DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rolling Snow Set

Prjónuð húfa og vettlingar úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með köðlum og klukkuprjónslykkjum.

DROPS 226-53
DROPS Design: Mynstur ai-363
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
Ein stærð

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 02, hveiti

HÚFA:

STÆRÐ:
Ein stærð
Höfuðmál: Ca 54/58 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 02, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í prjónanúmeri 5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
Ein stærð
Mál: Ummál: Ca 19 cm. Lengd: Ca 26 cm.

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 02, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: Fyrir mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: Fyrir stroff
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 42 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettlingum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið klukkuprjónslykkjuna með prjónamerki í eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal á vettlingum):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 84 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið A.1 hringinn (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist ca 20 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú byrjar úrtaka efst á húfu. Prjónið A.2 hringinn (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 24 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 42 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 38 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3 (= 19 lykkjur = á hönd), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 6 mynstureiningar með 3 lykkjum) og endið með fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í 20. lykkju í umferð (í fyrstu klukkuprjónslykkju eftir A.3).
Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum á hæðina = 48 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 14c m. Nú á að setja þumallykkjurnar á þráð eins og útskýrt er að neðan. Mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjurnar eru settar á þráð.
Í næstu umferð eru 11 þumallykkjur settar á þráð, prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju yfir lykkjur á þræði = 38 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram eins og áður þar til vettlingurinn mælist ca 22 cm – endið A.3 eftir 1. eða 5. umferð í mynstri. Prjónið eins og áður, en í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir 9 lykkjur í sjálfum kaðlinum, þ.e.a.s. prjónið 2 fyrstu af þessum 9 lykkjum snúnar slétt saman og 2 síðustu lykkjurnar slétt saman = 36 lykkjur í umferð (þær 7 lykkjur yfir kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni að loka máli, aðrar lykkjur eru prjónaðar áfram eins og áður).
Í næstu umferð byrjar úrtaka efst á vettlingi eins og útskýrt er að neðan. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en úrtakan byrjar.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á vettlingi, þ.e.a.s. í síðustu klukkuprjónslykkjuna á undan A.3 og fyrstu klukkuprjónslykkjuna á eftir A.3. Nú eru 17 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið á vettlingi í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 16 lykkjur eftir.
Prjónið 2 umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4 lykkjur eftir.
Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 2 lykkjur aftan við þumal = 13 lykkjur. Prjónið brugðnar lykkjur hringinn, en önnur klukkuprjónslykkjan frá opi fyrir þumal heldur áfram upp úr eins og áður. Prjónið þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5 cm. Nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið þumalinn að óskaðri lengd. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman þar til 1 lykkja er eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en þegar útaukning byrjar fyrir opi fyrir þumal er prjónað þannig: Aukið út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. hvoru megin við síðustu klukkuprjónslykkju í umferð).
Afgangur á vettlingi og þumallinn er prjónaður á sama hátt og hægri vettlingur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (þessi lykkja er nú kölluð klukkuprjónslykkja í uppskrift)
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-53

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Fauchet wrote:

Bonjour , dans les explications il y’a écrit Augmentations-2 mais il s’agit bien de diminutions-2, non? Merci et bonne journée

25.12.2023 - 16:46

country flag Michelle Forbes wrote:

Hello , Do you work the purl stitches 1 row below every other row too ? Purl stitches are very difficult to keep tidy because of the difference in tension caused by knit stitch being worked 1 row below.Any tips for maintaining tension would be appreciated. Mant Thanks Thank you

28.12.2022 - 11:01

DROPS Design answered:

Hello Michelle Forbes! You only knit Fisherman’s rib stitch in the stitch below, purled stitches are knitted normally. Finishing your work properly, by washing it lightly after finishing, will even out the stitches. Happy knitting!

30.12.2022 - 12:49

country flag Myrna Laupland wrote:

Love this pattern, made the hat and then the mittens. Very cozy in Drops Air, this will be a Christmas gift. Thanks for the pattern, I have made lots of Drops patterns and like everyone.

08.09.2022 - 06:30

country flag Maxine wrote:

Thanks for the reply🙏🏻. I’ve now successfully finished the hat! Wonderful pattern to work with 👍🏻

24.03.2022 - 14:38

country flag Maxine wrote:

For the hat, what does A1 ‘knit 1 in stitch below this stitch mean?

27.02.2022 - 16:46

DROPS Design answered:

Dear Maxine, you can check the following video to see how to work it: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1389&lang=en Happy knitting!

27.02.2022 - 17:31