DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Frost Buster Balaclava

Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í perluprjóni með kanti í stroffprjóni.

DROPS 225-7
DROPS Design: Mynstur ai-360
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L
Höfuðmál: Ca 54/56 – 58 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 02, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm - 60 cm fyrir perluprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir stroff.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 115 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjur eru settar á þráð fyrir opi mitt að framan, síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna að loka máli.
Lambhúshettan er saumuð saman á toppnum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í stroffprjóni í kringum opið að framan.

LAMBHÚSHETTA:
Fitjið upp, aðeins laust,115-127 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið 2 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 23-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 92-102 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Eftir stroffið, skiptið aftur yfir á hringprjón í stærð 4,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-5 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 87-97 lykkjur.
Haldið áfram hringinn í perluprjóni þar til stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti í báðum stærðum.
Í næstu umferð eru miðju 17-19 lykkjur settar á þráð mitt að framan, þannig að það myndist op mitt að framan = 70-78 lykkjur á prjóni.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað þegar stykkinu er skipt á toppnum.
Prjónið síðan hettuna eins og útskýrt er að neðan.

HETTA:
Haldið áfram í perluprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 40-42 cm frá uppfitjunarkanti (stykkið mælist ca 26-28 cm frá þar sem stykkinu var skipt mitt að framan). Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. lambhúshettuna og prjónið áfram að óskaðri lengd.
Nú er lykkjum fækkað mitt aftan á hettu. Skiptið stykkinu við prjónamerki mitt að aftan og prjónið hvort stykki til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

FYRRA STYKKI:
= 35-39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í perluprjóni og fellið af í byrjun á hverri umferð frá miðju að aftan þannig: Fellið af 1 lykkju, 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 27-31 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 43-45 cm ofan frá og niður að uppfitjunarkanti.

SEINNA STYKKI:
Prjónið á sama hátt og fyrra stykki.

FRÁGANGUR:
Saumið lambhúshettuna saman á toppnum innan við affellingarkantinn.

KANTUR Í KRINGUM OP MITT AÐ FRAMAN:
Setjið lykkjur af þræði að framan á hringprjón 3,5. Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar 17-19 lykkjur, prjónið síðan upp ca 111 til 125 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum opið að framan = alls ca 128 til 144 lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6-7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Brjótið inn stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.10.2021
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Eftir stroffið, skiptið aftur yfir á hringprjón í stærð 4,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-5 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 87-97 lykkjur.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Michela wrote:

Ciao, È il mio primo lavoro ai ferri. Ho un problema con l'intreccio delle maglie. Ho 70 maglie su un ferro e il filo del gomitolo all'estremità, come procedo con gli intrecci dato che dice dal centro dietro? Cosa significa 2 maglie 2 volte e 3 maglie 1 volta. Mi è chiara la tecnica degli intrecci ma non ho capito in questo caso cosa devo fare. Scusate se sono domande banali ma non so come muovermi. Grazie in anticipo 😊

15.01.2024 - 21:43

DROPS Design answered:

Buonasera Michela, gli intrecci vanno fatti all'inizio del ferro, 1 maglia per una volta, poi all'intreccio successivo 2 maglie, all'intreccio successivo 2 maglie e così via. Buon lavoro!

17.01.2024 - 17:03

country flag Agnieszka wrote:

Jak nabrać oczka wokół otworu na twarz, żeby wyszło ich 111 (oprócz wcześniej pozostawionych 17 oczek). Mnie wychodzi 95 kiedy z każdego otworu pod oczkiem robię nowe oczko plus 1 na szwie. W sumie jest wtedy 112 oczek. Boję się że jeśli zostanę przy takiej ilości oczek ściągacz będzie za ciasny. Co robić?

04.01.2024 - 19:36

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, równomiernie musisz dodać brakujące oczka, czyli z niektórych otworów pod oczkiem powinnaś nabrać nie 1 ale 2 oczka. Jeśli wyjdzie ich za dużo, w pierwszym okrążeniu ściągaczem możesz je zamknąć, nie będzie to widoczne. Pozdrawiamy!

05.01.2024 - 08:43

country flag Nancy wrote:

I'm a little confused about placing the middle stitches mid-front on a thread. Where is mid- front? Is it before or after the beginning of the row?

19.12.2023 - 02:44

DROPS Design answered:

Dear Nancy, the middle front is on the middle of the rounds as rounds started on mid back. You will now work the hood back and forth on needle, the beg of rounds is now the middle of the rows. Happy knitting!

19.12.2023 - 08:04

country flag Ria Van Der Elst wrote:

Neem de markeerdraad mee. Wat doe je dan? Kant de steken af middenachter. Ga verder met deel 1. = 35-39 steken. Waar haal ik die vandaan? Ik begrijp het niet

04.12.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Dag Ria,

De markeerdraad blijft steeds op dezelfde plek op de naald zitten, maar je verplaats hem wel regelmatig mee in de hoogte, na telkens een paar naalden. Deel 1 vindt je onder de paragraaf met de koptekst 'DEEL 1' erboven.

05.12.2023 - 18:10

country flag Silje wrote:

Er det mulig å øke størrelsen på denne slik at den passer et hode på 62 cm? Jeg er ikke så erfaren med strikking, så aner ikke hvordan man skulle regnet ut antall masker, samt vite hvor mange ganger man må felle om man øker antall masker.

30.03.2023 - 22:36

DROPS Design answered:

Hej Silje, Vi kan desværre ikke skrive opskriften om, men den største størrelse vil helt sikkert passe (bare sørg for at du ikke strikker for stramt i forhold til strikkefastheden) :)

13.04.2023 - 10:23

country flag Jeanne wrote:

Bonjour, comment faites-vous avec 115 mailles pour faire le point de riz ? Je commence avec une maille endroit et je termine avec une maille endroit. Merci beaucoup

06.02.2023 - 22:55

DROPS Design answered:

Bonjour Jeanne, tricotez simplement les mailles au point de riz tout le tour, c'est ainsi, avec un nombre impair de mailles, que le début des tours est le moins visible - cf cette vidéo. Bon tricot!

07.02.2023 - 10:44

country flag Tanya B wrote:

Hi. I just need clarification on the “edge around face” section. I see that there is a correction — do I replace the “rib for 6-7” cm with just 4 rounds of rib? Then one round of decrease and cast off after that?

04.01.2023 - 05:31

DROPS Design answered:

Hi Tanya, The corrections apply to after you have cast on and worked the first rib at the beginning of the balaclava (when you change to needle size 3.5 mm). So around the face-opening, work rib as stated for 6-7 cm before casting off loosely. Happy knitting!

04.01.2023 - 07:33

country flag Tracey Taylor wrote:

Hi Could this be knitted flat, on two needles? I have knitted a few things meant for circular and they’ve turned out ok but I just thought I’d ask before I tried! Thanks in advance for answers I may get. 🙂

12.02.2022 - 11:11

DROPS Design answered:

Dear Tracey, you may check the following lesson to help you adapt the pattern to knit flat: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=23 Happy knitting!

13.02.2022 - 19:53

country flag Mieke Poll wrote:

Zoek patroon van een poncho

25.11.2021 - 09:32

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Via deze link vind je poncho's voor dames.

26.11.2021 - 16:56

country flag Katja wrote:

Suomenkielisessä ohjeessa on pieni virhe ja unohdetaan mainita, että joustinneuleen jälkeen vaihdetaan takaisin paksumpiin puikkoihin. Itse tätä ihmettelin hetken….

14.11.2021 - 09:02