DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Northern Spirit

Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í áferðamynstri með kanti í stroffprjóni.

DROPS 214-70
DROPS Design: Mynstur li-129
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L
Höfuðmál:
54/56 – 58 cm

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 9015, grár

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið við miðju að framan):
Aukið út innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni, næstu 2 lykkjur í sléttprjóni o.s.frv.

ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfunni):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur.
Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir háls mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum opið að framan.

MIÐJUEINING:
Fitjið upp 32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 14-16 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 30-30 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan.

HÚFA:
Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 33-37 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 30-30 lykkjur á prjóni og prjónið upp 33-37 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 96-104 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan – mynstrið á að passa fallega yfir lykkjur í miðjueiningu. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram!

ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 10-12 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum í hvorri hlið.

ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN:
JAFNFRAMT þegar auka á út í 5. skiptið, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukning og úrtaka endar samtímis).

Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 104-112 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 21-23 cm frá þar sem prjónamerki var sett, á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmál mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd.
Fitjið upp 16-20 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 120-132 lykkjur í umferð. Takið prjónamerkið frá úr stykkinu og setjið 1 prjónamerki í umferð.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú hálsmál eins og útskýrt er að neðan.

HÁLSMÁL:
Prjónið nú stykkið í hring á hringprjón. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn.
Þegar stykkið mælist 9-10 cm frá prjónamerki undir hálsmáli, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 150-165 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12-13 cm frá prjónamerki. Aukið nú allar 2 lykkjur garðaprjón til 3 lykkjur garðaprjón með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur garðaprjón = 180-198 lykkjur.
Prjónið 1 umferð með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 41-44 cm frá miðju á miðjueiningu og niður.

KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónið upp ca 160 til 180 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Lima. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-6 cm – stillið af að stroffið passið fallega yfir lykkjur í miðjueiningu og við háls þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Brjótið stroffið inn að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur.
Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Northern Spirit

Bettina Løhmann, Denmark

Northern Spirit

@nereaknits, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-70

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Anneli Ahnstedt Stengård wrote:

När man plockat upp maskor på båda sidorna av mittendelen, ska man sticka dem var för sig eller sticka ihop dem? Om man inte ska sticka ihop dem undrar jag varför man ska sätta en mittmarkering för den hamnar ju emellan stickdelarna.

29.01.2024 - 10:25

DROPS Design answered:

Hei Anneli. Når du har strikket midtpartiet, felt 1 maske i hver side, har 30 masker på pinnen og klippet tråden, starter du i den ene siden av midtpartiet, ved oppleggskanten (fra retten) og strikker opp 33-37 masker innenfor 1 kantmaske i rille, fortsett A.1 som før over de 30-30 maskene på pinnen (merketråden settes midt mellom disse 30 maskene), strikk opp 33-37 masker langs den andre siden på midtpartiet innenfor 1 kantmaske i rille = 96-104 masker. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 13:10

country flag Kayla wrote:

Hey there, This states it's worked on circular knitting needles but mentions a wrong side and right side. Are we not supposed to join in the round for this piece? Is it worked flat so that it does have a wrong/right side?

22.01.2024 - 03:24

DROPS Design answered:

Hi Kayla, yes, we work back and forth at the beginning (mid front to back of head), then pick up stitches in the sides of this part and work back and forth in the sides and back ("around the head"). When the chin is reached and the opening for the face is finished, then join and work in the round for the neck. Happy knitting!

22.01.2024 - 05:13

country flag Val wrote:

Hallo, ik ben zo goed als klaar met dit leuke patroon. Ik moet nu de steken opnemen langs het gezicht om de boordrand te breien. ik heb moeilijkheden om te zien waar ik moet steken met de breinaald . Heeft u een tip? en hoe kan ik elastisch vastnaaien .moet dit met elastische draad? groetjes . Trouwens ik ben erg tevreden met de duidelijke patronen van uw site. Elders begrijp ik er vaak niks van!!

16.08.2023 - 23:53

DROPS Design answered:

Dag Val,

Bij de hals en midden voor kun je steken zo opnemen dat de boordsteek mooi doorloopt. Bij de lijst van video's staat ook een video over het opnemen van steken langs de zijkant. Misschien helpt dat je verder?

20.08.2023 - 15:40

country flag Val wrote:

Ik denk dat ik zelf heb gevonden.ik heb alle steken op 3 naalden gezet en heen en weer gebreid.Toch heb ik een vraag wat betekent vermeerderen aan de binnenkant van de buitenste 7 steken. is dit aan de kant vanhet middelgedeelte of aan de gezichtsopening? Dank je voor jullie reactie.

22.07.2023 - 22:26

DROPS Design answered:

Dag Val,

Je meerdert steeds vlak naast de 7 buitenste steken en is aan de kant van de gezichtsopening.

24.07.2023 - 20:05

country flag Val wrote:

Ik begrijp het capuchon deel niet goed. ik heb 37 s opgenomen aan de zijkant. moet ik nu 16 cm A1 doen , en zet ik deze steken dan in wacht voor ik de steken aan de andere zijde opneem. ik begrijp ook niet waar ik de markeerdraad hang. dankje voor een reactie

19.07.2023 - 17:13

country flag Nicole wrote:

Bonjour Désolé mais j'ai trouvé J'avais seulement mal lu Merci

03.01.2023 - 23:14

country flag Nicole wrote:

Bonjour Vous dites de monter 21 mailles de chaque côtés = 64 m. Se pourrais t'il que vous vouliez dire 10 de chaque côtés à la place pour faire 64 total

03.01.2023 - 14:26

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, êtes-vous vraiment en train de faire ce modèle ? Ou plutôt un autre peut-être? Je ne trouve pas ces informations dans ce modèle (ni 21 mailles de chaque côté ni 64 mailles au total) - n'hésitez pas à poster votre question dans la rubrique "questions" de celui que vous tricotez, ce sera ainsi plus simple pour nous de vérifier. Merci pour votre compréhension.

03.01.2023 - 16:49

country flag Carol Strydom wrote:

Thank you so much. I was in a panic when I couldn't figure it out. My daughter requested a balaclava as a birthday gift that is on Saturday. Now I will be able to finish it. Thanks again. Love your patterns and yarn. Unfortunately we don't have any shops stocking your yarn and I just don't trust shipping to S. A. at this time. I think I should ask my local yarn shop to stock your yarn.....

17.03.2022 - 11:57

country flag Carol Strydom wrote:

Please can you simplify the increases for me. I don't understand what you mean by " Increase on the inside of the outermost 7 stitches". Do I increase after the 6th stitch or can I increase after any stitch within thd seven stitches. 🤔Thank you.

17.03.2022 - 08:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Strydom, you have to increase on each side of piece, from RS, ie work 7 st as before, increase 1 stitch (by making 1 yarn over), work until 7 sts remain before the end of the row, increase 1 stitch (by making a yarn over), and work the last 7 sts as before. Repeat this row on every 4th row (= every other row from RS). Happy knitting!

17.03.2022 - 09:57

country flag Nancy wrote:

Increases:: are the increases 1 time each end in the 4 row repeat or twice ? i.e. rows 1 & 3, right side rows or only row 1? Your instructions say I”ever 4th row, so that would mean1 increase each end on row 1 only.

31.01.2022 - 14:38

DROPS Design answered:

Dear Nancy, work the increases as follows: *work 1 row increasing 1 stitch on each side, work 3 rows without increasing*, repeat from *-* a total of 8 times. Happy knitting!

31.01.2022 - 17:47