DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Ice Island

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-10
DROPS Design: Mynstur u-927
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
800-900-1000-1050-1200-1300 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 23 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í.
Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki í (þessi lykkja er alltaf prjónuð sem fyrsta lykkja í A.4), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.9/A.10 þar til þú verður með pláss fyrir alla mynstureininguna, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í A.4.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan.

FRÁ RÉTTU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri).

FRÁ RÖNGU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi.. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi.
Ermar eru settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Berustykkið er síðan prjónað í hring upp að hálsmáli jafnframt sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli mitt að framan. Síðan er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fijtið upp 272-288-304-344-360-392 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff þannig:
1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 (= 18 lykkjur), A.3 (= 26 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 44-52-60-52-60-76 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið.
Haldið svona áfram með stroff – ATH: Í mynsturteikningu A.2 og A.3 eru endurteknar einungis 2 fyrstu umferðir á hæðina.

Nú er eftir 1 umferð þar til stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum í stroffprjóni – þetta er gert þannig:
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 23-27-31-27-31-39 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING,
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri),
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið sléttprjón yfir næstu 46-54-62-54-62-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-13-13-13-13-17 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur,
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri),
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið sléttprjón yfir síðustu 23-27-31-27-31-39 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-7-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 238-254-270-310-326-350 lykkjur. Stroffið er nú tilbúið.

Setjið 1 prjónameri í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 120.-128.-136.-156.-164.-176. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.

Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig:
Prjónið A.4 yfir fyrstu 17-21-25-21-25-31 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.4 yfir næstu 33-41-49-41-49-61 lykkjur (prjónamerki í hlið situr í miðju að þessum lykkjum), prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.6, A.7, A.6, prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjum og prjónið A.4 yfir síðustu 16-20-24-20-24-30 lykkjur.
Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum, fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Nú eru ca 26-28-30-32-34-36 cm að loka máli.
Stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð í mynsturteikningu, fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjurnar = 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir framstykki og 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir bakstykki. Klippið þráðinn.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 19-15-15-19-19-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 75-75-75-83-83-83 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.

Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig:
Prjónið A.4 yfir fyrstu lykkjuna í umferð (prjónamerki situr í þessari lykkju), prjónið A.9 (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur – byrjið í mynsturteikningu við prjónamerki fyrir þína stærð og prjónið mynsturteikningu frá hægri til vinstri), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.10 (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur – byrjið við fyrstu lykkju í A.10 og prjónið frá hægri til vinstri að prjónamerki í þinni stærð). Haldið áfram með þetta mynstur.

Þegar stykkið mælist 8-10-7-8-9-6 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 11-15-17-15-17-19 sinnum = 97-105-109-113-117-121 lykkjur – ATH: Útauknar lykkjur eru fyrst prjónaðar inn í A.9/A.10 þar til nægilegt pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næst nýjar lykkjur prjónaðar í A.4.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-49-48-46-45-43 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu og fellið lykkjur af fyrir handveg þannig:
Fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 86-94-96-100-102-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 4,5 eins og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 388-420-436-484-500-532 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu.
Byrjið umferð í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstri ermi – setjið e.t.v. eitt prjónamerki hér til að merkja byrjun á umferð.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur hvoru megin við öll 4 prjónamerkin eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma).

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu, jafnóðum og lykkjum er fækkað er einnig fellt af fyrir hálsmáli mitt að framan og síðasta umferðin er prjónuð fram og til baka frá miðju að framan.
Þegar ekki er nægilega mikil til af lykkjum til að gera kaðal, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Lestu kaflann LASKALÍNA og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 24-27-30-32-36-38 sinnum og síðan í hverri umferð alls 7-7-6-7-4-4 sinnum.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 55-57-59-60-62-64 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fækkið um 6-6-6-10-10-10 lykkjur jafnt yfir miðju 24-24-24-32-32-32 lykkjur að framan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Setjið síðan miðju 30-32-34-42-46-54 lykkjur á framstykki á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið áfram að byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá. Byrjið frá röngu við háls og haldið áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum í hvorri hlið.

Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru 98-104-102-112-116-124 lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið tvöfaldan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að aftan og prjónið upp ca 134-142-142-162-170-186 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og á prjóni) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma.
Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of vítt – prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 104-108-112-116-120-124 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm.
Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri brugðinni einingu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, svo ekki myndist gat).
Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.01.2022
Leiðrétting 7. mynsturtákn: setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
Yfirfarið á vefsvæði: 15.03.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting í affellingu í tvöföldum kanti í hálsmáli.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = kaðall er prjónaður yfir 2 lykkjur þannig: Hoppið yfir fyrstu lykkjuna á vinstra prjóni, prjónið aðra lykkjuna á vinstra prjóni slétt án þess að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, prjónið síðan fyrstu lykkjuna sem hoppað var yfir slétt, lyftið báðum lykkjum af vinstra prjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Ice Island

@mailleohmaille, France

Ice Island

Maami, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Gunn Brevik wrote:

Jeg skal starte på denne og begynner med erme. Det starter med strikk A.4 over den første masken. Men A4 består av 2 masker. Jeg har 75 masker, men om jeg skal følge beskrivelsen og strikke to masker i A.4 så blir det 76 masker. Kan dere forklare starten mtp A.4? På forhånd takk!

25.04.2024 - 16:39

DROPS Design answered:

Hej Gunn, ØKETIPS (gjelder midt under ermet): Øk 2 masker midt under ermet ved å lage 1 kast om pinnen på hver side av masken med merke i. Strikk slik fra starten av omgangen: Strikk masken med merke i (denne masken strikkes alltid som første maske i A.4), lag 1 kast om pinnen, strikk mønster som før frem til masken med merke i, lag 1 kast om pinnen (= 2 masker økt). På neste omgang strikkes kastene vridd, slik at det ikke blir hull. Videre strikkes de økte maskene fortløpende inn A.9/A.10 til du får plass til hele rapporten, deretter strikkes de neste økte maskene i A.4.

26.04.2024 - 13:47

country flag Heidi Schmitt wrote:

Warum muss ich bei dem Modell ICE Island für das Bündchen erst so viele Maschen aufnehmen, und dann so viele in der ersten Reihe wieder abnehmen? Kann ich nicht gleich die letztlich benötigte Maschenzahl nehmen und das Bündchen gerade hoch stricken?

24.04.2024 - 19:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmitt, damit der untere Rand nicht so eng wird, muss man für die gleiche Breite bzw den gleichen Umfang mehr Maschen für das Bündchen mit den kleineren Nadeln als für das Muster mit den grösseren Nadeln. Beachten Sie, daß Ihre Maschenprobe stimmt, so stimmen die fertigen Maßen genauso wie bei der Skizze. Viel Spaß beim Stricken!

25.04.2024 - 07:53

country flag Aukusti Mäki wrote:

Aiempaan kysymykseeni tarkennus: tarkistin pituuden uudestaan ja nyt työn pituus resori mukaan lukien on 53cm. Raglankavennuskerroksia on nyt 20 tehtynä.

30.03.2024 - 09:40

country flag Aukusti Mäki wrote:

Hei, Teen S-kokoa ja en oikein tiedä, missä vaiheessa minun pitäisi aloittaa takaosan pidennetyn pääntien neulominen? Olen tehnyt 19 raglankavennusta ja työn yhteispituus on jo yli 55cm. Teenkö ensin kaikki raglankavennukset ja sitten aloitan pääntien?

29.03.2024 - 17:36

DROPS Design answered:

Työ jaetaan pääntietä varten, kun työn pituus on 55 cm. Eli jaat työn pääntietä varten ennen kuin olet tehnyt kaikki raglankavennukset ja jatkat raglankavennuksia jakokohdan jälkeen.

02.04.2024 - 17:59

country flag Anja Markus wrote:

Goedendag,\r\nOngeveer 2 weken geleden heb ik een bericht verzonden met daarin 2 vragen. Helaas heb ik daar (nog) geen antwoord op gekregen. Is het mogelijk dat u aan de hand van mijn e-mail adres dit bericht kunt terugvinden en ik alsnog een antwoord krijg. Ik zou heel graag deze trui willen afmaken. Alvast heel erg bedankt. Groet, Anja

12.03.2024 - 13:13

country flag Olga wrote:

Riformulo la domanda, le misure del modello sono state ottenute lavorando col 4,5. Con il 4,5 avete ottenuto il campione 10x10cm con 20 maglie e 26 righe ? Grazie

09.03.2024 - 19:56

DROPS Design answered:

Buonasera Olga, si, il campione è stato ottenuto con il numero di ferri più grande: deve lavorare il maglione con il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

11.03.2024 - 23:43

country flag Veerle Van Coillie wrote:

– denk om TIP VOOR HET AFKANTEN. Staat er bij het halsgedeelte, ik zie dat nergens staan ?

05.03.2024 - 22:21

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Je hebt gelijk, ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om aan te passen.

06.03.2024 - 21:58

country flag Olga wrote:

Il campione con che n° di ferri è fatto ?

03.03.2024 - 22:14

DROPS Design answered:

Buonasera Olga, il campione viene lavorato con il numero di ferri che le permette di ottenere quanto indicato. Solitamente si usa il n° di ferri più grande. Buon lavoro!

04.03.2024 - 22:31

country flag Lorna wrote:

I am not getting the same effect on the A.7 pattern as your picture. My cables are not raised. The rest of the cabling looks amazing but not my A.7. Myself (and a more advanced knitter) have practiced on a smaller swatch only to get same result. Any help or tips would be appreciated :)

02.03.2024 - 19:02

DROPS Design answered:

Dear Lorna, it seems to be an issue with the gauge. Try working tighter than before; it should help raise the cables. Also, if you use a different yarn from Karisma (or another 100% wool not superwash) the result can also be different. For example, with a superwash yarn the cables won't be raised as much either. Happy knitting!

04.03.2024 - 00:30

country flag Mette wrote:

Jeg forstår ikke , når der står at arbejdet strikkes nedefra og op på rund pind, ( str m.) slå 304 masker op og når jeg så har strikket 5 cm rib skal jeg tage ind jeg forstår slet ikke opstart på opskriften

23.02.2024 - 14:35

DROPS Design answered:

Hej Mette, jo du skal følge omgangen som beskrevet i opskriften, for at få mønsteret til at stemme hele vejen rundt :)

01.03.2024 - 14:00