Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= gallabuxnablár | |
= natur | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Merry Stars |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa og jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og snjókristallamynstri. Húfan er prjónuð í sléttprjóni með stroffi. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 41-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 11-12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum gallabuxnablár, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27-28 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm til loka máls). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gallabuxnablár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-5-6-7-8-9-10 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-38-40-42-46 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 15-20-24-26-30-34-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm til loka máls. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-6-4-6-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá stroffi og upp að topp á húfu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum natur í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 0-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir = 84-84-90-96-96 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-14-15-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11-11 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls ca 50-52-54-56-58 cm og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðinn og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á húfu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (16)
THELIN wrote:
Sur ce modèle et d'après mon échantillon, j'ai 84 mailles après les 12 d'augmentation. Je dois faire le diagramme A1, bon d'accord. Mais il manque un texte, car je me retrouve d'après vos indications avec 224 mailles, mais comment faire? Je suis bloquée dans un pull pour ma petite fille. Il doit être fini pour le 24 décembre! C'est la première fois que j'achète sur votre site, mais je suis un peu perdue... merci de m'aider.
06.12.2023 - 14:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Thelin, vous tricotez la 5ème taille soit 9/10 ans, correct? Vous allez donc tricoter 14 fois A.1 tout le tour (14 x 6 mailles au 1er tour= 84 mailles), vous allez augmenter comme indiqué dans le diagramme (en faisant 1 jeté alternativement au début /à la fin de chaque A.1, jeté tricoté torse au tour suivant); Quand A.1 est terminé, vous avez 16 m dans chaque A.1 x 14 motifs = 224 mailles. Bon tricot!
06.12.2023 - 16:09Fabienne STASIAK wrote:
Par quel fil puis je remplacer "drops air" Merci par avance
02.11.2023 - 18:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Stasiak, vous pouvez utiliser un autre fil du groupe de fils C ou bien 2 fils du groupe A tricotés ensemble, utilisez notre convertisseur pour voir toutes les alternatives possibles et les nouvelles quantités correspondantes. Bon tricot!
03.11.2023 - 06:26Rosemarie Zimmermann wrote:
Eine schöne Anleitung für die Mütze "Merry Star" ! Ich nutze ausserdem gern die Videos, sie sind sehr informativ und erleichtern mir häufig die Handarbeit. Danke!
20.12.2022 - 23:33Teresa wrote:
Gracias por su contestacion pero aun me quedan dudas. 1. El ancho total del cuello son 18 cm o 36 cm? 2. El ancho del cuerpo (espalda + delantero) son 44 o 88 cm? 3. Al salirme que tengo que montar más puntos, cómo los reparto en el diagrama A1 del dibujo. Gracias
07.12.2022 - 14:33DROPS Design answered:
Hola Teresa, puedes ver en el diagrama las medidas de la mitad del contorno de las diferentes partes del cuerpo. 18 cm es la mitad del cuello; el contorno del cuello es 36 cm. El contorno del cuerpo es 88 cm. Puedes aumentar el número de pts para montar, asegurándose de aumentar una cantidad de pts que sea múltiple de 6 (añadiendo 1 o más repeticiones de A.1). Puedes montar más puntos desde el cuello o puedes aumentar los puntos después de trabajar el cuello y al comenzar el canesú, para que el cuello no quede demasiado ancho.
11.12.2022 - 20:48Teresa wrote:
En el modelo merry stars la medida del cuerpo para talla 13/14 es 88 cm (44x2) cierto? Es que si hago el calculo con la muestra que dicen de 18 puntos por 10 cm serian 82 cm para 148 puntos que quedan despues de separar las mangas. Tengo que adaptar mi muestra (22 puntos x 10 cm) y voy comprobando todos los calculos. No puedo hacerlo con agujas del 5 que sí me dan los 18 puntos pero queda el punto demasiado abierto. Gracias
05.12.2022 - 18:58DROPS Design answered:
Hola Teresa, tu tensión es algo más prieta que la utilizada en el patrón ( 17pts = 10cm), por lo que, si estás trabajando con el mismo hilo, vas a tener que cambiar los cálculos del patrón para alcanzar las medidas del diagrama. Puedes ver aquí cómo hacer los cálculos para el patrón: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23
06.12.2022 - 18:54Ana Batista wrote:
Bom dia! Estou a tricotar o modelo Merry Stars 41/4. Gostava de me indicassem um video a exemplificar como apanhar o fio da cor que fica em espera quando se tricota o jacquard, de maneira a não deixá-lo tão grande. por exemplo com intervalos de 8 ou mais malhas. Muito obrigada
24.09.2022 - 18:16DROPS Design answered:
Bom dia, Ao fundo da página com as explicações deste modelo, pode ver vários tutoriais em vídeo que explicam as várias técnicas usadas neste modelo. Tal como este vídeo que explica a tricotar o jacquard ou fair isle: https://www.garnstudio.com/video.php?id=140&lang=pt Bons tricôs!
27.09.2022 - 10:06Justin wrote:
Bonjour, Je me posais une petite question sur le modèle. J’espère que vous pourrez y répondre. 1: Pour le pull, plus spécifiquement pour les manches, je me demandais comment je devais relever les 6 mailles. Je tricoterai sur 3 aiguille à doubles pointes, et je me demande si je dois mettre 2 mailles sur chaque aiguille? Merci d’avance pour votre réponse, Justin
15.01.2022 - 18:42DROPS Design answered:
Bonjour Justin, cette leçon montre ) partir de la photo 17 comment vous allez tricoter les manches: en relevant une maille dans chacune des mailles montées pour les emmanchures lors de la division; retrouvez ce passage à partir de 09:39 dans cette vidéo. Vous pouvez ensuite tricoter sur circulaire, en magic loop ou sur 3 ou 4 aiguilles doubles pointes au choix et en fonction de la taille. Bon tricot!
17.01.2022 - 08:31Elisabeth wrote:
I am starting the Merry Stars pattern 41-4 and I am confused with the different needles. If I’m making the sweater for 7-9 child, do I need the 4mm 40cm and 5mm 40cm or is just 4mm 60cm and 5mm 60cm? I will be using 4 and 5mm (80cm) for the magic loop instead of double pointed needles. Thank you, I love the Drops Air.
13.01.2022 - 18:23DROPS Design answered:
Dear Elisabeth, if you will work magic loop, you then only need circular needles 80 cm in both sizes 4 mm and 5 mm. Happy knitting!
14.01.2022 - 08:45Sabine wrote:
Die Mengenangaben stimmen leider nicht. Für die Größe 9/10 sind 200 g angegeben, was aber nicht ausreicht. Ich muss für das zweite Ärmelbündchen daher extra noch einen Knäuel nachbestellen, was ärgerlich ist.
14.12.2021 - 10:34Chantale St Louis wrote:
😂j ai trouver mon erreur !!!! Eurêka!!!! Ma première rangée du flocon n est pas ok j ai fait un naturel à tout les 5 mailles ,désolé pour le dérangement je vous remercie beaucoup pour votre patience bonne journée 🌞
03.12.2021 - 12:36