DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mint Breeze Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-22
DROPS Design: Mynstur z-921
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 7139, steingrár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og gatamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 6,3.
Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir bruðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca 4-6 cm frá neðri kanti og næst efsta hnappagatið ca 1 cm frá kanti í hálsmáli. Staðsetjið 3-3-3-4-4-4 hnappagöt sem eftir eru jafnt yfir með ca 7-7½-8-6½-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur að framan í stroffprjóni og kantur í hálsmáli í garðaprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 216-240-260-288-328-360 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 34-38-42-46-54-58 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 182-202-218-242-274-302 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir 43-48-52-58-66-73 lykkjur inn frá hvorri hlið. Það eru 96-106-114-126-142-156 lykkjur á bakstykki á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-4-4-5-5 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina í hvorri hlið = 202-222-238-262-294-322 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm. Fellið nú af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 45-50-54-59-67-74 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg (prjónamerkið situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 100-110-118-128-144-158 lykkjur eins og áður, fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg (prjónamerkið situr mitt í þessum lykkjum) og prjónið síðan þær 45-50-54-59-67-75 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 100-110-118-128-144-158 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, fram og til baka á hringprjóna og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-5-5-6 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 42-44-46-48-50-52 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið laus af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 45-50-54-59-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju við miðju að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-5-5-6 sinnum = 39-41-42-43-44-45 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm, setjið ystu 10-11-12-13-14-15 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 45-50-54-59-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju við miðju að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-5-5-6 sinnum = 39-41-42-43-44-45 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm, setjið ystu 10-11-12-13-14-15 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 80-88-88-96-96-96 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 81-89-89-101-101-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið mynstur þannig: 4-8-8-1-1-1 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 26-26-26-39-39-39 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 13 lykkjum), A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 13 lykkjur), A.1 yfir næstu 26-26-26-39-39-39 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 13 lykkjum), A.2, 4-8-8-1-1-1 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til ermin mælist 21-22-21-21-19-18 cm, en endið umferð þegar 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Í næstu umferð eru felldar af fyrstu 6-6-6-6-6-6 lykkjurnar, síðan er mynstrið prjónað eins og áður út umferðina. Prjónið síðan ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna þannig: Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 12 sinnum í hvorri hlið = 51-59-59-71-71-71 lykkjur. Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 þar til stykkið mælist 29-30-30-31-31-32 cm. Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2, í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af. Ermin mælist ca 30-31-31-32-32-33 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið efst í hálsi á vinstra framstykki, prjónið lykkjur upp innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið upp ca 100-128 lykkjur (stillið af að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 4) frá réttu á hringprjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 6 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið neðst á peysu á hægra framstykki, prjónið lykkjur upp innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið upp jafn margar lykkjur og prjónaðar voru upp í vinstri kanti að framan frá réttu á hringprjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 3 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 6 cm, stillið af eftir vinstri kanti að framan. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 120 til 140 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum að framan og yfir kanta að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Loretta wrote:

Buongiorno volevo chiedere per il bordo del collo quanti giri devo fare a punto legaccio ? Quanto deve essere alto il bordo? Grazie.

18.02.2024 - 10:13

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, deve lavorare 3 coste a legaccio per il bordo del collo, come indicato nelle spirgazioni, quindi 6 ferri a legaccio. Buon lavoro!

20.02.2024 - 16:21

country flag Loretta wrote:

Buona sera , per il bordo del collo che punti vanno utilizzati il punto legaccio? O punto coste non e' chiaro nelle spiegazioni. Grazie

16.02.2024 - 21:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Loretta, deve lavorare a legaccio su tutte le maglie del collo come indicato. Buon lavoro!

17.02.2024 - 13:28

country flag Loretta wrote:

Buongiorno volevo chiedere come si fa a lavorare il davanti e il dietro in modo separato, bisogna usare due ferri circolari o posso lasciare le maglie in sospeso mentre lavoro il davanti? Grazie.

25.09.2023 - 19:44

DROPS Design answered:

Buonasera Loretta, può mettere le maglie della parte che non lavora in sospeso su un fermamaglie o un filo di scarto. Buon lavoro!

25.09.2023 - 23:02

country flag Flath wrote:

Liebes Drops-Team, meine Maschenprobe ergibt 5 Maschen und 4 Reihen mehr als angegeben. Ich möchte das Strickbild aber beibehalten und nicht lockerer stricken. Kann ich mir das Umrechnen ersparen und statt der Größe S die Größe L stricken (bei ersten Umrechen-Tests bin ich auf die Machenzahlen für Größe L gekommen) Vielen Dank im Voraus für eine Antwort!

30.08.2023 - 23:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Flath, dann sollen Sie nach Ihrer Maschenprobe, ob die Angaben die richtigen Maßen haben würden - beachten Sie, daß Sie dann mehr Garn brauchen würden. Viel Spaß beim stricken!

31.08.2023 - 09:26

country flag Claudia Carolina wrote:

Buongiorno di nuovo, ecco il mio ultimo conteggio lace maniche:\r\n1 più A1 X 2 (26) più A2 (4) più A3 X 3 (39) più A2 (4) piu A1 X2 (26) più 1 totale 101 - taglia XXXL. Mi rimane il problema di due gettati consecutivi tra la fine del secondo A2 e l\'inizio della prima ripetizione della sequenza finale di A1. Grazie a chi potrà perfezionare il modello.

08.05.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia Carolina, seguendo le spiegazioni per la taglia XXXL deve lavorare: 1 maglia a maglia rasata, A.1 su 39 maglie, A.2 (= 4 maglie), A.3 (= 13 maglie), A.1 su 39 maglie, A.2, 1 maglia a maglia rasata, per un totale di 1+39+4+13+4+1=101 maglie. Buon lavoro!

11.05.2023 - 22:27

country flag Claudia Carolina Cruzat wrote:

Buongiorno e grazie per i modelli e filati meravigliosi. Credo che c'è un errore nella spiegazione delle maniche, sto lavorando la taglia XXXL, al conteggio lace dice li lavorare : 1+39+4+39+4+1... A me viene 88, credo che dopo il secondo 4 (A2) ci Deva essere un'altra rip 39 di A1... Così raggiungerei le 101 maglie. Giusto? Grazie ancora Claudia

08.05.2023 - 18:14

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia Carolina, seguendo le spiegazioni per la taglia XXXL deve lavorare: 1 maglia a maglia rasata, A.1 su 39 maglie, A.2 (= 4 maglie), A.3 (= 13 maglie), A.1 su 39 maglie, A.2, 1 maglia a maglia rasata, per un totale di 1+39+4+13+4+1=101 maglie. Buon lavoro!

11.05.2023 - 22:26

country flag Sonja Bosma Janssen wrote:

Wat wordt er bedoeld met : LET OP : Minder voor de grote maten vanwege bredere schouders en een langere mouwkop? Ik brei dit vestje op 2 naalden en nu heb ik het eerste mouwtje af, maar klopt dit wel? Bij de mouw heb je om de mouw in te zetten 10 cm, terwijl dit bij het voor- en achterpand 23 cm is, klopt dit wel? Of heb ik iets fout gedaan. Ik hoop dat mijn vraag duidelijk is en dat jullie mij kunnen helpen.

04.04.2022 - 16:24

DROPS Design answered:

Dag Sonja,

Als je met de centimeter de ronding mouwkop helemaal rondom opmeet, dan zou deze maat ongeveer overeen moeten komen met de ronding van het armsgat. In de grotere maten is de mouwkop (dus het stuk vanaf het armsgat tot waar de bovenkant van de mouw aan de schouder komt) langer, waardoor het stuk eronder, dus van de oksel tot de manchet, korter is. Die 10 cm klopt wel.

07.04.2022 - 23:46

country flag Sonja Bosma Janssen wrote:

Ik ben begonnen met de eerste mouw en nu is mijn vraag als je gaat afkanten hoe brei je dan in patroon verder. Hou je rekening met de afgekante steek/steken. Bijvoorbeeld je moet 3 steken afkanten dan pak je daar het patroon op. Of begin je na het afkanten gewoon bij het begin van het patroon? Ik hoop dat mijn vraag duidelijk is.

24.02.2022 - 15:43

DROPS Design answered:

Dag Sonja,

Je laat het patroon zo goed mogelijk door lopen in de hoogte. Als er geen genoeg steken meer zijn om bijvoorbeeld samen te breien en een omslag te maken, dan brei je die steken in tricotsteek. Zorg er altijd voor dat het aantal omslagen en minderingen (dus samen breien of steek over halen) in evenwicht zijn. Dus als je bijvoorbeeld steken samenbreit moet daar een omslag tegenover staan en vice versa.

26.02.2022 - 14:38

country flag Margriet Van Den Hoek wrote:

Maat M. van de mouw heeft na het boord 89 steken. Daarna patroon breien met aan het begin en eind van de naald 8 steken tricotsteek. Dit zijn totaal 85 steken en geen 89, je hebt dus 4 steken teveel. Dus aan het begin en eind van de naald 10 steken in tricotsteek, dan klopt het patroon.

24.06.2021 - 13:49

country flag Sonja Bosma Janssen wrote:

Hebben jullie voor mij dit breipatroon om met 2 breipennen te breien. Of tips voor hoe ik dat kan doen..

20.06.2021 - 15:10

DROPS Design answered:

Dag Sonja,

Je kunt dit patroon inderdaad ook met 2 pennen breien.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

20.06.2021 - 19:51