Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Mr. Sunshine |
|
|
|
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað í stroffprjóni. Stærð XS - M.
DROPS 228-55 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 lykkju í brugðinni mynstureiningu með því að taka upp þráðinn í bilinu á milli 2 lykkja í skiptingu á milli brugðið og slétt. Prjónið þráðinn í bilinu snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Útaukna lykkjan heldur áfram sem brugðin lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálsmáli og niður að opi fyrir framfætur. Síðan skiptist stykkið upp við framfætur og bakstykki og og magastykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring niður yfir bak- og magastykki og að lokum er prjónað fram og til baka að skotti. Kantur í kringum op fyrir framfætur er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Öll peysan er prjónuð í stroffprjóni – þess vegna sýnist hún vera lítil, en er mjög teygjanleg. PEYSA FYRIR HUND: Fitjið upp 48-64-80 lykkjur á sokkaprjón/hringprjón 4 DROPS Alaska. Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-6-8 cm. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út í annarri hverri brugðinni einingu frá 2 lykkjur brugðið í 3 lykkjur brugðið – lesið ÚTAUKNING = 54-72-90 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 6-10-14 cm, aukið nú út yfir brugðnu einingarnar sem eftir eru frá 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 8-12-16 cm. Skiptið nú stykkinu upp fyrir framfætur, prjónið næstu umferð í stroffprjóni þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið næstu 13-18-23 lykkjur og setjið síðan lykkjunar á þráð (= mitt undir maga), fellið af næstu 2 lykkjur, prjónið þær 43-58-73 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 43-58-73 lykkjur. Haldið áfram að prjóna stroffprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-8-10 cm frá skiptingu (stykkið mælist alls 13-20-26 cm). Setjið lykkjur á þráð. MAGASTYKKI: Setjið til baka 13-18-23 lykkjur frá undir maga á prjóninn og haldið áfram í stroffprjóni í 5-8-10 cm (stykkið mælist alls 13-20-26 cm). BAK- OG MAGASTYKKI: Setjið allar lykkjur á sama prjón, jafnframt eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í hvorri hlið á milli maga- og bakstykkis = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 20-28-35 cm fellið af miðju 9-10-13 lykkjur mitt undir maga og stykkið er síðan prjónað fram og til baka = 51-70-87 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkju 2-5-7 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af þær 29-42-55 lykkjur sem eftir eru, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 25-35-44 cm. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Prjónið upp 28-40-48 lykkjur á sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-6-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (8)
Sandra wrote:
Mir ist es nicht ganz klar, werden die Abnahmen nur in den Hinreihen vorgenommen oder auch in den Rückreihen? Lg
25.01.2024 - 08:38DROPS Design answered:
Liebe Sandra, wenn man am Ende Rumpf abkettet wird man beidseitig abketten, dh am Anfang die Hin- sowie die Rückreihen abketten, damit beide Seiten symmetrisch sind. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2024 - 09:25Catharina Van Der Meer wrote:
Ik heb een vraag over het minderen van het hondentruitje nummer 228-55 Ik ben een leek in patroon lezen. Als ik gewoon doe wat er staat hou ik 14 steken teveel over. Kunt u uitleggen wat ik fout doe. Ik doe precies wat er staat 2x 2steken 5x1 steek 1x2 steken 1x 3 steken Maar waarschijnlijk lees ik dit verkeerd. Graag ontvang ik hoe ik dit moet lezen. Groetjes Catharina
27.06.2023 - 14:31DROPS Design answered:
Dag Catharina,
Je breit heen en weer en je kant aan beide kanten deze serie steken af, waardoor je 2 keer 14 steken in totaal afkant.
29.06.2023 - 07:11Stefanie wrote:
Hallo! Ich würde in den Hundepullover gerne eine Öffnung im Rücken für eine Hundegeschirr einarbeiten. Wie mache ich das am Besten?? Vielen Dank schonmal für die Antwort!
01.12.2022 - 10:49DROPS Design answered:
Liebe Stefanie, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen bzw umrechnen; sicher kann Ihnen aber Ihr DROPS Händler damit auch per Telefon oder per E-Mail weiterhelfen. Bei dem DROPS Workshop können Sie auch gerne andere Strickerinnen mal um Hilfe bitten. Viel Spaß beim stricken!
01.12.2022 - 11:43Marisa wrote:
Hermoso el jersey! Me gustaría que diseñaran uno para Pitbull o Amstaff.
04.06.2022 - 18:48Susanne Kragh Pedersen wrote:
Ville gerne vide hvor meget garn der skal bruges til hundetrøj str. S/m? Kan den opskrift ikke gemmes på jeres side? Hvordan?
28.02.2022 - 18:39DROPS Design answered:
Hej Susanne, du skal bruge 200 g i både størrelse S og M, du finder materialer og selve opskriften her på siden - Du kan klikke på hjertet i højre hjørne eller så gemmer du bare selve adressen på denne opskrift :)
02.03.2022 - 12:10Tilia wrote:
Bonjour, Je cherche des modèles de pull pour mes whippets pour les fois où ils sont sortis en laisse pendant l’hiver. J’ai du mal à adapter l’encolure. Avis aux amateurs: pull pour un fil en 4-5 jaquard norvégien ou gros pull tricoté en 7 avec torsades et nid d’abeille. Nota: les greyhounds sont juste un peu plus grands mais ont les mêmes proportions. Faciles à faire les tours de cou fringants en j. norvégien, salvateurs en fluo en présence de chasseurs.
24.12.2021 - 18:11DROPS Design answered:
Bonjour Tilia, je peux vous proposer nos deux plus grands modèles (en L/type Setter Irlandais): Warm Banjo et Let's Go; en espérant qu'ils soient adaptés à la taille souhaitée. Bon tricot!
03.01.2022 - 08:24Victoria Edwards wrote:
Thank you for the reply. But the pattern only states that you cast off at the beginning at each row, rather than both ends? Do you have a video that explains how to cast off at the end of a row? I haven’t done this before. Thanks
19.12.2021 - 19:11DROPS Design answered:
Dear Mrs Edwards, you have to cast off the stitches at the beginning of each side, both from RS and from WS as follows: cast off 2 sts at the beg of next 4 rows (= 2 sts 2 times on each side), then 1 stitch at the beg of next 14 rows (= 1 st 7 times on each side), 2 sts at the beg of next 2 rows (= 2 sts on each side) and 3 sts at the beg of next 3 rows (3 sts on each side) =you cast off: (2 sts 2 times + 1 st 7 times + 2 sts 1 time + 3 sts 1 time) x 2 sides =32 sts; 87-32= 55 sts remain. Happy knitting!
20.12.2021 - 08:22Victoria Edwards wrote:
I am confused with the sweater section of this pattern. I am doing the largest size. I have 100 stitches. I have cast off 13. This leaves 87 stitches. You then bind off a total of 16 stitches over the beginning of the next few next rows. The pattern states this should leave you with 55 stitches. I have 71 (87-16) Have I misread the pattern?
18.12.2021 - 19:42DROPS Design answered:
Dear Victoria, you need to decrease on both sides. So you decrease twice the stitches (32 stitches) and there are 55 stitches remaining. Happy knitting!
19.12.2021 - 18:27