Forest Vines Kids Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónið peysa fyrir börn úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, hringlaga berustykki og áferðamynstri með klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 40-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 9,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju - ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 7 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5½-6½-7½-6½-7½-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 71-75-77-79-79-81 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsi tvöfaldan og við frágang er hann ca 3 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð við miðju að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út 0-2-0-4-10-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 71-77-77-83-89-89 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 91-99-99-107-115-115 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá prjónamerki við háls. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2B og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.2 eru 135-147-147-159-171-171 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.2 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.3B (= 5 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.3 eru 175-191-191-207-223-223 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.3 þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 178-190-198-210-222-234 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 30-32-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 50-54-56-60-64-68 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 30-32-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 122-130-134-142-150-158 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 14-17-20-23-26-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-15-15-15-17-17 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 135-145-149-157-167-175 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 34-36-38-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum á hæðina = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 17-20-24-28-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 28-30-32-34-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 22-25-29-34-37-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Liza wrote:
Hi, I have few questions regarding the pattern. When you say complete A1, does that mean combining A1A and A1B? For example, after the first row of A1 in the Yoke, I should repeat the pattern 3k 1P 3k 2p on the wrong side followed by 3p 1fisherman 3p 2fisherman on the right side? thanks
28.12.2023 - 22:20DROPS Design answered:
Dear Liza, "After the first row in A.1 there are 91-99-99-107-115-115 stitches. Complete A.1, then repeat the 2 rows with stars in A.1 until the piece measures 3-3-3-4-4-4 cm from the marker on the neck." You have established the pattern with A.1a and A.1b in the first row and have increased to 91-99-99-107-115-115 stitches. Now continue working both charts upwards, row by row, as established on the first row. After working all 6 rows of both charts, you will have completed A.1 ( or a repeat of A.1). Now repeat the last 2 rows of the chart, in the previously established pattern (so A.1a 10 to 13 times, depending on the size and A.1b). Happy knitting!
29.12.2023 - 00:31Dagny Djurhuus wrote:
Hvad betyder en rapport i højden . Har aldrig set ordet rapport i en strikkeopskrif før, ved ikke hvad det betyder.
20.09.2023 - 10:36DROPS Design answered:
Hei Dagny. Om du scroller deg nederst på oppskriften ser du flere diagrammer. I oppskriften gjentar du f.eks A.1A flere ganger i bredden = gjentar rapporten A.1A i bredden. Når det står 1 rapport i høyden, gjentar du diagrammet i høyden (oppå hverandre). F.eks de 2 øverste pinnene i diagram A.2A er vist med en stjerne. Det er disse 2 radene som gjentas i høyden. mvh DROPS Design
26.09.2023 - 14:44Lena wrote:
Ska beställa garn till barnkofta 7/8 40-8 med Flora (200 g) och Kid-Silk (100 g) Jag hittar inte i mönstret när jag ska använda Kid -Silk. Vänligen Lena
23.07.2023 - 15:00DROPS Design answered:
Hei Lena. Du strikker Flora og Kid-Silk samtidig = det strikkes med 2 tråder. Slik starter oppskriften: Lägg upp 71-75-77-79-79-81 maskor (inklusive 5 framkantsmaskor i varje sida mot mitt fram) på rundsticka 5 med 1 tråd i varje kvalitet (= 2 trådar). mvh DROPS Design
25.07.2023 - 09:27Sophie wrote:
Hallo, ich bin gerade beim Aufteilen der Passe. Ist es richtig, dass in den ersten 39 Maschen die Blenden-Maschen schon dabei sind? Und kann man die 6 neuen Maschen anschlagen, wenn man später die stillgelegten Maschen aufnimmt?
31.01.2023 - 21:32DROPS Design answered:
Liebe Sophie, ja richtig, die BlendenMaschen sind in den 39 ersten Maschen der Reihe mitgezählt; diese Lektion zeigt ab Bild 8 wie die Aufteilung gearbeitet wird, z.B. wie die neuen Maschen angeschlagen werden (Bild 11) und wie die Ärmel später gestrickt werden (Bild 18). Viel Spaß beim stricken!
01.02.2023 - 08:48Sophie wrote:
Hallo, kann ich mit Garngruppe C auch eine einfache Halsblende stricken? Oder passt das nicht zum Muster?
17.01.2023 - 21:44DROPS Design answered:
Liebe Sophie, also gerne können Sie hier mit 1 Faden der Garngruppe C anstatt mit 2 Fäden der Gargruppe A stricken - die Halsblende können Sie auch verkürzten wenn Sie es so lieber möchten. Viel Spaß beim stricken!
18.01.2023 - 09:48Sophie wrote:
Ich möchte die Jacke Forest Vines Kids stricken. Bitte helfrn Sie mir bei Garnberechnung. Ich würde gern mit Big Merino aus der Garngrppe C stricken und zwar Gr. 134/140 . Wie viel Garn werde ich dazu brauchen? Mit der Umrechnung bei 2 verschiedenen Garnen von A zu einem Garn aus Gruppe C bin ich leider nicht zurecht gekommen. Im Voraus vielen Dank!
02.01.2023 - 18:30DROPS Design answered:
Liebe Sophie, hier wird es erklärt, wie man das umrechnet - siehe 2 Fäden unterschiedlicher Garne durch 1 Faden ersetzen. Gerne wird Ihnen auch Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2023 - 09:11