DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Little Bee Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og útsaumaðri býflugu. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 42-4
DROPS Design: Mynstur bm-0129-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150 (150-150) g litur 48, blush

Í blýfluguna höfum við notað afgang af:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
litur 02, svartur
litur 30, sinnep
litur 01, natur

DROPS TALA NR 627: 5-5-5-5 (6-6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4 (5-5) næstu hnappagötum með ca 5-6-6½-7 (6½-7) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 75-81-85-91 (95-99) lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-69-73-79 (83-87) lykkjur og aukið út 9-11-7-13 (13-17) lykkjur jafnt yfir og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 84-92-92-104 (108-116) lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð frá röngu eru sett 4 prjónamerki í stykkið og prjónað er þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 11-13-13-16 (17-19) lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 22-26-26-32 (34-38) lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 11-13-13-16 (17-19) lykkjur brugðið og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út þannig:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum = 180-204-220-240 (252-268) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 46-54-58-64 (68-74) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 116-132-140-152 (160-172) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 13-13-15-15 (17-19) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 129-145-155-167 (177-191) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff og kant að framan í garðaprjóni þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af.

ERMI:
Setjið 38-42-46-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-2 (2-3) cm millibili alls 3-4-6-7 (7-7) sinnum = 38-40-40-42 (44-46) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18-23) cm frá skiptingu, aukið út um 4-4-4-4 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46 (50-52) lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af þegar stroffið mælist 2 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Býfluga:
Býfluga er saumuð út á hægra framstykki – sjá mynd.
Býflugan er saumuð út með einföldum þræði og flatsaumi í röndum og hvoru megin við búk eru saumaðir út 2 vængir með keðjusaumi.

BÝFLUGA – SVARTUR BÚKUR:
Byrjið með litnum svartur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu. Saumið út ca 3 cm niður frá kanti í hálsmáli og ca 4 cm inn frá kanti að framan. Saumið út 2 þétt spor með flatsaum á ská upp til hægri (þ.e.a.s. að kanti að framan) og ca 0,5 að lengd. Hoppaðu á ská upp til vinstri ca 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 þétt spor með flatsaum sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 þétt spor flatsaum sem eru ca 0,5 cm löng.

BÝFLUGA – GULUR BÚKUR:
Skiptið yfir í 1 þráð með litinn sinnep. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og svarta sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og svarta sporið sem er næst.

BÝFLUGA – VÆNGIR:
Notið litinn natur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt.
Byrjið á að sauma út þannig:
SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd frá býflugu, frá ca miðu á býflutu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu.
SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 0,5 - 1 cm á lengd frá býflutu, frá sama stað og út.
Saumið 1 sett með vængjum hvoru megin á býflugu.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = Flatsaumur mynd 1-4.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að fyrsta sporið með flatsaum byrji.
MYND 2: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykki og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
MYND 3: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykkið og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
Haltu svona áfram þar til þú hefur eins mörg spor og þig langar til. Festu þræðina að röngu.
MYND 4: Flatsaumur sýndur í mismunandi stefnum og mismunandi lengdum.
symbols = Keðjusaumur - einfaldur mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að keðjusaumurinn byrji.
MYND 2: Stingdu nálinni aftur niður í sama gat og þráðurinn kom frá og stingdu toppnum á nálinni aftur upp í framhliðina ca 0,5-1,5 cm lengra fram – láttu þráðinn liggja undir toppnum á nálinni.
MYND 3: Dragðu nú nálina í gegnum stykkið og þá myndast lykkja með þræðinum sem kemur upp í miðju á lykkju.
MYND 4: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 cm framan við bogann og dragðu nálina í gegnum stykkið.
MYND 5: Keðjusaumurinn er nú tilbúinn, ef þú vilt hafa fleiri spor þá er hægt að endurtaka mynd 1. Festu þráðinn frá röngu.
MYND 6: Hér sýnum við keðjusaum sem snýr lóðrétt, lárétt og frá hlið og nokkrir byrja frá sama gati og aðrir byrja frá sitt hvoru gatinu.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Bee Cardigan

Anaëlle, France

Little Bee Cardigan

Marlena, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Conny Boer wrote:

Volgens mij klopt het patroon niet, Als ik aan het begin 92 steken heb, en ik ga ze verdelen in de voorpanden , achterpand en mouwen hou ik 17 steken over?

09.04.2024 - 13:16

DROPS Design answered:

Dag Conny,

Klopt het dat je maat 6/9 maanden aan het breien bent? Dan zet je 92 steken op en je meerdert in totaal 128 (16 x 8) steken voor de raglan, waarmee je op een totaal van, 220 steken komt. Vervolgens verdeel je het werk voor het lijf en de mouwen als volgt 6 (voorbies) + 29^(voorpand) + 46 (mouw) + 58 (achterpand) + 46 (mouw) + 29 (voorpand) + 6(voorbies) = 220 steken.

09.04.2024 - 20:41

country flag Annica wrote:

Vad ska jag sticka de centimeterna efter raglan är färdigt men innan de 11 cm efter markören (jag stickat storlek 6-9 mån). Jag har ungefär 2 cm däremellan men vet inte vad jag ska göra.

08.01.2024 - 17:52

DROPS Design answered:

Hej Annica, strikker du i DROPS Baby merino og har 32 pinde på 10 cm i højden, for da skal det stemme med raglanudtagninger hele vejen. Hvis du allerede er færdig med dem, så må du fortsætte de sidste 2 cm uden udtagninger :)

11.01.2024 - 15:31

country flag Bernadetta wrote:

Bjr, J'ai commencé tricoter le gilet du model Baby 42-2 . En moment de placer les marqueurs ( taille 12/ 18 mois ) il s'est trouve que j'ai plus des mailles qu'il faut . Dans votre expl. est écrit que j'ai doit augmenter 13 fois les mailles et que j'aurai après aug. 104 mailles . En sèparent 2 x 16 m. devant + 32m dos et 2x 12m manche et puis 2 x 6m la bordure j'ai m'est retrouve avec 88 m sans compter la bordure .Pourquoi j'ai 16 m de trop?

06.12.2023 - 14:26

DROPS Design answered:

Bonjour Bernadetta, vous devez avoir ceci: 22 m (devant), 1 maille avec 1 marqueur, 12 m (manche), 1 maille avec 1 marqueur, 32 m (dos), 1 maille avec 1 marqueur, 12 m (manche), 1 maille avec 1 marqueur, 22 m (devant) soit: 22+1+12+1+32+1+12+1+22=104 mailles. Bon tricot!

06.12.2023 - 16:07

country flag Merja wrote:

Little Bee Gardigan kaarrokkeen ohjeessa neuvotaan kiinnittämään 4 merkkiä ”neulo xx silmukkaa nurin, kiinnitä 1 merkki seuraavaan silmukkaan, neulo 12 silmukkaa nurin, kiinnitä 1 merkki seuraavaan silmukkaan, neulo xx silmukkaa nurin ..”. Neulotaanko tuo silmukka, johon merkki kiinnitetään ja lasketaanko se erikseen yhdeksi silmukaksi? (Jos se on yksi nurjista silmukoista, niin silmukkamäärät eivät täsmää, vaan heittää 4 silmukalla eli juuri ”merkkien” määrällä.

19.11.2023 - 21:01

DROPS Design answered:

Merkityt silmukat neulotaan myös, mutta ne lasketaan erikseen.

20.11.2023 - 17:46

country flag Birgit Bendtsen wrote:

Hej. Kan det virkelig passe, at jeg skal strikke Litle Bee Cardigan på pinde nr. 3,5 i ribben og på pinde nr. 4 glatstrikning ??? Anbefalede pinde er jo nr. 2,5 og 3. Og jeg har læst afsnittet om strikkefasthed, men jeg synes bare, at pinde nr. 4 i glatstrikning er tykke pinde til dette tynde garn. Mange venlige hilsener fra Birgit.

08.11.2023 - 21:25

DROPS Design answered:

Hej Birgit, ja, det som er vigtigt er at du har 24 masker på 10 cm i bredden, hvis du overholder strikkefastheden får du målene ifølge opskriften :)

09.11.2023 - 15:44

country flag Gaby wrote:

Liebes Drops Team,\\r\\n ich möchte diese Jacke für die Größe 68/74 mit der Nadelstärke 2,5 stricken. Wie muss ich die Maschenzahl ( Aufteilung Halsblende, Passe, Ärmel) verändern, damit die Größe ungefähr hinkommt?\\r\\n Herzlich Grüße \\r\\nGaby

04.11.2023 - 11:42

DROPS Design answered:

Liebe Gaby, diese Jacke wurde mit einer Maschenprobe von 24 Maschen x 32 Reihen gestrickt werden, sollte Ihre Maschenprobe unterschiedlich sein, dann sollen Sie die ganze Anleitung neu umrechnen damit alle fertige Maßen stimmen - oder vielleicht einfach die Nadelgrösse anpassen, hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

06.11.2023 - 08:11

country flag Barbara wrote:

Hallo, Werden in der Passe die 4 Maschen, in die ein Markierer angebracht wird, nicht gestrickt, sondern erst in der nächsten Reihe mit den Raglanzunahmen gestrickt? Ich habe nämlich gena4 Maschen übrig , wenn ich die markierten Maschen in der selben Reihe stricke, in der auch die Markierungen angebracht werden. Danke für eine Erklärung.

02.10.2023 - 21:39

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, die Maschen mit den Markierungen sind glatt rechts gestrickt, also rechts bei den Hin-Reihen und Zunahmenreihen (- 1 Umschlag, 1 Masche rechts mit dem Markierer, 1 Umschlag), und links bei den Rückreihen (die Umschläge links verschränkt und die Masche mit der Markierung links stricken). Viel Spaß beim stricken!

03.10.2023 - 08:01

country flag Barbara wrote:

Liebes Drops Team, Ich verstehe nicht, wie Sie mit einer 3er Nadel bei dieser dünnen Wolle eine Maschenprobe von 24 M in der Breite erreichen. Für 24 M müsste ich eine 4er Nadel nehmen. Dann entsteht aber ein viel zu lockeres Maschenbild. Was kann ich tun? Es betrifft alle Anleitungen mit dieser Wolle. Viele Grüße Barbara

02.10.2023 - 10:13

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, jede strickt etwas verschieden, einige stricken eher fest, andere eher locker, seien Sie sicher, daß die Arbeit - auch wegen Baby Merino (siehe Farbkarte) - nicht zu locker wird, die Maschenprobe zuerst waschen und spannen, dann entscheiden Sie die Nadelgröße am besten. Gerne kann Ihnen Ihr DROPS Händler damit noch per E-Mail oder Telefon weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

02.10.2023 - 16:00

country flag Anita Josefsson wrote:

Hej igen! Läste gamla kommentarer och såg att markeringen ska sättas i maskan istället för mellan. Då löste det sig! 🙂

17.09.2023 - 23:17

DROPS Design answered:

Hei Anita. Så bra at du fant ut av det og har fått strikket videre. Psst: husk å hake av for spørsmål når du sender inn spørsmål. Ditt første spørsmål var registrert som en Kommentar (Kommentarer blir ikke besvart). mvh DROPS Design

26.09.2023 - 11:57

country flag Anita Josefsson wrote:

Jag har börjat sticka Little Bee Cardigan i storlek 6/9 månader. Har avslutat halsresåren och ökat 7 maskor, så jag har 92 maskor på stickorna. Jag får det inte att stämma när jag ska sätta 4 markeringarna på oket. Jag stickar de 6 kantmaskorna följt av 13 aviga maskor, markering, 12 aviga maskor, maskering, 26 aviga maskor, markering, 12 aviga maskor, markering, 13 aviga maskor, markering. Nu har jag 4+6 maskor kvar. Det stämmer inte. Står det verkligen rätt i mönstret?

17.09.2023 - 12:41