Memories of Monaco |
|||||||
|
|
||||||
Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-42 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 105 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 31) = 3,4. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. hverja og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í hlutum. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kanta í ermum og kanta að framan. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring og kantar að framan eru prjónaðir fram og til baka í tveimur hlutum frá miðju aftan í hnakka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 107-117-125-137-153-167 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 31-33-35-39-43-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-90-98-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 68-76-80-88-98-106 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 48-54-58-64-72-80 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-15-16-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 35-39-42-46-52-57 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af fyrir handveg í hlið eins og útskýrt er að neðan. Jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg er lykkjum einnig fækkað fyrir v-hálsmáli. Lestu kafla HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu = 31-35-37-41-46-50 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hver umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmál, þ.e.a.s. í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 1 sinni, í annarri hverri umferð alls 4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 2 sinnum og að lokum í 6. hverri umferð alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 48-54-58-64-72-80 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-15-16-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 35-39-42-46-52-57 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af fyrir handveg í hlið eins og útskýrt er að neðan. Jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg er lykkjum einnig fækkað fyrir v-hálsmáli. Lestu kafla HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 31-35-37-41-46-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hver umferð frá réttu) alls 0-2-2-3-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-8-8-10 sinnum. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmál, þ.e.a.s. í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 1 sinni, í annarri hverri umferð alls 4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 2 sinnum og að lokum í 6. hverri umferð alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 14-16-18-18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar prjóna á upp lykkjur fyrir kant að framan. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 135-141-145-153-159-163 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram öllu framstykkinu og hálsmáli að prjónamerki mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 – stillið af að það verði ekki of margar eða of fáar lykkjur). Snúið og prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kantur að framan mælist ca 2½ cm, fellið af fyrir 3-3-3-3-4-4 hnappagötum jafnt yfir. 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 lykkjur aðeins stíft og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 8 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði. Prjónið áfram þar til kantur að framan mælist 5 cm. Fellið af frá réttu með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst við prjónamerki mitt aftan í hnakka og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram hálsmáli að aftan og síðan niður meðfram öllu framstykkinu. Snúið og prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kantur að framan mælist 5 cm. Fellið af frá réttu með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. FRÁGANGUR: Saumið saman kant mitt að aftan – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR ERMI: Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst í öðrum handveginum og prjónið upp ca 118-122-126-130-134-138 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 – stillið af að það verða ekki of margar lykkjur eða of fáar lykkjur). Prjónið A.1 hringinn þar til kantur á ermi mælist 4 cm. Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Barbara Passo wrote:
Could I knit the entire neckband as one rather than having a seam in the middle?
10.11.2023 - 17:08Laura Hernandez wrote:
Hello! I am struggling with the invisible side seam when I get to the ribbed edges of the vest under the armholes. Is there any video or tutorial? Thanks!
16.04.2023 - 21:13DROPS Design answered:
Dear Mrs Hernandez, we show in this video how to make an invisible side seam. Happy assembly!
17.04.2023 - 10:02Villemin wrote:
Modèle. 227 / 42 Après avoir monté et tricoté la bande de cotes, vous demandez de diminuer pour passer en jersey: pourquoi cette diminution ?
07.02.2023 - 18:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Villemin, nous souhaitons conserver la bonne largeur, or, pour la même largeur, il faut plus de mailles pour tricoter en côtes avec les aiguilles 3 qu'en jersey avec les aiguilles 5, on va donc diminuer avant de tricoter le jersey et on conserve ainsi la largeur souhaitée. Bon tricot!
08.02.2023 - 08:49Niki wrote:
A szamok nagyon nem stimmelnek. Ha M meretnel vegigcsinalom a leirtam szerint a vallra 8-8 szem marad a vegere. Az elejet 54 szemmel irja, de 54 szemmel nem lesz belole bordasminta mivel paros. Most lebontom, mert igy nem jo, kerlek segitsetek!
06.01.2023 - 07:51Anaïs B wrote:
Je ne comprend pas les diminutions des emmanchures et encolure. Quand est qu'on passe au diminution tout les 4 rangs ou tous les 6 rangs?
20.08.2022 - 16:18DROPS Design answered:
Bonjour Anaïs, les diminutions de l'emmanchure et de l'encolure se font de la même façon mais à un rythme différent, pour les emmanchures: diminuez 0 à 6 x tous les 2 rangs + 6 à 10 x tous les 4 rangs (cf taille); pour 'encolure, diminuez la 1ère fois à 24-29 cm, puis tricotez 3 rangs sans diminuer pour l'encolure et ensuite diminuez 4 x tous les 2 rangs, 2 x tous les 4 rangs et 4-5 x tous les 6 rangs. Bon tricot!
22.08.2022 - 09:48Lone Engen wrote:
Kære DROPS Design. Jeg har nu strikket denne vest i str. L - den passer perfekt, og den er virkelig flot! Blot har jeg alt for meget garn tilbage. Jeg købte de 300 g, som opskriften sagde, men jeg har et helt nøgle + 40 g i overskud. Det er lidt træls :-(
17.01.2022 - 21:48Lone Engen wrote:
Jeg vil gerne strikke denne model på rundpind og så først dele ved ærmegabet. Jeg vil derfor gerne høre, om der er en god grund til ikke at gøre det?? På forhånd tak og venlig hilsen Lone
03.12.2021 - 11:46DROPS Design answered:
Hej Lone, jo men det kan du godt gøre - god fornøjelse! :)
03.12.2021 - 15:26Karen Gejl Petersen wrote:
Kan i ikke prøve at forklare disse to linjer på dansk. symbols = vriden rätmaska från rätsidan, vriden avigmaska från avigsidan symbols = avigmaska från rätsidan, rätmaska från avigsidan
17.10.2021 - 19:24DROPS Design answered:
Hej Karen. Beklagar det, nu är de översatta till dansk i opskriften. Mvh DROPS Design
18.10.2021 - 12:12Sophie wrote:
Vid avmaskningstips ärmhål, ska det vara två RÄTstickade maskor innanför kantmaska, el två slätstickade?
05.09.2021 - 14:33DROPS Design answered:
Hej Sophie. Det ska vara slätstickade maskor. Mvh DROPS Design
07.09.2021 - 09:23Rose wrote:
Love the style and yarn. Really really hope it makes the cut. Love it.
08.08.2021 - 18:37