White Roses Top |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og pífum á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á framstykki og bakstykki (ekki er aukið út yfir ermar). Fyrst eru auknar út 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónamerkið situr hér. Aukið út um 2 lykkjur á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónamerkið situr hér. Aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá ca miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Kantar á ermum eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-108-114-120-126-126 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-12-12-12-12-12 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 30-30-33-36-39-39 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, setjið 2. prjónamerki hér, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-20-20-20-20-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, setjið 3. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 30-30-33-36-39-39 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, setjið 4. prjónamerki hér, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir síðustu 10-10-10-10-10-10 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með stroff hringinn og endurtakið fyrstu 2 umferðir í A.1 þar til stykkið mælist 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón fram að 1. prjónamerki, prjónið 3. umferð í A.1 fram að 2. prjónamerki (= 10-10-11-12-13-13 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, prjónið 3. umferð í A.1 fram að 4. prjónamerki (= 10-10-11-12-13-13 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón út umferðina = 120-128-136-144-152-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð til og með síðustu umferð í A.1 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan. Héðan er nú stykkið mælt! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur, jafnframt er aukið út fyrir laskalínu. Lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Prjónið sléttprjón fram að 1. Prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 40-40-44-48-52-52 lykkjur (= 10-10-11-12-13-13 mynstureiningar), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.2, 2. prjónamerki situr hér, prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 40-40-44-48-52-52 lykkjur (= 10-10-11-12-13-13 mynstureiningar), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.2, 4. prjónamerki situr hér, prjónið sléttprjón út umferðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 10-10-11-14-16-19 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 1-3-3-2-2-1 sinnum = 21-23-25-30-34-39 lykkjur fleiri í umferð í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 204-220-236-264-288-308 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13-15-16-17-18-20 cm frá prjónamerki – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í A.2 – þ.e.a.s. næsta umferð sem er prjónuð er 4. umferð í A.2. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum þannig (ystu kaðlarnir í hvorri hlið erum nú prjónaðir inn á fram- og bakstykki): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 31-37-39-44-48-53 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 38-38-42-46-50-50 lykkjur á þráð fyrir kant á ermum, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 64-72-76-86-94-104 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 38-38-42-46-50-50 lykkjur á þráð fyrir kant á ermum, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 33-35-37-42-46-51 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-156-168-188-208-228 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Prjónið sléttprjón með 6-6-8-8-10-10 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 6-6-8-8-10-10 lykkjur í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 2 sinnum = 132-148-160-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 3 cm millibili alls 4 sinnum = 148-164-176-196-216-236 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm í stroffi að loka máli. Mátið e.t.v. toppinn og prjónið að óskaðri lengd áður en stroffið er prjónað. Til að koma í veg fyrir að stroffið dragi stykkið saman, aukið út um 28-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 176-196-212-236-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Toppurinn mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. KANTUR ERMI: Setjið 38-38-42-46-50-50 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjón 5. Byrjið frá röngu og prjónið þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðustu umferð í A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, A.3 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.3, 2 lykkjur garðaprjón. Þegar öll útaukning í A.3 hefur verið gerð til loka, eru 89-89-99-109-119-119 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka þar til A.3 er lokið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Louaked wrote:
Bonsoir, j en suis à la bordure des manches, est-ce qu'il faut tricoter en rond ou en allers et retours sur l aiguille circulaire ? Merci
14.03.2024 - 23:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Louaked, la bordure des manches se tricote en allers et retour (sans couture non plus pour conserver l'effet voulu des manches). Bon tricot!
15.03.2024 - 09:29Evelyne Louaked wrote:
Bonjour,pour le col après le rang endroit on place les marqueurs mais au final au bout du rang il me reste 6 mailles sur l aiguille (8,30,16,30,10=94) Merci de m'aider
27.02.2024 - 11:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Louaked, il manque effectivement quelques mailles, tricotez ainsi: 8 m en côtes, (1er fil marqueur), 32 mailles de A.1 (= 10 fois les 3 mailles de A.1 + les 2 premières de A.1 pour que le motif soit symétrique), (2ème fil marqueur), 18 mailles en côtes (18 x 2 m end, 2 m env puis encore 1 fois 2 m end pour que les côtes soient symétriques), (3ème fil marqueur), 32 mailles de A.1 comme avant, (4ème fil marqueur), 10 mailles en côtes (4 fois 2 m end, 2 m env puis encore 1 fois 2 m end) = 8+32+18+32+10=100 mailles. Bon tricot!
27.02.2024 - 13:31Kerstin wrote:
Hallo zusammen, ich habe schon direkt am Anfang ein Problem.\r\nIch stricke Größe S und habe 100 Maschen angeschlagen. Nach der ersten Runde in rechts geht es nun weiter mit dem Rippenmuster der Halsblende.\r\nIch komme aber insgesamt nur auf 96 Maschen, die beschrieben werden.\r\nHeißt, nach dem zweiten Mal 30 Maschen im A1-Muster habe ich statt 10 noch 14 Maschen übrig.\r\nWo ist der Fehler?\r\nViele Grüße, Kerstin
11.02.2024 - 16:28DROPS Design answered:
Liebe Kerstin, so stricken Sie diese 100 Maschen: (2 Maschen rechts / 2 Maschen links) über die ersten 8 Maschen, (Markierungsfaden), A.1 über die nächsten 30 Maschen, die ersten 2 Maschen von A.1, (Markierungsfaden), ( 2 Maschen links / 2 Maschen rechts) über die nächsten 16 Maschen, 2 Maschen links, (Markierungsfaden), A.1 über die nächsten 30 Maschen, die ersten 2 Maschen von A.1, ( Markierungsfaden) , ( 2 Maschen links / 2 Maschen rechts) über die letzten 10 Maschen = 8+(30+2)+(16+2)+(30+2)+10= 100 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
12.02.2024 - 08:57Sabine Woelk wrote:
Danke für diese schöne Anleitung. Der Pulli läßt sich gut stricken. Ich habe ein Problem beim befestigen der Ärmel. Verstehe ich es richtig, dass ich die Kanten der Ärmel an die 10 zusätzlichen Maschen am Rumpfteil nähen soll? Vielen Dank
29.01.2024 - 17:32DROPS Design answered:
Liebe Frau Woelk, die Ärmelblenden werden nicht zusammengenäht, einfach weiter gestrickt und abgekettet, das ist ein Fehler in die deutsche Anleitung, sorry. Viel Spaß beim stricken!
30.01.2024 - 07:55Emilie wrote:
Er der kropsmål der afgør, hvilken størrelse man skal vælge?
27.01.2024 - 10:07DROPS Design answered:
Hej Emilie, ja, du finder måleskitsen på blusen nederst i opskriften, vælg størrelsen med de mål som passer dig. Vil du have hjælp med at læse måleskitsen, har vi en lavet en god lektion so du finder nederst i opskriften :)
02.02.2024 - 12:22Tina Mikkelsen wrote:
Er det meningen at ærmekanten bare skal hænge løs?
01.09.2023 - 02:13DROPS Design answered:
Hej Tina. Ja, men du kan syet den sammen om du ønsker det. mvh DROPS Design
08.09.2023 - 15:26Ria Edam-Dekker wrote:
Moeten de mouwranden nog aan het voor- of achterland vastgenaaid worden? Het zijn nu van die losse flapjes!
26.07.2023 - 11:34Gitte wrote:
Skal der samles masker op til ærmer, i de 10 masker der blev slået op?
09.07.2023 - 19:06DROPS Design answered:
Hei Gitte. Ermene strikkes frem og tilbake over det maskeantallet det er i den str. du strikker, men det burde ha vært en forklaring på hvordan ermene og de maskene som ble lagt opp under ermene skal sys sammen. Oppskriften er videresendt til Design avd. slik at de kan skrive en avsluttning på hvordan. mvh DROPS Design
24.07.2023 - 13:24Géraldine wrote:
Re-bonjour, J'ai finalement compris mon erreur, c'est 10x8 + 1x4 ( et pas 21 !!!). Merci pour votre site où je trouve de nombreux modèles très jolis et gratuits ! Grâce à vous, je tricote en rond et j'adore ! Bien cordialement
17.06.2023 - 22:46Géraldine wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi après les augmentations du raglan on arrive à 204 mailles (taille S) et pas 284 mailles (120+10×8+21×4). Est-ce que quelqu'un peut m'aider ? Merci d'avance.
17.06.2023 - 21:52DROPS Design answered:
Bonjour Géraldine, on augmente effectivement 10 x 8 m (4 m pour le devant + 4 m pour le dos), on va ainsi avoir: 120 + 80 = 200 mailles; on augmente ensuite 1 seule maille, 1 fois en taille S soit 4 mailles au total (2 m pour le devant, 2 pour le dos) - on a ainsi bien 204 mailles. Et vous avez ainsi augmenté au total 21 mailles au début + 21 m à la fin du devant et du dos. Bon tricot!
19.06.2023 - 08:51