Það eru 23-25-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð með litnum dökk grár, prjónið A.5 yfir fyrstu 22-24-24 lykkjur á hæl, prjónið fyrstu lykkju í A.5 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk grár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur.
Haldið áfram með A.5 fram og til baka yfir 25-27-27 lykkjur, en kantlykkjur eru prjónaðar með litnum dökk grár.
Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd fótar frá.
Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram þegar úrtaka fyrir hæl er gerð).
Eftir hælúrtöku er fyrsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-15-13 hællykkjur, prjónið upp 12-14-14 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hlið á hæl með litnum dökk grár, setjið til baka 33 lykkjur af þræði á fæti á prjóninn og haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir þessar 33 lykkjur og prjónið upp 12-14-14 lykkjur með litnum dökk grár innan við 1 kantlykkju meðfram annarri hlið á hæl = 70-76-74 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur hringinn með A.5 undir fæti, A.3 ofan á fæti og A.2 í hvorri hlið.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 miðjulykkjum á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31 miðjulykkjum á fæti slétt saman með litnum natur og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-8-6 sinnum = 58-60-62 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti (það eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur með litnum dökk grár yfir 27 miðjulykkjur ofan á fæti (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður).
Prjónið síðan A.5 undir fæti eins og áður, A.2 í hvorri hlið eins og áður og prjónið A.5 yfir 27 miðjulykkjur á fæti.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11-11-12 sinnum = 14-16-14 lykkjur eftir.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 7-8-7 lykkjur eftir.
Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2021
HÆLÚRTAKA og útskýring hvernig á að taka upp lykkjur meðfram hlið á hæl hefur verið leiðrétt.

Mynstur

symbols = dökk grár
symbols = natur
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-63

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Anne Vilain wrote:

Bonjour, je souhaiterais savoir s'il n'y a pas d'erreur quant aux diminutions de la pointe, il est mentionné d'effectuer les diminutions tous les deux tours, ce qui donne une hauteur de pointe à 8 cm, est-ce qu'il ne faut pas effectuer les diminutions tous les tours pour avoir la hauteur de 4 cm, comme mentionné. Merci pour votre réponse.

09.01.2023 - 16:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vilain, effectivement, il faut diminuer tous les tours, la correction a été faite, merci pour votre retour. Bon tricot!

09.01.2023 - 17:06

country flag Mia wrote:

När jag stickat hälkappan har jag två mörka maskor i början och slutet. Efter hoptagning har jag 15 maskor kvar och plockar upp 14 maskor på varje sida, därmed stämmer inte ränderna så att jag får varannan mörk och ljus. Första sidan funkar men på andra sidan får jag två mörka bredvid varandra där den sista upplockade maskan möter den första maskan på själva hälen. Vad är fel?

11.01.2022 - 20:17

country flag Janneke Feenstra wrote:

Beste drops als ik de teen brei zoals beschreven 12x 4 mindering om de naald, wordt de teen een lange punt. Meestal wordt er halverwege toch overgegaan op minderen in elke naald om die ronding te krijgen. Zoals ik het lees, en doe, klopt het niet. Vriendelijke groeten, Janneke

04.01.2022 - 07:44

country flag Janneke Feenstra wrote:

Beste drops als ik de teen brei zoals beschreven 12x 4 mindering om de naald, wordt de teen een lange punt. Meestal wordt er halverwege toch overgegaan op minderen in elke naald om die ronding te krijgen. Zoals ik het lees, en doe, klopt het niet. Vriendelijke groeten, Janneke

08.11.2021 - 06:29

country flag Gunilla wrote:

När man tar om mönster A3 och börjar från stjärnan så blir kanten fel, överst är det 1svart 2 vita och 3 svarta om man sen börjar från omtaget är första raden rätt men sen borde det vara 1 svart 2 vita 1 svart 1 vit och 1 svart. Inte tre svarta.

23.10.2021 - 22:22

country flag Kerstin Pantzar wrote:

Hur minskar man en häl som är stickad med 2garner .kan inte få det snyggt.snälla hjälp.

23.09.2021 - 10:46

country flag Daniel Glinatsi wrote:

Hej. Jag får det inte riktigt att gå ihop med minskningen vid de mittersta 31 maskorna. Ska det inte vara minskning före och efter de 33 maskorna som utgör mönster A2-A3-A2? Ser ut så på bilden.

23.08.2021 - 10:24

country flag Manuele wrote:

Hello, thanks for the great pattern! One minor comment: I think there is a problem in pattern A.3 as the repeating part (marked with the star) repeats correctly in the middle, but not in the lateral bands (first six and last six stitches). It's barely noticeable, but if you are starting this pattern, you can slightly modify the pattern to ensure that also the lateral bands are repeating.

05.08.2021 - 17:23

country flag Cornélie Lallemang wrote:

Hallo ! Arbeite gerade die Socken und sieht toll aus Mir ist jedoch aufgefallen daß beim weiter arbeiten nach der Ferse etwas nicht stimmt Nach dem Auffassen der Maschen an der Ferse sind 33 Maschen am Fußrücken (A2+A3+A2 = 3+27+3=33) Und nicht wie danach angegeben 31 Fußrücken-Maschen Am Rücken bleibt die Anzahl der Maschen ja unverändert Liebe Grüsse

12.04.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lallemang, so stimmt es: die Abnahme beidseitig von den 31 Maschen ist mit der ersten Maschen davor + der letzte Masche der 2. A.2 gestrickt: stricken Sie bis 2 Maschen vor den 31 mittleren M übrig sind, 2 Maschen recht zusammen (= die 2. ist die 1. Masche in1. A.2), 31 M wie zuvor stricken, die letze Masche in 2. A.2 zusammen mit der nächsten Masche rechts verschränkt stricken. Viel Spaß beim stricken!

13.04.2021 - 07:43

country flag Mai Hilmer-Syvertsen wrote:

Det er en feil i oppskriften: Når man har strikket mønsteret en gang og skal begynne på en ny rapport, blir det kluss. Det skyldes at mønsteret på midten har en rapport på 14 omg. Mønsteret på hver side av midten har en rapport på 4 omganger. 4 går ikke opp i 14, det er enkel matematikk. Forslag: følg rapporten på midten og strikk hver side av midten etter hukommelsen. Dette gjelder forsiden av sokken.

04.03.2021 - 12:08