DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Charm Valley Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, V-hálsmáli og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-31
DROPS Design: Mynstur e-330
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-450 g litur 64, ljós beige

DROPS TALA NR 521: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um V-hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við ystu 16 lykkjur við miðju að framan, þ.e.a.s. innan við A.3 + kant að framan. Allar úrtökur eru gerðar frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 16 LYKKJUM: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 16 LYKKJUM: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 16 lykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju við handveg jafnframt sem lykkjur eru fléttaðar þannig:
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið 2 fyrstu lykkjur eins og áður, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja færri), prjónið 2 síðustu lykkjur slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
Prjónið 3 fyrstu lykkjur í umferð slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er lykkjan á undan uppslætti prjónuð slétt saman með uppslætti, þannig að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 11, 17 og 23 cm
M: 6, 12, 18 og 24 cm
L: 5, 12, 19 og 25 cm
XL: 6, 13, 20 og 26 cm
XXL: 6, 13, 20 og 27 cm
XXXL: 6, 13, 21 og 28 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Fellt er af fyrir handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig að loknu máli. Ermákúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 278-302-326-353-389-422 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2, prjónið A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur (það eru einungis 4 fyrstu umferðir í A.1 sem eru endurteknar á hæðina).
Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón þar til 17 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 53-59-63-66-74-79 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur í A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 223-241-261-285-313-341 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og snúna brugðna lykkju yfir snúna brugðnar lykkju og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki 59-63-68-74-81-88 lykkjur inn frá hvorri hlið (105-115-125-137-151-165 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið síðan yfir lykkjur frá fram- og bakstykki þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu):
Hægra framstykki:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, 4-6-6-6-6-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 6-6-7-8-9-11 sinnum, A.5, 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónamerki, haldið áfram yfir lykkjur á bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Bakstykki:
0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 17-18-20-22-24-27 sinnum, A.5, 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónamerki, haldið áfram yfir lykkjur á vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan:
Vinstra framstykki:
0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, A.6, prjónið A.7 alls 6-6-7-8-9-11 sinnum, 4-6-6-6-6-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. JAFNFRAMT þegar lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli, byrjar úrtaka fyrir handveg. Lestu kaflann V-HÁSLMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 6 kantlykkjur að framan á hægra framstykki (aðrar lykkjur eru ekki prjónaðar), prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður yfir allar lykkjur. Snúið, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 6 kantlykkjur að framan á vinstra framstykki, snúið, prjónið til baka frá röngu eins og áður yfir allar lykkjur. Þetta er gert til að kantur í garðaprjóni komi ekki til með að beygjast, þegar úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 15-13-14-14-15-16 sinnum og síðan er 6. hverri umferð alls 5-6-6-6-6-6 sinnum. ATH: Til að koma í veg fyrir gatamynstur alveg við úrtöku fyrir hálsmáli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur þegar fækka á lykkjum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handvegi – stillið af að fellt sé af frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3-4-5-6-7-8 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli frá réttu eins og áður. Að auki eru lykkjur felldar af fyrir handvegi frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 1-2-3-4-5-6 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg innan við 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum (gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón).
Eftir alla úrtöku fyrir V-hálsmáli og handveg eru 28-29-30-31-31-31 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af ystu 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl = 6 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-5-5-5-6-6 cm.
Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli frá réttu eins og áður. Að auki eru lykkjur felldar af fyrir handvegi frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu alls 1-2-3-4-5-6 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg innan við 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum.
Eftir allar úrtökur fyrir V-hálsmáli og handveg eru 28-29-30-31-31-31 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af ystu 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl = 6 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-5-5-5-6-6 cm.
Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 99-107-115-125-137-149 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru felldar af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð alls 1-2-3-4-5-6 sinnum í hvorri hlið = 95-99-103-109-117-125 lykkjur. Síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 83-85-89-91-93-95 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-39 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður (gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón) og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju slétt bæði framan í og aftan í hverja af næstu 18-20-22-24-26-28 lykkjum (= 18-20-22-24-26-28 lykkjur fleiri), prjónið 5 lykkjur sléttprjón = 46-50-54-58-62-66 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-4-5-5-4 sinnum, 1 lykkja 4-5-8-7-11-16 sinnum, 2 lykkjur 4-5-4-5-4-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 98-108-114-124-132-142 lykkjur.
Setjið stykkið saman, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón 3.
Þegar ermin mælist 18-18-19-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 80-88-92-100-106-114 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 26-27-27-27-28-28 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er fækkað um 8-13-14-19-22-24 lykkjur jafnt yfir = 72-75-78-81-84-90 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Í lykkjuna fyrir neðan snúnu sléttu lykkjuna er prjónuð 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur fleiri), síðan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 96-100-104-108-112-120 lykkjur.
Prjónið síðan klukkuprjón með uppslætti hringinn yfir allar lykkjur þannig:
UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn í klukkuprjóni mælist ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 32-33-33-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju – skiptið fallega niður auka efni efst á ermakúpu yfir miðju 10 cm efst í handvegi.
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = þetta sýnir enga lykkju þar sem lykkjan er ekki til eða búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær, þannig að lykkjan liggi nú utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = endurtakið á hæðina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Charm Valley Cardigan

Renata, Poland

Charm Valley Cardigan

Xihe.sew.knit, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Elizabeth Dunbar wrote:

Hi! I've done the first right side row, I mean the next wrong side row after changing needles, sorry!

26.04.2024 - 14:09

country flag Elizabeth Dunbar wrote:

Hi, this is perhaps a silly question but in the section where you switch to size 3mm needles, when you have to repeat the pattern, how do I do so? Do I start with the 'right front side' pattern even though it's from the wrong side and left side, or do I use the 'left front side' pattern backwards, so 6 band, A3, stocking stitches, A7, then A6? Thank you!

25.04.2024 - 22:05

DROPS Design answered:

Hi Elizabeth, You have worked back from the wrong side before changing needles, so the first row with size 3 mm needles is from the right side. Happy knitting!

26.04.2024 - 06:52

country flag Bep wrote:

Bij de 5e toer van a1 moet je 2 keer 2 steken samenbreien, hoe krijg je in de volgende toer weer het gewenste aantal steken?

24.04.2024 - 21:26

DROPS Design answered:

Dag Bep,

Eerst herhaal je alleen de eerste 4 naalden van A.1 in de hoogte. Vanaf 5 cm brei je de laatste naald van A.1. De naalden daarna brei je ribbelsteek over ribbelsteek en averecht over averecht. Je hoeft geen steken te meerderen om het samenbreien op de laatste naald van A.1 te compenseren.

30.04.2024 - 21:20

country flag Lina wrote:

Liebes Team, für die Halsblende hinten werden an den Vorderteilen je 5cm (=insgesamt 10cm) über 6M kraus rechts gestrickt, die am Rückenteil angenäht werden sollen. Der Halsausschnitt am Rücken ist jedoch breiter, auch laut Muster sind es 16cm, nicht 10cm. Liegt hier ein Fehler vor oder soll das Rückenteil gerafft an die Halsblende genäht werden? Vielen Dank für Ihre Antwort.

07.10.2023 - 00:20

DROPS Design answered:

Liebe Lina, die 16 cm in der Maßskizze entsprechen die abgeketteten Maschen am Halsausschnitt für Rückenteil (z.B. in S: 33 Maschen + beidseitig 2+1 Masche = 39 Maschen - ca 16 cm. Die Halsblende beidseitig werden etwas gezogen und dann am Halsausschnitt angenäht damit der Halsausschnitt nicht zu weit wird. Vile Spaß beim stricken!

09.10.2023 - 08:23

country flag Cathrine wrote:

För att det ska bli samma avstånd till hålen så borde diagram A5 ha omslag och hoptagning på varv 3, på samma varv som första hålet på A4 och inte på varv 9. Gör man ändringen i A5 så blir det på höger framstycke att man stickar A6 istället för A5.

09.09.2023 - 13:21

country flag Domenjus Lola wrote:

Bonjour, je fais la taille S de ce modèle. Lorsque j’arrive à la rangée n°9, à la fin du devant D et au début du dos (A5 puis A4) on doit tricoter 2 mailles ensemble, 1 jeté, 1 maille endroit, 2 mailles ensemble, 1 jeté puis on continue A4. Et c’est la même situation pour la fin du dos (A5) et le début du devant Gauche (A6). Est-ce normal d’avoir 2 trous aussi rapprochés ? N’y a t’il pas une erreur ? Merci beaucoup pour votre aide.

25.07.2023 - 20:56

DROPS Design answered:

Bonjour, entre les diagrammes A.5 et A.4 (transition entre le devant droit et le dos) vous avez 2 mailles endroit entre les jetes. C'est correct. Suivez les explications. Bon tricot!

26.07.2023 - 15:24

country flag Frederike wrote:

Wat ik me afvraag; als er staat: ‘als de mouw 18 cm meet vanaf de opzetrand’ dan gaat dat om de mouwkop? En dus niet vanaf het punt waar je de steken samen brengt tot een rond geheel? Ik maak het vast moeilijker dan het is, maar ik kom er even niet uit. Het lijkt zo kort dan? Alvast bedankt. Vriendelijke groet Frederike

18.07.2023 - 08:37

DROPS Design answered:

Dag Frederike,

Dit is inderdaad vanaf de mouwkop en niet vanaf het punt waarop je de steken hebt samengebracht en verder in de rondte bent gaan breien.

18.07.2023 - 20:50

country flag Maaike wrote:

Hallo, Als ik alle meerderingen bij de mouw doe kom ik niet op 124 steken (maat xl). 1x3, 5x2, 7x1, 5x2, 1x3 maakt 33 meerderingen. Moet ik alles dan nog een keer doen. Alvast bedankt. Maaike

25.06.2023 - 07:10

DROPS Design answered:

Dag Maaike,

Je doet dit meerderen aan beide kanten van de mouw, dus in totaal meerder je dan 66 steken, waardoor je op 124 steken komt.

25.06.2023 - 17:54

country flag Carina Degner Steffen wrote:

Jeg forstår ikke hvad man gør med den maske i diagrammet som er “sort firkant/masken eksisterer ikke, gå videre til næste symbol i diagrammet\r\nHvad gør jeg med den maske fra vrangsiden,?

19.05.2023 - 15:45

country flag Clemens wrote:

Hallo gibt es auch Drops desinge auch in Koreanischer Sprache?

06.11.2022 - 12:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Clemens, leider noch nicht - es sind doch viele anderen Sprachen erhältlich: klicken Sie auf dem drop-down Menu unter dem Foto. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2022 - 09:08