DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Race the Wind

Prjónaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með laskalínu, gatamynstri og stuttum vængjaermum. Stærð S – XXXL.

DROPS 232-18
DROPS Design: Mynstur r-795
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 82, silfur orkidé

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað mismunandi á fram- og bakstykki. Á ermum er úrtakan teiknuð inn í A.3 og A.5. Á fram- og bakstykki er lykkjum fækkað þannig:
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu lykkju, prjónamerki.
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig:
Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið um 4 lykkjur í annarri hverri umferð (2 lykkjur á framstykki og 2 lykkjur á bakstykki). Að auki kemur úrtaka á ermum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru ermar prjónaðar fram og til baka á hringprjóna upp að handveg. Ermarnar eru síðan settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið og kantur í hálsmáli er prjónað í hring. Ermakantar eru ekki saumaðir saman, þannig að það verður klauf undir ermum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 266-280-308-336-378-406 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 190-200-220-240-270-290 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-0-0-0-6-2 lykkjur jafnt yfir = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 92-100-110-120-132-144 lykkjur (hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 27-26-25-24-23-23 cm.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-102-112-124-136 lykkjur (framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-102-112-124-136 lykkjur (bakstykki), fellið af síðustu 4 lykkjur í umferð fyrir handveg. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 159-171-183-195-207-219 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni.
Síðasta umferð í A.2 er prjónuð þannig – frá röngu (nú eru 81-87-93-99-105-111 lykkjur í umferð): Fellið af fyrstu 8 lykkjur í umferð, prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir, fellið af þessar lykkjur = 65-71-77-83-89-95 lykkjur. Klippið þráðinn.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 298-326-358-390-426-462 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerki 1 lykkju inn á framstykki og bakstykki. Byrjið umferð mitt að aftan.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Lesið LASKALÍNA. Í fyrstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu, JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur frá fram- og bakstykki eins og áður. Lykkjur á ermum eru prjónaðar þannig: A.3, A.4 er prjónað 6-7-8-9-10-11 sinnum, prjónið A.5. Í hvert skipti sem A.3 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur lykkjum verið fækkað þannig að það er pláss fyrir 2 mynstureiningum færri af A.4 á hvorri ermi. Á framstykki og bakstykki er lykkjum fækkað fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð alls 24-28-32-36-40-44 sinnum = 130-130-134-138-146-154 lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 17-20-23-26-29-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman.
Prjónið 1 umferð þar fækkað er um 18-14-14-10-14-16 lykkjur jafnt yfir = 112-116-120-128-132-138 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Toppurinn mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Deutschland wrote:

Hallo, Wenn ich 266 Maschen aufnehme ( bei Maschen Probe 21 Maschen ist gleich 10 cm) dann komme ich nach meinen Berechnungen auf 63,3 cm Breie von unterem Rand bei Gr. S und nicht auf 44cm. Irgendwas stimmt hier nicht?

14.02.2024 - 16:11

DROPS Design answered:

Hallo, über die 266 Maschen stricken Sie das Diagram A.1 (von 14 bis 10 abgenommen), dh nach A.1 + 1 Runde Anbahmen, sind es nur noch 184 M in der Runde, dh ca 88 cm Umfang und 44 cm flach gelegen. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2024 - 16:34

country flag Manni Cheung wrote:

I am working on the pattern 795. I want to ask some questions about the yoke. The instructions guided us to put the markers 1 stitch in on the front and back pieces. I suppose it meant the markers would be inserted 1 stitch after the armhole of the front piece and back piece. However, when I decrease the stitches after the markers, I will decrease the stitches from the sleeves instead of the body. It didn't sound right.... can you explain where the marker should be insert?

27.01.2024 - 23:46

DROPS Design answered:

Dear Manni, insert the markers as follows: sleeve, 1 stitch of the front piece, insert marker 1 between the stitches, front piece until 1 stitch remains, insert marker 2 between the stitches, 1 stitch, sleeve, 1 stitch of the back piece, insert marker 3 between the stitches, back piece until 1 stitch remains, insert marker 4 between stitches, 1 stitch, sleeve. Decrease always towards the body piece. For example, as numbered in the answer, decrease after marker 1 but before marker 2 and after marker 3 but after marker 4. Happy knitting!

29.01.2024 - 00:13

country flag Marianne Kristensen wrote:

Er det rigtig forstået at diagram A3 og A4 skal strikkes 6 gange over ærmerne? og derefter strikker man diagram A5 ? Mvh. Marianne

27.07.2023 - 10:07

country flag Györgyi wrote:

A minta címsorában már hiba van és ez később is zavaró; nem fentről lefelé készül… Ha nem tudnám a német változatot olvasni,már feladtam volna😒

17.02.2023 - 19:18

country flag Ann-Christin wrote:

Jag stickar på oket och undrar över ärmarna. Man ska sticka A3, A4 stickas 7 gånger,sticka A5. Ska man sticka A4 mönstret 7 gånger. Det är ju 16 varv x7. Är det rätt?

02.09.2022 - 16:41

DROPS Design answered:

Hei Ann-Christin. Når du skriver 7 ganger, tar jeg utgansgspunkt at du strikker str. M. Så da skal A.4 strikkes 7 ganger etter hverandre (7 rapporter) første gang du strikker diagram A.3, A.4 og A.5 i høyden. Du startet med 71 masker og når du har strikket diagrammene 1 gang i høyden / 16 pinner har du 59 masker (det felles til raglan i diagram A.3 og A.5). For hver gang A.3 og A.5 er strikket 1 gang i høyden, er det felt masker slik at det er plass til 2 rapporter mindre av A.4 på hvert erme. mvh DROPS Design

05.09.2022 - 10:34

country flag Brenda wrote:

Vraag over vastnaaien van de mouw: In het pand wordt voor elke mouw 8 steken afgekant. En bij de mouw 2x8 steken, dus 16 steken. Bij het vastnaaien moet dit op elkaar passen, maar bevat het okselgedeelte van de mouw dus 2x het aantal steken als waar het op vastgenaaid moet worden. Wat zijn de instructies hiervoor?

30.07.2022 - 09:33

country flag Ann-Christin wrote:

Varför blir längden upp till ärmhålen kortare ju större storleken är.

29.07.2022 - 18:50

DROPS Design answered:

Hej Ann-Christin, det for fordi ærmegabet bliver større. Du ser målene i måleskitsen nederst i opskriften :)

02.08.2022 - 15:56

country flag Carla Roodenburg wrote:

Mijn vraag is over patroon 795. Ik heb als antwoord gekregen op mijn vraag over de pas en met name het telpatroon van van 16 toeren dat ik het patroon gewoon verder moet breien, maar vanaf welke toer moet ik dan herhalen en gaat het afkanten dan ook door?

24.07.2022 - 17:44

DROPS Design answered:

Dag Carla,

Je herhaalt het patroon in de hoogte, dus als je de laatste naald in het telpatroon hebt gebreid, begin je weer bij de eerste naald in het telpatroon. Verder brei je de minderingen inderdaad zo verder zoals aangegeven in het patroon.

16.08.2022 - 21:32

country flag Carla Roodenburg wrote:

Ik ben bezig met dropshot patroon 795. Er staat bij de beschrijving van de pas, dat je voor de raglan voor maat L 32 keer in totaal afkant. De telrekening is 16 naalden hoe komen ze dan bij 32 keer en er staat bij de uitleg van raglan iedere 2 de naald. Wat is nu de bedoeling? Ik snap het niet meer. Graag hoor ik hoe en wat nu de bedoeling is.

09.07.2022 - 20:10

DROPS Design answered:

Dag Carla,

Het is de bedoeling dat je het patroon van A.3, A.4 en A.5 in de hoogte voortzet. Dus je breit niet alleen de 16 naalden van het patroon, maar je gaat gewoon verder tot de gewenste lengte van de pas zoals beschreven in de tekst.

24.07.2022 - 13:05

country flag Marlinde wrote:

Wouldn't it be of great benefit if you were to note the amount of positive ease? This pattern for example is very loosely fitted, but others seem more form fitting. If you give an indication of the positive ease people can easily determine which size chart to follow.

07.07.2022 - 11:03