Citrus Sun |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður toppur í DROPS Safran. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með v-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og aðsniði með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-30 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. AÐSNIÐ: Fækkið lykkjum og aukið út fyrir aðsnið við prjónamerkin á framstykki og bakstykki eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjur í hvorri hlið við handveg. Þessar 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru prjónaðar frá kanti þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 7-7-9-9-11-11 LYKKJUM ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 7-7-9-9-11-11 LYKKJUM ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjum, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 7-7-9-9-11-11 lykkjur eins og áður. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið við v-hálsmál. Þessar 3 lykkjur eru prjónaðar frá kanti þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUM ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUM ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan ystu 3 lykkjum, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 3 lykkjur eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loka máli. Hlýrar eru saumaðir niður á bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 200-220-240-260-288-316 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð þannig: 10-10-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju slétt), 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 21-21-27-27-33-33 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju brugðið), 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 11-11-13-13-17-17 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju brugðið). Prjónið áfram í sléttprjóni og stroffprjóni í hliðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum, setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar fækka á lykkjum og auka út fyrir aðsnið. Teljið 10-10-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón, 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, teljið 45-47-51-53-55-57 lykkjur sléttprjón (= mitt að framan), setjið 1 prjónamerki, teljið 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, 21-21-27-27-33-33 lykkjur stroffprjón, 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, teljið 45-47-51-53-55-57 lykkjur sléttprjón (= mitt að aftan) og setjið 1 prjónamerki. Það eru 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón og 11-11-13-13-17-17 lykkjur stroffprjón eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og stroffprjóni eins og áður – að auki er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum með því að prjóna A.1 yfir hvert prjónamerki (prjónamerkin sitja mitt í A.1) = 8 lykkjur færri í umferð. Endurtakið A.1 alls 4 sinnum á hæðina = 168-188-208-228-256-284 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður án úrtöku þar til stykkið mælist 14-14-14-16-16-16 cm. Aukið nú út fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan. Aukið út með því að prjóna A.2 yfir hvert prjónamerki (prjónamerkin sitja mitt í A.2) = 8 lykkjur fleiri í umferð. Endurtakið A.2 alls 4 sinnum á hæðina = 200-220-240-260-288-316 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 30-31-32-33-33-34 cm. Fellið af fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki þannig: Fellið af 3-3-5-5-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón eins og áður, 36-41-43-48-52-59 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri mitt að framan), prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 36-41-43-48-52-59 lykkjur sléttprjón, 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón, fellið af 7-7-9-9-11-11 lykkjur fyrir handveg, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur strofprjón, 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón og fellið af síðustu 4-4-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Framstykkið og bakstykkið er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 46-51-55-60-66-73 lykkjur. Byrjið mitt að framan frá röngu, takið upp 1 lykkju í lykkjuna sem felld var af mitt að framan og prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist «hak» neðst í v-hálsmáli), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir að handveg, prjónið stroffprjón yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 6-6-8-8-10-10 lykkjum stroffprjóni við handveg, sléttprjón, 2 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni við v-hálsmáli. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR – sjá ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum. V-HÁLSMÁL – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 25-26-26-26-26-27 sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 11-11-15-15-17-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm (framstykkið mælist ca 3 cm lengra en loka mál á teikningu þar sem sauma á hlýrann á öxl niður á bakstykki). Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 46-51-55-60-66-73 lykkjur. Byrjið við handveg frá röngu, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir að v-hálsmáli, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan: V-HÁLSMÁL – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 25-26-26-26-26-27 sinnum. HANDVEGUR – sjá ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 11-11-15-15-17-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61. Fellið af. BAKSTYKKI: = 93-103-111-121-133-147 lykkjur. Byrjið við handveg frá röngu, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum = 73-75-83-83-87-93 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm. Fellið síðan af allar lykkjur með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykkið mælist ca 3 cm minna en uppgefið mál á teikningu FRÁGANGUR: Saumið niður hlýrana í hvora hlið á bakstykki þannig að lykkjurnar passi yfir hverja aðra. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Monica Palmelid wrote:
Hej Hur stickar jag insnitten?
11.04.2024 - 15:05DROPS Design answered:
Hei Monica. Det felles og økes til innsnitt ved merketrådene på forstykket og bakstykket slik diagram A.1 og A.2 viser. Se diagrammene og les forklaringene over diagrammene. mvh DROPS Deign
15.04.2024 - 10:43Corina Avram wrote:
Hi! I am a bit stuck. How do I insert the marker threads? I see in the lesson "how to use a MT between 2 sts" that before and after each MT is an increase. Or I just insert a plain sts markers and carry them along the diagrams. I don;t know how to proceed. Thanks in advance
07.03.2024 - 17:14DROPS Design answered:
Dear Corina, a marker thread is usually used when you also using markers, to differentiate where you need to measure from and where you need to make decreases/ increases. You just put a longer piece of leftover thread between the stitches (ideally in contrasting colors to what you are knitting with) and every few rows put it from one side to the other, kind of weaving it. If you do this regurarly, it helps track your row-numbers too. After finishing, you can easily take it out. I hope this helps. Happy Knitting.
07.03.2024 - 22:30Bodil wrote:
Strikker denne toppen i str. M. Skal begynne å felle til innsnitt. Skjønner ikke helt hvor jeg skal begynne å felle de første 8 maskene. Omgangen starter jo midt i første vrangbord i siden. Har satt merketrådene der de skal være. Håper på raskt svar, da jeg er ivrig på å komme videre 😊
25.08.2023 - 21:35DROPS Design answered:
Hei Bodil. Du strikker halve vrangborden i den ene siden, da er det 21 masker til 1. merketråd/ 1. innsnitt. Strikk 17 masker glattstrikk, deretter strikker du etter A.1 (1. innsnitt). Nå vil merketrådene sitte midt i A.1. Strikk videre til neste merketråd, (merketrådene skal sitte midt i A.1 også til innsnitt 2, 3 og 4). På 1. omgang med innsnitt har du felt 8 ganger (2 ganger på hver side av merketrådene). mvh DROPS Design
04.09.2023 - 14:16Anja wrote:
Ik moet nu het linkervoorpand gaan breien. Ik snap niet hoe ik moet beginnen . Kun je mij meer uitleg geven?
24.06.2023 - 17:41DROPS Design answered:
Dag Anja,
Je begint midden voor en aan de verkeerde kant te breien. De steken van het achterpand en het rechter voorpand kom je verder niet aan. Eventueel zou je die ook even op een hulpdraad kunnen zetten. Je neemt eerst 1 steek op in de geminderde steek midden voor en deze brei je dan gelijk samen met de eerste steek op de linker naald. Dan volg je het patroon verder volgens de beschrijving.
25.06.2023 - 17:58Lianne wrote:
Hallo, ik kom er niet helemaal uit nu ik het linker en rechter voorpand apart moet breien. Moet ik nu alle steken op een hulpdraad zetten? Of hoe kom ik van het armsgat naar de mindering in het midden van de v hals?
22.06.2023 - 21:04Louise wrote:
Jeg forstår ikke denne passage: Gentag A.1 totalt 4 gange i højden = 168-188-208-228-256-284 masker. Hvorfor er det ikke angivet i cm. fra kanten? Mvh. Louise
09.04.2023 - 11:57DROPS Design answered:
Hej Louise, målet er angivet i cm og er fra kanten :)
13.04.2023 - 15:04Anna wrote:
Buongiorno Ho avviato 200 maglie con i ferri circolari n 3 il .Però subito dice di passare con i ferri n2 ,5 x l'elastico mi sono confusa Grazie mille per la disponibilità
15.07.2022 - 09:20DROPS Design answered:
Buonasera Anna, il bordo a coste è realizzato sempre con i ferri più piccoli, poi si ritorna ai 3 mm. Buon lavoro!
16.07.2022 - 15:53Ane wrote:
Hei. Hvor kan jeg finne en størrelsetabell? Og hvilken størrelse er det på den modellen bruker?:)
16.06.2022 - 13:38DROPS Design answered:
Hej Ane, du finder en måleskitse nederst i opskriften. Her ser du hvordan du vælger størrelse og læser skitsen: Således læser du måleskitsen
17.06.2022 - 08:49Any De Lezel Couture , Marie Darchy wrote:
Bonjour je souhaiterais savoir s il est possible de faire une encolure un peu moins profonde. Je vous remercie pour votre réponse.
13.06.2022 - 18:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Darchy, fort probablement, il vous suffit de commencer l'encolure plus tard, recalculez bien vos diminutions d'encolure-V pour qu'elles tombent juste pour les bretelles. Bon tricot!
14.06.2022 - 09:11Nini wrote:
Als ik rondbrei trekt het breiwerk naar één kant. Hoe kan ik dit voorkomen?
07.06.2022 - 15:43DROPS Design answered:
Dag Nini,
Dit zou normaliter niet moeten gebeuren en ik heb eerlijk gezegd geen idee wat de reden is. Bij haken in de rondte zou dit wel kunnen gebeuren, maar bij breien blijven de steken boven elkaar zitten. Komt het misschien door het patroon in de zijkanten en de gaatjes in de panden? Of heb je dit ook als je alleen tricotsteek breit in de rondte?
10.06.2022 - 22:18