Sugar Cane Set |
|
|
|
Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi og vesti úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni, með kaðli og tilfærslum á lykkjum. Stærð S til XXXL.
DROPS 225-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband): Til að eyrnabandið sitji fallega á höfðinu, verður að prjóna ca 6-7 cm styttra en ummál höfuðs. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar telja á lykkjurnar er uppslátturinn ekki talin sem eigin lykkja. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er notið við frágang á eyrnabandi. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift – þetta á við um í hverri umferð, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og prjónið kantlykkju. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið kantlykkju, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING (á við um vesti): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 3 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjóni sömu lykju slétt einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í klukkuprjóni – takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir útaukningu (þ.e.a.s. frá röngu), koma sléttu lykkjurnar til með að prjónast slétt án þess að prjóna þær saman með uppslætti, þar sem uppslátturinn hefur ekki verið gerður. ÚRTAKA (á við um vesti): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum ef fækkað á eftir fyrstu lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið 8 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki í eins og áður, lyftið næstu lykkju + uppsláttur (= 1 klukkuprjónslykkja) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og steypið síðan lyftu lykkjunni + uppslætti yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á undan annarri lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur + uppsláttur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Stuttu endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndist kaðall fyrir miðju framan á eyrnabandi. EYRNABAND: Fitjið upp 19-21-23 lykkjur aðeins laust á prjón 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjónast slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið eins og útskýrt er að ofan. Sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar eyrnabandið mælist ca 49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Stykkið er nú Stykkið er núna ferningur, brjótið ferninginn saman á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.1. Nú eiga löngu hliðarnar að eyrnabandinu að leggjast inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.2. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.3. Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig: Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.4 (þ.e.a.s. yfir enda á stykki), saumið með þéttu varpspori með 1 lykkju í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið. Klippið þráðinn og festið enda. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á stykki. ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru stykkin sett saman á öxlum. Að lokum er prjónaður hár, tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-94-100 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjónast slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð: Prjónið kantlykkju, * prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með kantlykkju. Nú eru 59-63-67 lykkjur í umferð. Sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA. Haldið áfram fram og til baka með 2. og 3. umferð í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-48-50 cm, fellið af miðju 19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi eru felldar af 2 lykkjur = 18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið klukkuprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52 cm er fellt af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn dragist ekki saman, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88-94-100 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjóna slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð: Prjónið kantlykkju, * prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með kantlykkju. Nú eru 59-63-67 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 2. og 3. umferð í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Þegar stykkið mælist 17-19-21 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í 6.-8.-10. lykkju inn frá hvorri hlið (= 1 lykkja brugðið í klukkuprjónsmynstri). Í næstu umferð frá réttu, byrjar tilfærsla á lykkjum. Lykkjum er fækkað og aukið út þannig: Prjónið fyrstu 6-8-10 lykkjur eins og áður, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju – sjá ÚTAUKNING, prjónið næstu 8 lykkjur eins og áður, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir á undan næstu lykkju, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 8 lykkjur eins og áður, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju – munið eftir ÚTAUKNING, prjónið síðustu 6-8-10 lykkjur eins og áður. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur og fækkað um 4 lykkjur í umferð. Fækkið lykkjum og aukið svona út í 14. hverri umferð (þ.e.a.s. í 7. sýnilegri klukkuprjónslykkju á hæðina) alls 7 sinnum. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46 cm. Setjið nú miðju 11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum = 18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið klukkuprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52 cm er fellt af með sléttum lykkjum, en til til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. HÁR KRAGI: Byrjið ca mitt að aftan og prjónið upp 26 lykkjur fram að lykkjum á þræði mitt að framan, prjónið lykkjur af þræði í klukkuprjóni eins og áður, prjónið upp 27 lykkjur fram að miðju að aftan = 64 lykkjur. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, en stillið af að klukkuprjónslykkjurnar af þræði haldi áfram upp yfir hálsmál í mynstri eins og áður. Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 24 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman, fellið uppsláttinn af slétt eins og eigin lykkja. Kanturinn í hálsi er annað hvort brettur út eða inn eins og á myndinni. Ef bretta á kant í hálsmáli inn, er hægt að sauma hann niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Pirjo wrote:
Miksi en saa vinoiksi noita raitoja, kuten kuvassa? Keskeltä ei vähene silmukat.
28.11.2023 - 05:25DROPS Design answered:
Etukappaleen lisäykset ja kavennukset aloitetaan, kun työn pituus on 17-19-21 cm. Kunhan neulot ohjeen mukaisesti, työhön muodostuu vinoraitoja. Eli sinun tulee neuloa näin: Neulo ensimmäiset 6-8-10 silmukkaa kuten aiemmin, lisää seuraavaan silmukkaan 2 silmukkaa (lue LISÄYSVINKKI), neulo seuraavat 8 silmukkaa kuten aiemmin, kavenna 2 silmukkaa (lue KAVENNUSVINKKI), neulo kunnes seuraavaa merkkiä edeltää 11 silmukkaa, kavenna 2 silmukkaa (muista KAVENNUSVINKKI), neulo seuraavat 8 silmukkaa kuten aiemmin, lisää seuraavaan silmukkaan 2 silmukkaa (muista LISÄYSVINKKI), neulo loput 6-8-10 silmukkaa kuten aiemmin.
04.12.2023 - 17:29Camilla wrote:
Hur gör man omslagsstygn, ska göras i monteringen av pannbandet?
11.01.2023 - 13:54DROPS Design answered:
Hej Camille, vi har en video som viser hvordan man monterer pandebåndet. Du finder videoen nederst i opskriften :)
12.01.2023 - 15:20Ursel wrote:
Gibt es eine Erklärung, wie man das Stirnband verdreht, um die Optik an der Vorderseite zu bekommen? Vielen Dank!
24.11.2022 - 21:23DROPS Design answered:
Liebe Ursel, ja genau, dieses Video zeigt, wie man so ein Stirnband fertig stellt. Viel Spaß beim stricken!
25.11.2022 - 08:34Gabi wrote:
Ein sehr schöner Pullunder. Wo kann ich denn die Maßtabelle/Maßskizze finden?
27.09.2022 - 05:49DROPS Design answered:
Liebe Gabi, Maßskizze gibt es für den Pullunder keine, aber Maßen finden Sie oben bei dem Kopfzeilen. Viel Spaß beim stricken!
27.09.2022 - 09:18Mathilde wrote:
Bonjour!\r\nTout d’abord j’adore votre site qui est merveilleusement bien fait :)\r\nJe me demandais: pour la grosseur des aiguilles, quand vous indiquez par exemple no 4, est-ce que cela signifie que ce sont des aiguilles de 4mm ? \r\nMerci !\r\nMathilde
02.03.2022 - 15:56DROPS Design answered:
Bonjour Mathilde, tout à fait, les explications en français reprennent le système métrique - si vous voulez la conversion des aiguilles en taille US, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et choisissez "English (US/inch)". Bon tricot!
02.03.2022 - 17:39Ellis wrote:
U geeft aan dat er 2 mogelijke alpacagarens te gebruiken zijn (2draden drops alpaca A of 1 draad alpaca B) het aantal bollen voor draad uit B categorie staat er niet bij maar beter lijkt me om ook het aantal meters aan te geven zodat er evt. ook voor ander garen gekozen kan worden wat dan makkelijker om te rekenen is. dag,👋
15.02.2022 - 18:29Anna wrote:
Beim Stirnband steht der Stricktipp "es 6-7cm enger als der KU" zu stricken. Ist dies in den Größen schon berücksichtigt? Oder messe ich KU, ziehe 6cm ab und wähle dann meine Größe? Danke
10.02.2022 - 06:10DROPS Design answered:
Liebe Anna, dies ist schon berücksichtigt, z.B. in die 1. Größe strickt man bis die Arbeit 49 cm misst (+6 cm ) = ca 54-56 cm Kopfumfang. Viel Spaß beim stricken!
10.02.2022 - 09:25Sabine wrote:
Jeg er i tvivl om starten på vest opskriften: "strik 2 masker ret sammen (= 1 maske taget ind), slå om, tag 1 maske løs af pinden som om den skulle strikkes vrang *... Der er nu 59-63-67 masker på pinden." Hvorfor vil vi gerne tage masker ind på den allerførste pind? og hvis jeg strikker to sammen og slå om så bliver der vel ikke færre masker?
18.01.2022 - 11:46DROPS Design answered:
Hei Sabine. Jo, patentstrikk er veldig tøyelig og da er det viktig at oppleggskanten ikke strammer. Så da legger man opp mange masker for så å minske maskeantallet før man starter på patentstrikk. mvh DROPS Design
18.01.2022 - 14:10JUNGHWA CHO wrote:
"Work the first 6 stitches as before, increase 2 stitches in the next stitch, work the next 8 stitches, decrease 2 stitches work until there are 11 stitches left before the next marker, decrease 2 stitches, work the next 8 stitches, increase 2 stitches in the next stitch, work the last 6 stitches. " Should I have to increase 2 stitches after the first 6 stitches each time? Are the other parts the same? When I tried it, it didn't look the same as the clothes on the screen.
17.12.2021 - 19:55DROPS Design answered:
Dear Junghwa, yes, you increase 2 stitches after the first 6 stitches each time you work this way, that is, every 14th row. Happy knitting!
19.12.2021 - 20:44Lena Lilja-From wrote:
Önskar en bra förklaring hur jag gör "förskjutningen"
02.12.2021 - 10:01DROPS Design answered:
Hej Lena. Vilken del av förskjutningen är det du har problem med? Du sätter en markör det antal maskor in som uppges för din storlek på varje sida. Sedan ökar du maskor på utsidan av markörerna och minskar på insidan enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design
02.12.2021 - 10:55