DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

City Stride

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með laskalínu. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni í útaukningu í laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-2
DROPS Design: Mynstur as-152
Garnflokkur C eller A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-200-225-250-275 g litur 05, beige

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 9,4.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm eftir kant í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-9-9-9 cm millibili.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 7 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið skiptist fyrir klauf og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 107-107-115-115-129-133 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan einungis með 1 þræði. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að framan.
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja snúin slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10-12-12-16-16 lykkjur, A.1 (= 7 lykkjur), * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkja snúin slétt, A.1 * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-20-24-24-30-34 lykkjur, 1 lykkja snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkja snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10-12-12-16-16 lykkjur, 1 lykkja snúin slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Síðar á að brjóta uppá kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang þá verður kanturinn ca 6 cm.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 11-11-13-13-17-17 lykkjur og fækkið um 2-1-1-1-2-0 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-25-25-31-35 lykkjur og fækkið um 3-1-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 18-20-24-24-30-34 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 11-11-13-13-17-17 lykkjur og fækkið um 2-1-1-1-2-0 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 94-98-106-106-118-126 lykkjur eftir í umferð. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu), alls 16-18-20-22-25-26 sinnum = 222-242-266-282-318-334 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 37-40-44-46-52-55 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-78-82-94-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 37-40-44-46-52-55 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-162-178-190-214-230 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu – endið eftir umferð frá röngu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 40-43-47-50-56-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 44-48-52-56-62-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 5 kantlykkjur við miðju að framan og 2 lykkjur í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkja snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón.
Frá röngu er stroffið prjónað þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja snúin brugðið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 40-43-47-50-56-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 44-48-52-56-62-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 5 kantlykkjur við miðju að framan og 2 lykkjur í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkja snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

BAKSTYKKI:
= 70-76-84-90-102-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 77-83-93-99-113-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka, en 2 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

ERMI:
Setjið til baka 42-46-50-54-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-62-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7-4-3½-2½-1½-1½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-10 sinnum = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-26-24-23-20-18 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið þráðinn frá og festið. Ermin mælist ca 40-38-36-35-32-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í gegnum lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju), prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunum af vinstra prjóni (= klukkuprjónslykkja)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Anne Jochumsen wrote:

Jeg er ved at strikke ærmer og kan ikke få målene til at passe. Jeg stikker en str. L og jeg kan ikke få det til at passe at ærmet kun skal være 36 cm fra armhulen og ud til håndledet. Kan I hjælpe mig med de rigtige mål?

13.11.2023 - 00:08

DROPS Design answered:

Hej Anne, du har allerede 26 cm til ærmekuppel og når du lægger de 24+12 masker til så bliver ærmet totalt 62 cm lang :)

15.11.2023 - 07:32

country flag Jo-Ann Driedger-Kinash wrote:

I am knitting the Drops Design knitted jacket. Following the diagram it would appear that the Fisherman’s knit is every second row which puts one design in the front the other in the back. What am I doing wrong

05.04.2023 - 15:25

DROPS Design answered:

Dear Jo-Ann, since it's worked every 2nd row, it's worked always on an odd-numbered row, which are always worked on the right side. So the Fisherman's knit is always on the right side. Happy knitting!

06.04.2023 - 20:24

country flag Jo-Ann Driedger-Kinash wrote:

I am knitting Drops Design City Stride jacket. Following the diagram means the Fisherman’s knit is every second row and puts one pattern in the front and the other in get back. What am I doing wrong

05.04.2023 - 15:07

DROPS Design answered:

Dear Jo-Ann, since it's worked every 2nd row, it's worked always on an odd-numbered row, which are always worked on the right side. So the Fisherman's knit is always on the right side. Happy knitting!

06.04.2023 - 23:18

country flag Janine wrote:

Beste, Ik ben het patroon City Stride aan het breien. Bij de dubbele hals staat er dat je na de 5 ribbelsteken begint met een gedraaide recht. Als ik alle pennen zo brei, dan krijg ik gerstekorrel. Er staat niet dat ik aan de verkeerde kant de steken zo moet breien als ik ze tegen kom. Alleen dan krijg ik boordsteek. Wat is nu wat ik moet doen? Op de foto zie ik toch echt boordsteek. Graag uw hulp, vast dank, Groet, Janine

07.01.2023 - 22:54

DROPS Design answered:

Dag Janine,

Het staat inderdaad niet duidelijk aangegeven, maar waar je gedraaid recht op de goede kant breit, moet je gedraaid averecht op de verkeerde kant breien.

08.01.2023 - 10:11

country flag Gertrud wrote:

När man stickar resårstickning längst ner på ärmarna så blir det sån gles och tunn stickning. Beror det på att man inte stickar vridna avigs m ? Bara vridna räta. Ska det vara så man gör iallafall?

17.01.2022 - 20:43

DROPS Design answered:

Hei Gertrud. Man strikker vrangborden med 1 vridd rett / 1 vrang for å skape en annen struktur enn en "vanlig vrangbord med 1 rett / 1 vrang. Om du heller vil strikke 1 rett / 1 vrang istedenfor, kan du fint gjøre det. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 13:00

country flag Janet Sui wrote:

Hello, I would like to know if it's ok or not to use 1 strand of yarn instead of 2 strands when casted on for the neck. I didn't realize to use 2 strands until half way done... hopefully it's ok and I don't have to take it apart... Could you please let me know? Thank you very much for your kind help!

02.01.2022 - 17:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sui, this jacket is worked with only 1 strand Brushed Alpaca Silk, only cast on is worked with 2 strands to keep an elastic edge (see this video as an example). Just remember to check and keep correct tension. Happy knitting!

03.01.2022 - 12:34

country flag Berber wrote:

Ik kom er niet uit. Het werk verdelen voor het lijf en mouwen. Ik moet 6 steken opzetten, in de zijkant van de mouw. Ik begrijp hieruit dat ik die moet zetten op de hulpdraad? Of op rechter-en linkervoorpand?

09.12.2021 - 09:44

DROPS Design answered:

Dag Berber,

Je breit de eerste 37-40-44-46-52-55 steken zoals hiervoor en op dezelfde naald waarmee je aan het breien bent zet je 6 steken op. De volgende 42-46-50-54-60-62 steken zet je op een hulpdraad. Dan ga je verder met breien met de naald waar je mee bezig was. Dus je had zojuist 6 steken op die naald gezet en nu brei je verder over het achterpand. Het zelfde doe je bij de andere mouw.

09.12.2021 - 14:56

country flag Berber wrote:

Ik kom er niet uit. Het werk verdelen voor het lijf en mouwen. Ik moet 6 steken opzetten, in de zijkant van de mouw. Ik begrijp hieruit dat ik die moet zetten op de hulpdraad? Of op rechter-en linkervoorpand?

09.12.2021 - 09:43

country flag Aase Sydness wrote:

Oppskrift drops 227-2 har et diagram A1 Er der video av det? Forstår ikke «stikk Høyre pinne gjennom masken fra forrige rad osv. … =patentmaske?

06.11.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Hei Aase. Ikke helt lik diagramikon, men teknikken er den samme. Å stikke høyre pinne gjennom masken fra forrige rad (dvs gjennom masken under neste maske), strikk 1 maske rett og slipp maskene av venstre pinne. Hvordan strikke 1 rett i masken fra forrige omgang mvh DROPS Design

08.11.2021 - 14:18

country flag Gertrud Nyberg wrote:

Förstår inte hur jag ska göra på varven från avigsidan ? På rätsidan stickar jag en vriden rät maska och en vanlig avig maska. Men på avigsidan? Ska jag sticka vriden rät maska och vanlig avig maska där ? Eller?

28.10.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Hej Gertrud. De maskor som du stickar vridet räta på rätsidan stickas vridet aviga på avigsidan, och de maskor du stickar vanligt aviga på rätsidan stickar du vanligt räta på avigsidan. (Framkantsmaskorna stickas i rätstickning och A.1 enligt diagram). Mvh DROPS Design

29.10.2021 - 08:06