DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cork Oak

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-36
DROPS Design: Mynstur ai-348
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-250-250-250 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-125-125-150 g litur 05, beige

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
350-450-450-550-550-550 g litur 08, grábeige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í prjónanúmeri 7.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón og saumað saman. Að lokum er prjónað stroff í kringum handveg og í kringum kant í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 64-72-80-84-92-100 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-62-70-74-82-90 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-15-17-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 53-57-63-67-73-79 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið nú 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og sléttprjón yfir miðju 43-47-53-57-63-69 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-5-5-7-8 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-3-3-4 sinnum (= 6-6-7-8-10-12 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið)= 41-45-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 64-72-80-84-92-100 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-62-70-74-82-90 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-15-17-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 53-57-63-67-73-79 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið nú 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og sléttprjón yfir miðju 43-47-53-57-63-69 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki (= alls 6-6-7-8-10-12 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm, skiptist stykkið fyrir V-hálsmáli þannig:
Setjið miðju lykkjuna í umferð á þráð (= miðjulykkja) – miðjulykkjan á að vera á þræði alveg þar til kantur í hálsi er prjónaður. Setjið lykkjur á eftir miðjulykkju (séð frá réttu) á þráð eða látið þær hvíla á öðrum prjóni og prjónið vinstra framstykki.

Vinstri öxl:
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.

Hægri öxl:
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í lok byrjun á umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 17 cm fyrir klauf í hvorri hlið.

KANTUR í HANDVEGI:
Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp 72 til 84 lykkjur jafnt yfir innan við 1 kantlykkju með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á hringprjón 7. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

V-HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp með 1 þræði af DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á hringprjón 7 ca 91 til 107 lykkjur í kringum hálsmál (meðtalin þessi eina lykkja á þræði að framan = miðjulykkja). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 3.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), en yfir miðjulykkjuna mitt að framan er prjónuð 1 lykkja slétt í stað 2 lykkjur slétt og stillið af að það komi 2 lykkjur brugðið hvoru megin við miðjulykkju mitt að framan.
JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkju mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega að hálsinum og slétta lykkjan kemur til með að fylgja með eins og bein lína mitt að framan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Babé Alberti wrote:

Comment choisir la bonne ...taille L ou XL ? merci

08.05.2024 - 14:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alberti, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver la taille adéquate - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

08.05.2024 - 15:48

country flag Maria wrote:

Hi! Can you please explain more what “ Decrease like this every 2nd row 4-4-5-5-6-6 times and every 4th row 6-6-6-6-6-6 times” for the left and right shoulders of front panel? To me as a beginner, this sounds like just decrease one stitch every other row until I hit the total number of stitches for the shoulder? Thanks!

06.08.2023 - 05:49

DROPS Design answered:

Dear Maria, you decrease 1 stitch for the neck every 2nd row (= every other row) 4-4-5-5-6-6 times (depending on your size) and then every 4th row (that is, 3 rows without decreases and 1 row with decreases or every 2nd row from the same side) 6-6-6-6-6-6 times. Now you should have the correct number of stitches for the shoulders. Happy knitting!

06.08.2023 - 22:02

country flag Sabine wrote:

Hallo ! Wie groß ist denn das Model auf dem Foto und welche Größe trägt sie? das wäre toll zu wissen! Danke und lieben Gruß

05.11.2022 - 23:59

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, unsere Modell tragen entweder S oder M - um Ihre Größe zu finden, messen Sie am besten eine ähnliche Kleidung, die Sie haben und Ihnen gefallen - dann vergleichen Sie diese Maßen mit den in der Maßskizze - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2022 - 08:57

country flag Marion wrote:

Nachdem ich die Abnahme beim V-Ausschnitt für die linke Seite gemacht habe, habe ich noch 16 Maschen übrig. Es sollen noch 10 Maschen übrig sein. Was habe ich falsch gemacht. Die Anleitung sagt, daß bei der Abnahme 10 Maschen abgenommen werden. Die zweite Frage ist - Warum soll neben der Mittelmasche die nächste Masche auch still gelegt werden?

28.01.2022 - 16:57

Marion answered:

Oh man, ich habe herausgefunden, daß ich die Maschen nach dem Bündchen nicht abgenommen habe ..... sorry

28.01.2022 - 17:15

country flag Cornelia wrote:

Hallo,\r\nIch wollte fragen, mit welcher Wolle das Modell auf dem Foto gestrickt wurde und ob man das vielleicht bei allen Fotos ergänzen könnte, die oder im Titeltragen? Ist sonst das erstgenannten das Fotobeispiel?Lieben Dank!

26.12.2021 - 12:55

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, das Modell auf dem Foto wird mit 1 Faden Air + 1 Faden Brushed Alpaca Silk gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 14:39

country flag Susanne Bøhvad wrote:

Der står at man skal lukke af til ærmegab når arbejdet måler 28 cm, på tegningen ser det da ud som om der først skal lukkes af når arbejdet måler 64/66 cm, så hvad er rigtigt ?

03.12.2021 - 23:29

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Du feller av til ærmegab / ermhull /under erme når arbeidet måler 28 cm (om du strikker str. XL), mens hele vesten, fra oppleggskant til skulder måler ca 64 cm. mvh DROPS Design

07.12.2021 - 10:16

country flag Chantal Dionne wrote:

Le diagramme des mesures ne télécharge pas pour ce modèle (226-36). Je sais que vous venez de le mettre en ligne. Je vais revérifier plus tard. Merci pour la belle collection que vous venez de nous partager!

08.10.2021 - 14:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dionne, et merci; nous avons effectivement de nouveau quelques soucis d'affichage des images, nous sommes désolés pour ce désagrément, soyez assurée que nous faisons le maximum pour régler ce problème le plus rapidement possible. Merci pour votre compréhension et patience. Bon tricot!

08.10.2021 - 15:24