Northern Knight |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlakróks-mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 227-64 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA-1 : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 26. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla 25. og 26. hverja lykkju saman – sjá ÚRTAKA-2. ÚRTAKA-2: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, frá miðju að aftan. Stroffið er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu. Hællinn er heklaður fram og til baka. Síðan er fóturinn heklaður í hring, en snúið er við í hverri umferð alveg eins og á stroffi. STROFF / LEGGUR: Heklið 53-57-59 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af 52-56-58 loftlykkjum = 52-56-58 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið umferð með ör í A.1 hringinn í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram fram og til baka svona með því að hekla aðra hverja umferð frá réttu og röngu. Þegar stykkið mælist 4 cm – stillið af að fækkað sé um 2-1-3 fastalykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá ÚRTAKA-1 = 50-55-55 lykkjur. Nú er mynstur heklað frá réttu þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 45-50-50 lykkjur (= 9-10-10 mynstureiningar með 5 lykkjum), heklið fyrstu 4 lykkjur í A.4 – síðasta lykkjan í A.4 sýnir fyrstu lykkju í umferð, þ.e.a.s. A.2 og er með í mynsturteikningu til að sýna hvernig stuðlakróka-lykkjurnar eru heklaðar í lok umferðar. Haldið svona áfram með aðra hverja umferð frá réttu og röngu. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur A.x á hæðina. Endurtakið A.x þar til stykkið mælist ca 18-18-18 cm eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 7-8-9 cm fyrir hæl) – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.x. Klippið þráðinn. Nú eru sett 2 prjónamerki í stykkið séð frá réttu þannig: Byrjið í byrjun á umferð, hoppið yfir fyrstu 20-20-20 lykkjurnar, setjið eitt prjónamerki hér (síðar byrjar umferðin frá þessu prjónamerki), hoppið yfir næstu 16-16-16 lykkjur (= ofan á fæti), setjið eitt prjónamerki hér. Nú eru 14-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. HÆLL: Nú er heklað áfram fram og til baka. Byrjið eftir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og heklið frá röngu þannig – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 34-39-39 lykkjum (hoppið yfir 3 loftlykkjur sem voru í byrjun á umferð mitt að aftan) og fækkið jafnframt um 6-9-7 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 fastalykkjur fyrir hæl. Snúið og heklið frá réttu með 1 stuðul í hvern stuðul. Haldið áfram fram og til baka með fastalykkjum frá röngu og stuðlum frá réttu þar til stykkið mælist 5-6-7 cm frá skiptingu (= 23-24-25 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8-9-10 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-2, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9-10-11 lykkjum = 24-26-28 fastalykkjur. Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 6-7-8 lykkjum, * heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 6-7-8 lykkjum = 20-22-24 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki mitt í þessa umferð (= mitt aftan á hæl). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Stykkið mælist ca 25-26-27 cm alls. Klippið þráðinn þannig að það verði ca 25 cm eftir fyrir frágang. FRÁGANGUR: Brjótið niður 20-22-24 kant framan á hæl þannig að stykkið liggi tvöfalt og saumið saman síðustu umferð sem var hekluð mitt undir fæti. Festið þráðinn FÓTUR: Byrjið mitt undir fæti (þ.e.a.s. þar sem saumað var) og heklið frá röngu þannig: Heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir meðfram hlið á hæl þar til 1 cm er eftir á undan 16-16-16 lykkjum á fæti, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar á undan 16-16-16 lykkjum, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri = 13-14-15 fastalykkjur frá miðju að neðan og upp að stroffi), heklið mynstur eins og áður yfir næstu 16-16-16 lykkjur á fæti, heklið meðfram hlið á hæl í annarri hliðinni þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir niður að byrjun á umferð = 42-44-46 lykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir fyrstu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir, heklið mynstur eins og áður yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 10 lykkjur, A.4 yfir næstu 5 lykkjur, heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir síðustu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir = 36-38-40 stuðlar. Haldið áfram fram og til baka með mynstri yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og aðra hverja umferð með stuðlum og fastalykkjum yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð (nú er hekluð önnur hver umferð frá réttu og röngu eins og áður). Þegar stykkið mælist 18-20-23 cm mælt frá prjónamerki mitt aftan á hæl – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu með A.x á hæðina, heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju og fækkið jafnframt um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 36 lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu/næstu 2 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 27 lykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í fyrstu/næstu lykkju, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 18 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið allar 2 fastalykkjur saman 2 og 2 = 9 fastalykkjur. Fóturinn mælist ca 22-24-27 cm. Klippið þráðinn og þræðið upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið framan á tátilju. Herðið á þræði, þannig að opið lokist og festið vel. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Julia wrote:
Kann es sein, dass die Anleitung fehlerhaft ist? Die Längsstriche sind FM oder? Und bei A3 das erste Dreifach-Reliefstäbchen ist eigentlich das mit dem Kreis und nicht mit der Raute, oder? Wenn ich nach dem 1. Dreifach-Reliefstäbchen ein Stäbchen in die nächste Masche häkeln soll, dann hat der Rapport 6 Maschen und nicht 5. Das ergibt alles keinen Sinn. Ich verstehe die Anleitung leider überhaupt nicht. Danke für die Hilfe.
30.09.2023 - 20:33DROPS Design answered:
Liebe Julia, bei der 5. Reihe ja stimmt - dieses Dreifachstäbchen wird mit 1 Stäbchen zusammengearbeitet so sind es nur 1 Masche. Viel Spaß beim häkeln!
02.10.2023 - 10:12Ingrid Bär wrote:
Das Muster ist echt klasse, das werde ich auf jeden Fall mal ausprobieren, gibt schöne hausschuhe für den Winter. Danke schön
28.08.2022 - 08:42Crickx Lauranne wrote:
Bonjour, serait-il possible d'avoir l'image avec les mesures ? Car j'ai suivi le tuto à la lettre pour le 41-43 et c'est fort fort large au niveau du molet alors que niveau hauteur et le pied en lui-même c'est impeccable. Merci 😊
05.10.2021 - 21:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Crickx, nous n'avons pas de schéma pour les chaussons, pensez à bien vérifier et surtout conserver votre tension en largeur, vous devez avoir 17 brides = 10 cm. Bon crochet!
06.10.2021 - 07:27