Frosted Fruit Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, kúlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-23 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 2,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þangað til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Þegar öll stykkin hafa verið prjónuð til loka eru stykkin saumuð saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 11. umferð í A.1, fitjið upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 4-4-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni (= 8-8-8-9-9-9 lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli) = 31-32-33-33-35-37 lykkjur. Þegar 1 umferð er eftir í A.1 er stykkið lagt til hliðar. Prjónið vinstri öxl. Vinstri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 18 lykkjurnar, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 10. umferð í A.2, eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 4-4-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni (= 8-8-8-9-9-9 lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli) = 31-32-33-33-35-37 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í A.2 frá röngu og fitjið upp 9-9-9-11-11-11 lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur á hægri öxl = 71-73-75-77-81-85 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 3-3-3-5-5-5 lykkjur – prjónið brugðið yfir miðjulykkju í stað kúlu í fyrstu umferð, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.6 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-4-4-4-4 sinnum og 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 4-5-5-5-6-7 lykkjur 1 sinni (= alls 10-13-15-17-20-23 lykkjur fleiri í hlið fyrir handveg) = 91-99-105-111-121-131 lykkjur í umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 61-61-61-65-65-65 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 14-18-21-22-27-32 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið á milli mynsturs og kantlykkja í garðaprjóni). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir umferð merktri með svartri eða hvítri stjörnu í A.4 og að í þessari umferð eru auknar út 3-3-4-3-6-5 lykkjur jafnt yfir 14-18-21-22-27-32 lykkjur í sléttprjóni að hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð) = 97-105-113-117-133-141 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu. Ef mynstrið endar í umferð með hvítri stjörnu prjónið STROFF-1 og ef mynstrið endar í umferð með svartri stjörnu prjónið STROFF-2. STROFF-1 (er prjónað þegar endað er í umferð með hvítri stjörnu í A.4 – það er svona sem stroffið er sýnt á myndinni): Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt (þetta eru miðjulykkjur í umferð), 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. STROFF-2 (er prjónað þegar endað er í umferð með svartri stjörnu í A.4): Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 3-3-3-5-5-5 lykkjur brugðið (þetta eru miðjulykkjur í umferð), (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka að 5. umferð í A.1. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar frá réttu fyrir hálsmáli = 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. Hægri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 4. umferð er lokið. Í lok þessarar umferðar (frá röngu) er fitjuð upp 1 ný lykkja fyrir hálsmáli = 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Nýja lykkjan og það sem áður var kantlykkja í garðaprjóni við hálsmál er nú prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Prjónið 2 umferðir til viðbótar með mynstri eins og áður, síðan eru fitjaðar upp 23-23-23-27-27-27 lykkjur í lok umferðar frá röngu fyrir hálsmáli, prjónið frá röngu yfir lykkjur á vinstri öxl þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 6. umferð í A.1 og haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina = 71-73-75-77-81-85 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 24-25-26-25-27-29 lykkjur, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 9-9-9-11-11-11 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir 23-23-23-27-27-27 lykkjur á milli A.1 og A.2. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 3-3-3-5-5-5 lykkjur - prjónið brugðið yfir miðjulykkju í stað kúlu í fyrstu umferð, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.6 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið alveg eins og á framstykki (= alls 10-13-15-17-20-23 lykkjur fleiri í hlið fyrir handveg) = 91-99-105-111-121-131 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón við hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur yfir miðju 61-61-61-65-65-65 lykkjurnar, 14-18-21-22-27-32 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón að hlið. Prjónið afgang af bakstykki á sama hátt og á framstykki. ERMI: Fitjið upp 21-23-23-25-27-29 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið mynstur jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar fyrir ermakúpu – lestu því allan næsta kafla: MYNSTUR: Prjónið mynstur fram og til baka þannig: Prjónið 2-3-3-4-5-6 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.3, prjónið 3 lykkjur brugðið (lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu), prjónið síðustu 7 lykkjur í A.6, prjónið 2-3-3-4-5-6 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 13. umferð í A.3 og A.6, prjónið hóp með kúlum yfir miðju 3-3-3-5-5-5 lykkjur brugðið á ermi – kúlurnar eru prjónaðar eins og útskýrt er í síðustu 4 umferðum og fyrstu umferð í A.5 (þ.e.a.s. prjónið síðustu 4 umferðir í A.5 yfir miðju 3-3-3-5-5-5 maskorna, prjónið síðan fyrstu umferð í A.5, þannig að það myndist hópur með 4 kúlum mitt á ermi). Endurtakið þetta í 32. hverri umferð. ERMAKÚPA: Jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 4-3-3-3-3-2 sinnum, 1 lykkja 1-5-5-6-8-12 sinnum og 2 lykkjur 4-3-4-4-3-2 sinnum í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 8-10-10-10-12-14 lykkjur = 63-67-71-75-79-83 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-10-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður yfir miðju 17 lykkjurnar á ermi og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem ermakúpan var prjónuð til loka, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 9-10-12-13-14-15 sinnum = 45-47-47-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-41-40-39-38-35 cm frá þar sem ermakúpan var prjónuð til loka (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-9-7-9-7 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 55-56-56-56-56-55 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermi við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkantinn á ermakúpu. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með stuttan hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 80 til 88 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum kant í hálsmáli. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 til 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Ana María Morales wrote:
Olvidé decir que en el elástico 2, en la primera hilera después del punto orillo, 16 puntos, los 10 puntos siguientes son 2 derechos y 3 reveses. Cabe destacar que en la espalda de la chaqueta (226/24) la descripción es correcta.
17.08.2022 - 19:45Ana María Morales wrote:
En el hombro izq de la espalda dice: "cuando se haya trabajado la 5ª fila en A3,... Y también en la espalda para ambos hombros hace referencia sólo al diagrama A1. Igualmente sus modelos son buenísimos y siempre miro vuestra página. Gracias
09.08.2022 - 18:38Willemien wrote:
Folklore
24.08.2021 - 16:07Katja wrote:
Mountain Ash, it looks like its berries on the sweater.
16.08.2021 - 10:21Ingrid wrote:
Naam : bosbessen
05.08.2021 - 15:23