DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Chilly Day Balaclava

Prjónuð húfa / lambhúshetta / balaclava fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í stroffprjóni. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 42-20
DROPS Design: Mynstur ai-007-by
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
Ca 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52)

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-50-50-50 (50-100) g litur 10, þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
PRJÓNIÐ 2 LYKKJUR SAMAN Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
PRJÓNIÐ 2 LYKKJUR SAMAN Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjum er fækkað mitt að framan og stykkið heldur áfram fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í kringum op fyrir andlit.

HÚFA:
Fitjið upp 88-96-104-108 (124-128) lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) í 2-2-3-3 (4-4) cm.
Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið prjónaðar saman í 1 lykkju brugðið = 66-72-78-81 (93-96) lykkjur. Stroffið heldur áfram með 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt.
Þegar stykkið mælist 6-6-7-8 (10-12) cm frá uppfitjunarkanti, prjónið allar 2 lykkjur slétt saman í 1 lykkju slétt = 44-48-52-54 (62-64) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4.
Stroffið heldur áfram með 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt.
Þegar stykkið mælist 8-8-9-10 (12-14) cm frá uppfitjunarkanti, skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fram og til baka þannig:
Fellið af fyrstu 6-6-6-8 (10-10) lykkjur, prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 17-19-21-21 (24-25) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið 1 prjónamerki á prjóninn (mitt að aftan), 1 lykkja slétt, sláið einu sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21 (24-25) lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 40-44-48-48 (54-56) lykkjur.
Stykkið er prjónað í sléttprjóni fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn).
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað hvoru megin við op mitt að framan og lykkjur eru auknar út mitt að aftan þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur saman (= 1 lykkja færri) – sjá ÚRTAKA, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki mitt að aftan, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING, 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum svona hvoru megin við miðju að framan í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum.
Aukið svona út hvoru megin við prjónamerki í hverri umferð frá réttu alls 7-7-7-7 (7-8) sinnum (meðtalin útaukning sem var gerð þegar lykkjur voru felldar af mitt að framan).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka eru 48-52-56-56 (62-66) lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11 (11-12) cm frá þar sem lykkjur voru felldar af mitt að framan, setjið ystu 18-19-21-20 (22-24) lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn sokkaprjón 5, þ.e.a.s. það eru eftir 12-14-14-16 (18-18) lykkjur á hringprjóni.
Klippið þráðinn frá.
Lykkjur á sokkaprjónum í hvorri hlið eru prjónaðar saman með ystu lykkju í hvorri hlið á hringprjóni í lok hverrar umferðar þannig:
FRÁ RÉTTU:
Prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á hringprjóni, lyftið síðustu lykkju af hringprjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt af sokkaprjóni og steypið lyftu lykkjunni frá hringprjóni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri á sokkaprjóni). Snúið stykkinu.
FRÁ RÖNGU:
Prjónið 1 lykkju snúna brugðið (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann), prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á hringprjóni, lyftið 1 lykkju af hringprjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið frá sokkaprjóni og steypið lyftu lykkjunni frá hringprjóni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Snúið stykkinu.
Prjónið og fækkið lykkjum svona þar til fækkað hefur verið um lykkjur af sokkaprjónum í hvorri hlið.
Nú eru 12-14-14-16 (18-18) lykkjur á hringprjóni og engar lykkjur á sokkaprjóni í hlið.
Prjónið nú kant í kringum opið þannig:

TVÖFALDUR KANTUR:
Prjónið upp ca 52 til 68 lykkjur (meðtaldar lykkjur á hringprjóni) innan við 1 kantlykkju á sokkaprjón 4. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 og að kanturinn dragist ekki saman / verði of laus.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með hringprjón 5.
Brjótið uppá kantinn þannig að hann verði tvöfaldur að innanverðu á húfu og saumið affellingarkantinn við þar sem lykkjur voru prjónaðar upp í kringum op fyrir andlit. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Marjorie Brand wrote:

This is a very pretty pattern. My question today is about the your note at the end of the pattern about what you can do with your pattern. I want my friend to knit this for my little one because I cant knit in the round. She dont have the facility to print the pattern from the site. Can I share this pattern via media? Thank you very much.

03.04.2024 - 08:54

DROPS Design answered:

Dear Marjorie, you could always send a link to the pattern to her. Happy Knitting!

03.04.2024 - 11:41

country flag Eirin Josefine Sødal Blomberg wrote:

Hei. Skal strikke denne til baby 9-12 mnd. men jeg ser det kun er oppskrift til eldre/yngre. Finnes det er for gruppe 9-12 mnd?

20.02.2024 - 20:50

DROPS Design answered:

Hei Eirin Josefine, Da anbefaler vi at du strikker størrelse 12/18 mnd. Hettelua skal sitte løst på slik at det er behagelig. God fornøyelse!

21.02.2024 - 06:48

country flag Bella wrote:

It would be very helpful if you stated the restarting place after cutting the yarn to work the crown. I’m guessing that it is, with right side facing, at the start of the second needle, knitting across and back over the central stitches which will continue to cover the top of the head. Is that correct?

13.01.2024 - 20:47

DROPS Design answered:

Dear Bella, yes, you will work over the central stitches in the circular needle, working them together with one stitch of each of the double pointed needles each time. Happy knitting!

14.01.2024 - 23:08

country flag Maria wrote:

3 domande in 1: 1) Pensate sua un progetto troppo difficile per un beginner? 2) Come adatto le misure ad un adulto con misura della testa di 56cm di circonferenza? 3) Le istruzioni dicono: "lavorare tutte le sezioni con 2 maglie rovescio a 1 maglia rovescio [...]" E poi: "Quando il lavoro misura 6-6-7-8 (10-12) cm dal bordo di avvio, lavorare tutte le sezioni con 2 maglie diritto a 1 maglia diritto [...]" Se è scritto correttamente, non capisco come si faccia.

07.01.2024 - 16:12

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, questo è un progetto lavorato in tondo con aumenti e diminuzioni, ma può seguire le istruzioni e i video riportati. Questo modello in particolare è per bambini, ci sono altri modelli di passamontagna per adulti sul sito. Per la parte delle sezioni a rovescio e diritto deve diminuire le maglie. Buon lavoro!

09.01.2024 - 20:11

country flag Cheryl Farthing wrote:

Hello, 1. Do I start the hat with circular needles using magic loop and in the round? 2. I’m using KATIA, MERINO BABY, Baby Love : 50gr 165mts. Size of hat 9 months. Is this yarn equivalent? I intend on knitting 3 . 11.12.2023 - 19:51: DROPS Design answered: Dear Mrs Farthing, could you please tell us which pattern you are working on? 12.12.2023 - 09:54:

12.12.2023 - 13:43

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Er første felling når de tre delene strikkes sammen på retten eller vrangen. Takk for hjelpen.

20.11.2023 - 12:34

DROPS Design answered:

Hei Anne-Beate. Fra retten, men er du da på vrangen, følger du bare forklaringen på hvordan maskene strikkes sammen fra vrangen. mvh DROPS Designb

20.11.2023 - 14:18

country flag Marit Signe Fjæreide wrote:

No lurte eg på når eg er begynt på 18 masker på rundpinnen og22 masker på settpinnene på hver side.Er det bare rundpinnen eg skal bruke og felle maske på settpinnene? Skal vel ikkje strikke alle hele tiden

11.11.2023 - 10:50

DROPS Design answered:

Hei Marit. Nei, du strikke ikke alle samtidig. Du strikker maskene på rundpinnen og strikker første og siste maske sammen med med maskene på settpinene. De 18 maskene du har på rundpinnen blir som et "lokk" som festes sammen med sidenen av luen. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 14:04

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Nydelig lue. Men burde det ikke strikkes lenger før arbeidet deles i 3 og strikkes sammen. Virker som åpningen for ansiktet blir veldig liten/kort.

10.11.2023 - 15:04

DROPS Design answered:

Hei Anne-Beate. Målene skal stemme, luen bli jo en del tøyelig og skal den sitte pent på, samtidig som den skal være "tett" og varme små hoder. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 13:19

country flag Sara Barth wrote:

Ihre Anleitung wird auf Etsy verkauft.

08.11.2023 - 10:34

country flag Marit Signe Fjæreide wrote:

Lurte bare på om chilly day balaklava skal strikkes på rundpinn etter opplegget eller att og fram

31.10.2023 - 15:56

DROPS Design answered:

Hei Marit Signe, Du strikker halsen rundt på rundpinne, men etter du har fellet av til åpningen rundt ansiktet, fortsetter du fram og tilbake. God fornøyelse!

01.11.2023 - 07:05