DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Desert Mirage

Prjónuð peysa úr DROPS Nord með laskalínu. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-16
DROPS Design: Mynstur no-058
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 07, ljós beige
150-150-150-150-150-200 g litur 12, púðurbleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með mynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 570.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

RENDUR:
* Prjónið 7-7-7-8-8-8 cm með litnum ljós beige, prjónið 3 cm með litnum púður bleikur *, prjónið frá *-*.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 7 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur A.2.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-120-128-128-136-136 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós beige í DROPS Nord. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm.
Setjið 1 prjónamerki eftir ca 41-41-44-44-46-46 lykkjur (ca mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þessir 4 cm í kanti í hálsmáli er ekki talinn með í röndum (þ.e.a.s. prjónað er alls 11-11-11-12-12-12 cm með litnum ljós beige á undan fyrstu rönd með litnum púðurbleikur).

BERUSTYKKI:
Byrjun á umferð er í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig:
A.1, A.2 yfir næstu 9 lykkjur, A.1, A.2 yfir næstu 37-37-41-41-45-45 lykkjur, A.1, A.2 yfir næstu 9 lykkjur, A.1, A.2 yfir næstu 37-37-41-41-45-45 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð, alls 26-32-34-40-44-50 sinnum = 328-376-400-448-488-536 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar:
Prjónið fyrstu 4 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 67-79-83-95-103-115 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-11-11-13-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 97-109-117-129-141-153 lykkjur (framstykki), setjið næstu 67-79-83-95-103-115 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-11-11-13-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 93-105-113-125-137-149 lykkjur (bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-236-256-280-308-332 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn. Haldið áfram með rendur, þegar prjónaðar hafa verið alls 4 rendur með litnum púðurbleikur, prjónið til loka með litnum ljós beige. Prjónið þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-50-54-58-64-70 lykkjur jafnt yfir = 258-286-310-338-372-402 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 67-79-83-95-103-115 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-11-11-13-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-88-94-106-116-128 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður og haldið áfram með rendur. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5 rendur með litnum púðurbleikur, prjónið til loka með litnum ljós beige. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-3 cm, fækkið um 2 lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-3-2½-2-1½-1 cm millibili alls 6-10-10-14-18-22 sinnum = 64-68-74-78-80-84 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 35-34-31-31-29-28 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 39-38-35-35-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Marianne Månsson wrote:

Vill bara säga att jag är ingen nybörjare i stickning men denna beskrivning är den krångligaste jag stött på. När det gäller raglanökningarna - ska man börja ökningarna på varv två, dvs mönstervarvet? Varför beskrivs i så fall första varvet med a1 och a2 då det i så fall bara är räta maskor över hela första varvet?? Och ska man börja ökningsvarvet med ett omslag direkt och sedan a1 med 7 maskor följt av omslag igen?

11.05.2024 - 12:50

country flag Marianne Månsson wrote:

Fortfarande förstår jag inte; när jag har stickat A1 (varv 2) så slutar det med rät maska. När jag sedan ska fortsätta med A2 så börjar ju den med rät maska. Alltså får jag två räta maskor efter varandra på andra varvet. Eller ??

08.05.2024 - 15:24

country flag Marianne Månsson wrote:

Jag förstår inte när det står t.ex "sticka A1, A2 över 9 maskor, A1, A2 över 37 maskor". Ska man sticka först 7 maskor A1 och sedan 2 maskor A2 osv så att man efter 7 maskor A1 slutar med rät maska och börjar A2 med rät maska? Svårt att förklara vad jag inte förstår....

07.05.2024 - 21:42

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Vi menar då att du ska sticka såhär: först A.1 (= 7 m), sedan A.2 över 9 maskor, sedan A.1 (=7 m), sedan A.2 över 37 maskor. Mvh DROPS Design

08.05.2024 - 10:46

country flag Daniela Del Poeta wrote:

È possibile fare con questo modello un vestititino, seguendo lo schema e allungando semplicemente la lavorazione del corpo in tondo fino alla lunghezza desiderata? Vorrei realizzarlo in filo di canapa

17.04.2024 - 09:29

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela può apportare al modello le modifiche che preferisce. Buon lavoro!

17.04.2024 - 16:57

country flag Martine wrote:

Hallo, speelt het een rol naar welke richting de lus van de meerdering valt als ik hem brei of blijft het gelijk?

09.04.2024 - 14:57

DROPS Design answered:

Dag Martine,

Het valt niet heel erg op naar welke kant hij ligt, maar ik zou de omslagen wel steeds op dezelfde manier gedraaid breien, anders zie je wel verschil.

10.04.2024 - 08:48

country flag Martine wrote:

Maak ik meerderingen op de nld die volledig rechts word gebreid of in de nld met A1en A2? Kan u ook gedetailleerd weergeven hoe ik het patroon brei inclusief de meerderingen? Eerste keer dat ik zo brei en ik zie het niet. Alvast bedankt!

05.04.2024 - 16:41

DROPS Design answered:

Dag Martine,

Je meerdert iedere andere naald voor de raglan, dus de ene naald wel en de andere naald niet. Het is inderdaad het handigst om op de naalden met recht te meerderen. Je kunt bijhouden (door bijvoorbeeld af te turven tijdens het breien) hoe vaak je meerdert.

07.04.2024 - 18:02

country flag Doris Wennerberg wrote:

Hej! Tycks inte lyckas med detta - jag förstår helt enkelt inte hur jag ska sticka raglan - var börjar man räkna raglan? Det står: 1 omslag före och 1 efter de 7 maskor i A1. Men hur räknar man vidare? kommer de 9 resp 37 maskorna med detsamma efter omslaget? Tror inte jag klarar detta utan hjälp. Tacksam för svar!

27.03.2024 - 17:08

DROPS Design answered:

Hej Doris, prøv at se videoen om hvordan man strikker raglan oppefra og ned, du finder den øverst i opskriften hvis du klikker på Video. Når du har set den, og vil have mere hjælp, skal du skrive hvilken størrelse du strikker, hvor mange masker du har og hvor du er i opskriften :)

05.04.2024 - 09:14

country flag Evy Marechal wrote:

Bonjour j aimerais réalisé ce modèle mais je suis complètement perdue j ai monter et tricoté les 4 cm du et la je dois commencer l empiècement, pourriez-vous m expliquer ce que veut dire A1,A2 au dessus des 9 mailles suivantes,A1,A2 au dessus des 37 mailles suivantes Pour mou je comprends que je dois tricoter 9 m (1endr,1env) ce qui fait 9m A1,A2 puis tricoter 37m puis de nouveau A1,A2(qui sont les 9m du diagramme) Merci de votre réponse Bien a vous Evy

24.03.2024 - 16:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marechal, tricotez ainsi: les 7 mailles de A.1, A.2 au-dessus des 9 mailles suivantes (= 4 fois les 2 mailles de A.2 + la 1ère maille de A.2 pour que le motif soit symétrique), les 7 mailles de A.1, A.2 au-dessus des 37 mailles suivantes (soit 18 fois les 2 mailles de A.2 + la 1ère maille de A.2 pour que le motif soit symétrique, les 7 mailles de A.1, A.2 au-dessus des 9 mailles suivantes (= 4 fois les 2 mailles de A.2 + la 1ère maille de A.2), les 7 mailles de A.1, et A.2 au-dessus des 37 mailles suivantes (= 18 fois les 2 mailles de A.2 + la 1ère maille de A.2). Bon tricot!

02.04.2024 - 09:14

country flag Agneta Virta wrote:

Hej! Funderar då maskantalet inte stämmer på koftan efter att jag börjat med mönstret. Det finns 29 maskor kvar efter första varvet efter halsresåren. Jag har lagt upp 141 maskor, st XL till halskanten.

20.03.2024 - 19:05

DROPS Design answered:

Hej Agneta, du skal lægge op 128 masker til halskant i din størrelse :)

03.04.2024 - 14:12

country flag Pia wrote:

Hej. I har stadigvæk ikke besvaret mit spørgsmål

06.02.2024 - 20:26