DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Coral Gables Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað með gatamynstri, V-hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-28
DROPS Design: Mynstur r-779
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 81, leir

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Prjónið fram að A.6, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.6, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 2, 9, 16 og 23 cm.
M: 3, 10, 17 og 24 cm.
L: 2, 10, 17 og 25 cm.
XL: 3, 11, 18 og 26 cm.
XXL: 3, 11, 17 og 25 cm.
XXXL: 2, 11, 19 og 28 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru stykkin saumuð saman.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 195-227-243-259-291-323 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Muskat.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur (= kantur að framan), * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, A.2 yfir síðustu 7 lykkjur (= kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka svona í 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð þannig (byrjið á umferð með ör í A.3 og A.4): Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.3 yfir næstu 32-40-40-40-40-48 lykkjur (= 4-5-5-5-5-6 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.3 (= 5-6-6-6-6-7 lykkjur færri), sléttprjón yfir næstu 2-6-8-12-20-22 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-2-3-2-3-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 yfir næstu 7 lykkjur (= 1 lykkja færri), sléttprjón yfir næstu 2-6-8-12-20-22 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-2-3-2-3-3 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir næstu 80-80-88-88-88-96 lykkjur, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.3 (= 11-11-12-12-12-13 lykkjur færri), sléttprjón yfir næstu 2-6-8-12-20-22 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-2-3-2-3-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 yfir næstu 7 lykkjur (= 1 lykkja færri), sléttprjón yfir næstu 2-6-8-12-20-22 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-2-3-2-3-3 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir næstu 32-40-40-40-40-48 lykkjur, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.3 (= 5-6-6-6-6-7 lykkjur færri og A.2 yfir síðustu 7 lykkjur = 172-194-205-225-253-282 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu þannig: Prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu yfir A.3 og A.4, prjónið A.4 og A.2 eins og áður yfir 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1, A.5 yfir næstu 28-35-35-35-35-42 lykkjur, prjónið fyrstu 4 lykkjur í A.5, sléttprjón yfir næstu 2-4-5-10-17-19 lykkjur, A.6 yfir A.4, sléttprjón yfir næstu 2-4-5-10-17-19 lykkjur, A.5 yfir næstu 70-70-77-77-77-84 lykkjur, prjónið fyrstu 4 lykkjur í A.5, sléttprjón yfir næstu 2-4-5-10-17-19 lykkjur, A.6 yfir A.4, sléttprjón yfir næstu 2-4-5-10-17-19 lykkjur, A.5 yfir næstu 28-35-35-35-35-42 lykkjur, prjónið fyrstu 4 lykkjur í A.5 og endið með A.2.
Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.6 – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-5-5-5-5½-6 cm millibili alls 4-4-4-4-4-4 sinnum = 188-210-221-241-269-298 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið fyrstu 45-53-53-57-63-71 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið næstu 86-88-95-103-115-124 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið síðustu 45-53-53-57-63-71 lykkjur (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykkið er prjónað áfram hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 45-53-53-57-63-71 lykkjur.
Prjónið nú mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan:
HANDVEGUR:
Í byrjun á hverri umferð frá handveg eru lykkjur felldar af þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-5-5 sinnum, síðan 1 lykkju 0-1-1-3-3-4 sinnum.
V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 5 lykkjurnar, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 15-22-21-21-21-28 sinnum. Þegar ekki nægilega margar lykkjur eru komnar til að prjóna uppsláttinn og úrtöku í gatamynstri er prjónað í sléttprjóni yfir þessar lykkjur þar þeim hefur verið fækkað í V-hálsmáli.
Þegar allar affellingar hafa verið gerðar fyrir handvegi og úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið, eru 28-28-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Fellið af fyrstu 22-22-23-23-23-23 lykkjum, haldið áfram fram og til baka yfir kantlykkjur að framan eins og áður og kantur að framan mælist 12-12-14-14-14-15 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 45-53-53-57-63-71 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkju felldar af fyrir handveg og lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli þannig:

HANDVEGUR:
Í byrjun á hverri umferð frá handveg eru lykkjur felldar af þannig: Fellið af 2 lykkjur
1-1-1-2-5-5 sinnum, síðan 1 lykkja 0-1-1-3-3-4 sinnum.
V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 15-22-21-21-21-28 sinnum. Ef ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna uppsláttinn og úrtöku í gatamynstri er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur þar til þeim hefur verið fækkað í V-hálsmáli.

Þegar öll affelling hefur verið gerð fyrir handvegi og úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið, eru 28-28-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fellið af fyrstu 22-22-23-23-23-23 lykkjum, haldið áfram fram og til baka yfir kantlykkjur að framan eins og áður og kantur að framan mælist 12-12-14-14-14-15 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 86-88-95-103-115-124 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-5-5 sinnum, síðan 1 lykkju 0-1-1-3-3-4 sinnum = 82-82-89-89-89-96 lykkjur.
Þegar bakstykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist ca 39-41-43-45-47-49 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af miðju 36-36-41-41-41-48 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-22-23-23-23-23 lykkjur á öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 41-43-45-47-49-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 66-70-74-80-84-90 lykkjur á sokkaprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 72-76-80-86-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 6-6-5-5-5-5 cm, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkja 2-3-5-8-14-14 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-2-1-1 sinnum og 4-3-3-4-3-3 lykkjur 1 sinni = 26-28-30-30-30-34 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 13-14-14-15-18-18 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman kantlykkjur að framan innan við affellingarkantinn og saumið síðan kant að framan niður aftan í hnakka meðfram hálsmáli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.08.2021
FRAM- OG BAKSTYKKI:...Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.6 – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-5-5-5-5½-6 cm millibili alls 4-4-4-4-4-4 sinnum = 188-210-221-241-269-298 lykkjur...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = byrjið á þessari umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Anna wrote:

Bij het lijf staat schreven, A.6 over A.4 Wat wordt ermee bedoelt. Groetjes Annagn

07.03.2024 - 14:33

DROPS Design answered:

Dag Anna,

Als je A.6 in de hoogte helemaal hebt gebreid brei je A.4 boven de steken van A.6. (alsof je de telpatronen in de hoogte tegen elkaar plakt.

10.03.2024 - 10:28

country flag Anna Schefman wrote:

Beste, ik blijf 6 steken overhouden na de 1e naald na boordsteek. doe ik iets verkeerd groetjes Anna

06.03.2024 - 12:40

DROPS Design answered:

Dag Anna,

Welke maat ben je aan het breien? Er staat ook een paar keer dat je steken moet minderen op een bepaald gedeelte van de naald. Kan het zijn dat dit voor het verschil zorgt?

06.03.2024 - 21:57

country flag Małgorzata wrote:

Czy pierwsze lewe oczko schematu A3, w rozmiarze L, jest przerabiane nad pierwszym prawym oczkiem ściągacza?

21.12.2023 - 20:37

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu, tak jest. Pozdrawiamy!

27.12.2023 - 08:58

country flag Christine FERRÉ wrote:

Bonjour Je ne comprends pas l'explication de la manche. Je tricote en aller-retour et non en rond. Il est noté qu'à 5 cm il faut rabattre 12mailles. Sous la manche. Faut-il que je rabatte 6 mailles au rg aller et 6 mailles au rg retour ? or en regardant le dessin j'ai plutôt l'impression que la manche augmente et non diminue ( avant de faire l'arrondi) Merci pour votre réponse

22.10.2023 - 13:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferré, le schéma est standard, les explications correspondent au modèle, autrement dit, il n'y a pas d'augmentation pour la manche, quand la manche mesure 5 cm vous devez rabattre 12 mailles au milieu sous la manche, soit 6 mailles au début du tour + 6 mailles à la fin du tour, dans votre cas, rabattez les 6 premières mailles sur l'endroit, tournez et rabattez les 6 premières mailles sur l'envers + vos mailles lisières naturellement. Bon tricot!

23.10.2023 - 10:04

country flag Michaela wrote:

Dobrý den, tento komentář se váže k mému předchozímu. Kontrolovala jsem eng verzi (shodná s touto) a potom pullover verzi, která ale navazuje v celém obvodu. Nabízí se mi toto řešení: v pasáži trupu / *1 hl, 1 obr*, *-* opakujeme do 8 ok, 1 hl / nahradit všechna hl za obr a naopak. Další řady potom navazují a zároveň zůstane počet ok (není třeba nic přepočítat).

09.08.2023 - 15:14

country flag Michaela wrote:

Nahlíženo z líce, pružný vzor začínal za légou hladce. Když se přechází po 2cm do vzoru těla (schémata A3 a A4), má se začít plést na lícové straně. Schéma A3 ale začíná obrace. Pletení mi tak nepřechází plynule z pružného vzoru do vzoru těla, vychází přesně opačně. Pochopila jsem text špatně? Pokud ne, je změna hl na obr žádoucí z technického důvodu nebo je čistě vizuální? Předem moc děkuji za odpověď

02.08.2023 - 14:12

country flag Gianna wrote:

Bonjour, après le rangs sur l'endroit avec les diminutions pour obtenir 194 maille (M) je suis sur l'envers du travail et il est écrit : tricoter le dernier rang de A3 et de A4 . mais il est écrit au début des explications que les diagrammes montrent les rangs sur l'endroit. Je ne comprend pas . comment dois-je tricoter ce dernier rang de A3 et de A4 sur l'envers du travail ??

01.05.2023 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Gianna, les diagrammes montrent tous les rangs, vus sur l'endroit, autrement dit, quand vous lisez les diagrammes, les rangs sur l'endroit(les rangs impairs) se lisent de droite à gauche et les rangs sur l'envers (les rangs pairs) se lisent de gauche à droite. Bon tricot!

02.05.2023 - 09:48

country flag Pierantognetti Emanuela wrote:

Buonasera sto lavorando il modello 220-28 e non capisco la parte in cui dopo aver effettuato il bordo nel ferro successivo si dice : lavorare A1 sulle prime 7 maglie ok,A3 sulle 32 ok, ma le prossime 5 in A3 con diminuzioni????grazie

10.02.2023 - 19:27

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, per il diagramma A.3 deve iniziare dal ferro con la freccia come indicato, ferro in cui c'è la diminuzione. Buon lavoro!

10.02.2023 - 20:26

country flag Jess wrote:

For working the first row back after the decreases on the body, what does this mean? "Work 1 row back from wrong side as follows: Work last row in diagram A.3 and A.4, work A.1 and A.2 as before over the 7 band stitches in each side towards mid front and purl the remaining stitches on row." Does this mean work A1 first, then work last row of A3/A4 when prev row used A3/A4, and use purl st when prev row used stocking stitch? Are there decreases in the stocking stitch of this row?

24.12.2021 - 07:49

DROPS Design answered:

Dear Jess, yes, you work A.3/ A.4 over the previous A.3/A.4. In each diagram, there should be one less stitch due to the decreases in the previous row. A.1 and A.2 are worked as before and you purl the stitches in stocking stitch. Happy knitting!

31.12.2021 - 20:38

country flag Carina Hansson wrote:

Hej! Jag stickar storlek S. "När arbetet mäter 4 cm ökas det en maska på varje sida av A6.Öka så med 7 cm mellanrum totalt 4 gånger". Arbetet blir då efter ökningarna, 4cm+7cm+7cm+7cm =25cm. Detta stämmer inte med att jag ska avmaska för armhål när arbetet mäter 22 cm, jag har då endast hunnit göra tre ökningar och det saknas därmed 4 maskor.

25.08.2021 - 14:35

DROPS Design answered:

Hej Carina. Du har rätt, där ser det ur som det har blivit en felskrivning. Det ska vara ökningar med 5 cm mellanrum, inte 7 cm. Det kommer en rättelse på detta, tack för info! Mvh DROPS Design

26.08.2021 - 11:08