DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Dusky Rose Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-33
DROPS Design: Mynstur ai-392
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-150-200-200 g litur 02, hveiti
250-250-300-300-350-350 g litur 33, bleikur sandur

Ef óskað er eftir að hafa stykkið í einum lit þá þarf:
350-400-400-450-500-550 g

DROPS TALA NR 602: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S - M:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ L - XL - XXL - XXXL:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, hvert fyrir sig. Síðan eru kantar á framstykkjum prjónaðir. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-68-74-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 10-10-10-12-13-14 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56-61-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 39-41-43-46-49-51 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið fyrstu 9-10-11-12-13-14 lykkjur mitt að framan á þráð (prjónið þær fyrst). Fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu þannig: prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir við hálsmál, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona alls 6 sinnum = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp (frá réttu) ca 94 til 110 lykkjur með litnum bleikur sandur á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2.
Prjónið síðan frá röngu (frá neðri kanti) þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kanturinn að framan mælist ca 4 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu). Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-68-74-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 10-10-10-12-13-14 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56-61-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í næstu umferð frá röngu = 39-41-43-46-49-51 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið fyrstu 9-10-11-12-13-14 lykkjur mitt að framan á þráð (prjónið þær fyrst). Fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu þannig: prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum svona alls 6 sinnum = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp (frá réttu) ca 94 til 110 lykkjur með litnum bleikur sandur á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2.
Prjónið síðan frá röngu (frá hálsmáli og niður) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff, en eftir ca 2 cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 6 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að sitja efst í hálsmáli, staðsetjið þau hnappagöt sem eftir eru með jöfnu millibili. Fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur saman og að slá 1 sinni uppá prjóninn. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn að framan mælist ca 4 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 64-66-68-70-72-74 lykkjur á sokkaprjóna 4 með litnum bleikur sandur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 32-30-28-26-24-22 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2 cm millibili alls 4-5-6-6-7-8 sinnum = 66-70-74-76-80-84 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-47-46-44-42-39 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá mitt undir ermi) á hringprjóna að loka máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-51-51-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 3-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsaumana.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4 og litinn bleikur sandur, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 77 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta að framan á hvoru framstykki), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Maria W wrote:

Hei, hva gjør man med de 9 maskene man setter på en tråd på slutten av forstykkene? jeg finner ikke ut når de skal felles/strikkes ferdig?

26.02.2024 - 16:51

DROPS Design answered:

Hej Maria. De ska ingå i de ca 77 til 99 masker som strikkes opp rundt halsen. Mvh DROPS Design

27.02.2024 - 12:25

country flag Claudia wrote:

Hallo Wollte den Garnumrechner benutzen.Ich glaube da funktioniert etwas nicht.Mann die originale Wolle nicht eingeben.

07.10.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, es sollte jetzt funktionieren; Viel Spaß beim stricken!

09.10.2023 - 08:42

country flag Gail wrote:

I'm knitting the Dusky Rose Cardigan and notice that there is a 2cm difference in the length to shoulder of the left front and right front (overall length left 52 cm overall length right front 50 cm. The back is also 52cm). Please confirm what overall length I need to do for right front. Kind regards Gail

01.04.2023 - 23:53

DROPS Design answered:

Dear Gail, there seems to be a mistake in the pattern, it should be 52cm. We will correct it as soon as possible. Happy knitting!

02.04.2023 - 22:14

country flag Chris wrote:

Bonjour, je ne comprends pas l explication devantQuand l\'ouvrage mesure 46-48-49-51-52-54 cm, placer les 9-10-11-12-13-14 premières mailles en début de rang sur l\'endroit en attente sur un fil pour l\'encolure (les tricoter d\'abord). Diminuer ensuite pour l\'encolure tous les rangs sur l\'endroit, etc .Comment tricoter les 14 maille en attente d\' abord? Merci

08.02.2023 - 22:49

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, au début du rang suivant sur l'endroit, tricotez simplement ces 14 mailles comme avant (1 m point mousse, 13 m jersey) et glissez ces mailles en attente puis continuez à tricoter les mailles restantes du rang, tournez, tricotez le rang suivant sur l'envers, puis, commencez à diminuer au début du rang suivant sur l'endroit (on diminue 6 fois 1 m en début de rang sur l'endroit (devant droit) . Pour le devant gauche, tricotez les 14 premières mailles sur l'envers (= 1 m point mousse, 13 m envers) et glissez-les en attente, et diminuez ensuite pour l'encolure à la fin de chacun des 6 rangs suivants sur l'endroit. Bon tricot!

09.02.2023 - 10:23

country flag Christina Dicksen wrote:

Hej, Jag stickar Dusky Rose Cardigan och förstår inte" ärmkullen " och hur jag ska sticka på slutet. Hur får jag ett sprund genom att sticka fram och tillbaka från mitt under. Vad är skillnaden på att sticka runt och fram och tillbaka? lut: OCH FÖRSTÅR INTE VAD SOM MENAS MED:

15.01.2023 - 15:53

DROPS Design answered:

Hei Christina. Du har til nå strikket ermet rundt på rundpinne, men når ermet måler 48-47-46-44-42-39 cm, skal det strikkes frem og tilbake over maskene i noen cm (se hvor mange cm i oppskriften og den str. du strikker). Dette blir da ermtoppen og det blir en splitt i arbeidet fra der du begynte åstrikke frem og tilbake. Ta gjerne en titt på denne videoen, kanskje du da får en bedre oversikt: Hur man monterar ärmarna på fram- och bakstycket mvh DROPS Design

16.01.2023 - 13:03

country flag Margaret O'Brien wrote:

Perché il davanti ha più punti del dietro?

23.11.2022 - 21:13

DROPS Design answered:

Buonasera Margaret non ci sono errori nel numero di maglie per questo modello. Buon lavoro!

24.11.2022 - 21:47

country flag Małgorzata wrote:

W paski ? Serio ?

08.09.2022 - 10:08

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato, tak faktycznie jest, tylko oba odcienie są bardzo do siebie zbliżone. Myślę, że powinniśmy dodać inne zdjęcie :) Pozdrawiamy!

08.09.2022 - 11:27

country flag Marie wrote:

Hallo, ich bin inzwischen bei den Ärmeln angekommen und sie sind viel zu groß mit über 60 Maschen. Ich habe den Ärmel wieder aufgemacht, 10 Maschen weniger genommen und trotzdem kommt mir die Maschenanzahl zu hoch vor. Mache ich etwas falsch oder ist die Strickjacke mit übermäßig großen Ärmeln gedacht?

18.08.2022 - 14:39

DROPS Design answered:

Liebe Marie, die Breite der Ärmel muss die Armlöcher anpassen, so haben Sie mit 66-70-74-76-80-84 Maschen ca 19-20-21-22-23-24 cm wenn die Ärmel doppelt gefalten ist. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

18.08.2022 - 15:10

country flag Joelle wrote:

Bonjour, Je m'interroge sur les explications de la manche. "Quand la manche mesure 48-47-46-44-42-39 cm, tricoter la tête de manche en allers et retours à partir du sous la manche pendant 3-4-5-6-7-10 cm." Qu'est-ce qui détermine la "tête de manche" ? je vois bien des pointillés sur le graphique - qui pourraient correspondent à des diminutions, mais pas de diminutions dans les explications. Pouvez-vous m'aider ? D'avance merci Joëlle

28.07.2022 - 18:58

DROPS Design answered:

Bonjour Joelle, regardez la video ICI. Bon trciot!

29.07.2022 - 08:49

country flag Kerstin Michel wrote:

Hallo, gerne möchte ich mir diese Jacke stricken. Aber eine Frage: Wenn ich die Maschen angeschlagen habe, dann ist doch die erste Reihe, die ich stricke eine Hinreihe, wieso steht da die Rückreihe rechts stricken? Entschuldigen Sie die Frage, ich bin Anfängerin. Herzliche Grüße

17.07.2022 - 15:06

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, ob Sie die erste Reihe als Hin- oder als Rück-Reihe stricken, ist nicht zwingend festgelegt. In diesem Fall gilt die erste Reihe als Rück-Reihe. Gutes Gelingen und viel Spaß beim Stricken!

18.07.2022 - 08:09