Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Lighthouse Vest |
|
|
|
Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og prjónað er til loka fram og til baka að loknu máli. Kantur í hálsmáli og kantar í handvegi er prjónað í hring á hringprjóna í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 170-188-196-214-242-268 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 18-20-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir = 152-168-176-192-216-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 76-84-88-96-108-120 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 10-14-7-7-14-14 cm millibili alls 3-2-4-4-2-2 sinnum = 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan fyrra prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið fram að 3-4-5-6-7-8 lykkjum á undan seinna prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig, setjið fyrstu 76-80-86-92-98-108 lykkjur á þráð fyrir framstykki. BAKSTYKKI: = 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Fellið síðan af fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL - lesið allan kaflann að neðan: Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið lykkjur á þráðinn frá hlið þannig: 5-6-6-6-7-8 lykkjur 2 sinnum á þráðinn og síðan eru síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjur settar á þráðinn. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið lykkjur til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að sleppa við göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Jafnframt í næstu umferð er felld af 1 lykkja frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið við hina öxlina. FRAMSTYKKI: = 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm, setjið miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-20-21-22-23-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram og fellið af fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 5-6-6-6-7-8 lykkjur á þráðinn 2 sinnum og síðan eru síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjur settar á þráðinn. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur eins og á bakstykki, áður en fellt er af í næstu umferð. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 68 til 82 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið mitt í handvegi, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 78-82-86-88-92-96 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (29)
McSherry Linda wrote:
I’m very confused about how to proceed with the diagonal shoulder instructions. Even my knitting instructor couldn’t follow them. There is no mention of shirt rows in the pattern. Do you bind off the 28 stitches first, before putting the 6 stitches on threads? No mention of cutting the yarn. When is that done?
27.03.2024 - 13:12DROPS Design answered:
Dear Linda, HERE you can fine a few videos that can help you with how to knit the diagonal shoulders. I hope they would be of help. happy Knitting!
27.03.2024 - 14:29Rosa wrote:
I am confused about the section after the diagonal shoulder, where i should complete each shoulder seperately. I am knitting size xl. I therefore have 21 stitches on each shoulder. Should I cast off one stitch in every row by the neck, or just do this once and then continue without casting off? And is it really correct that i only do this for 2cm before casting the whole shoulder off? This doesn't seem like it would be enough to create the shoulders. Thanks
09.02.2024 - 10:55DROPS Design answered:
Dear Rosa, you cast off the 28 middle stitch then 1 stitch by the neck on each shoulder. Then you have finished the decreases for the neck. Finish, if necessary, the shape of the diagonal shoulders: (Place stitches from the side as follows: 5-6-6-6-7-8 stitches 2 times then place the last 8-8-9-10-9-9 stitches on the thread. ......, pick up the strand between the 2 stitches and work it twisted together with the next stitch on the left needle). Once you have finished shaping both you should have reached the approx. 60-62-64-66-68-70 cm and you can cast off the whole shoulder. Happy knitting!
11.02.2024 - 23:54Agnes Oreglia wrote:
Bonjour, au tout début du pull, on compte pour la première augmentation de chaque côté ; après 10cm, en comptant les côtes ou non ? Merci..
17.12.2023 - 12:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Oreglia, on doit mesurer à partir du rang de montage, soit 4 cm après les côtes. Bon tricot!
18.12.2023 - 08:35Anna wrote:
Buonasera, Non capisco la sezione diagonale dell spalla e collo per la la taglia L. Lavoro 6 maglie, le metto in sospeso, finisco la riga, giro, lavoro 6 maglie le metto in sospeso, finisco la riga. Ripeto entrambe queste righe un’altra volta. Da qua in poi non capisco, mettere in sospeso le ultime 9 maglie? Quali ultime 9 maglie? Allo stesso tempo intrecciare per il collo? Allo stesso tempo quando? Grazie mille per l’aiuto.
22.11.2023 - 23:35DROPS Design answered:
Buonasera Anna, le ultime 9 maglie sono le maglie ai due lati del dietro. Gli intrecci per il collo vanno fatti quando si raggiunge la misura indicata. Buon lavoro!
30.12.2023 - 14:29Fanny wrote:
Bonjour, Je ne trouve nul par le nombre de pelotes qu’il faut acheter pour faire ce modèle en taille L?
31.10.2023 - 09:41DROPS Design answered:
Bonjour Fanny, vous trouverez les quantités indiquées pour chaque taille, au poids, sous l'en-tête, il faut par ex ici en taille S et M: 250 g DROPS Air / 50 g la pelote = 5 pelotes dans ces 2 premières tailles. Bon tricot!
31.10.2023 - 16:08Alexandra wrote:
Hallo, Ihre Antwort vom 12.2.23 an Alice ist falsch! Es geht um die Zunahme am Rumpf in Größe L. In der Anleitung steht, daß bei Größe L insgesamt 4 mal zugenommen werden muß. Einmal nach 10 cm und dann 3 mal nach je 7 cm. Das sind 16 zugenommene Maschen und man kommt von 176 auf 192 Maschen. Sie schreiben in der Antwort an Alice aber fälschlicherweise, daß sie nach 10 cm und dann noch weitere 4 mal zunehemen soll! LG Alexandra
29.10.2023 - 14:24Docteurcousette wrote:
Je ne comprends pas: Mettre en attente en début de rang à partir du côté: 2 fois 5-6-6-6-7-8 mailles puis les 8-8-9-10-9-9 dernières mailles. Reprendre toutes les mailles sur l’aiguille circulaire 5 et tricoter 1 rang jersey sur toutes les mailles (pour éviter un trou aux transitions entre les mailles mises en attente, Pouvez-vous préciser ?
21.10.2023 - 23:42DROPS Design answered:
Bonjour, vous allez former ainsi le biais des épaules en tricotant davantage de rangs sur les mailles côté encolure: au début de chaque rang à partir de l'emmanchure (sur l'endroit: épaule droite du dos/gauche du devant et sur l'envers: épaule gauche du dos/droite du devant), tricotez les premières mailles et glissez les en attente, terminez le rang comme avant, tournez, tricotez le rang suivant, et répétez ces 2 rangs jusqu'à ce que toutes les mailles aient été mises en attente. Tricotez ensuite 1 rang sur toutes les mailles, pour éviter 1 trou, relever le fil avant la 1ère des mailles en attente et tricotez le torse avec cette maille. Bon tricot!
23.10.2023 - 09:56Kristina wrote:
Jeg synes at delen med “skrå skulder” er virkelig uforståeligt.
17.10.2023 - 21:15Chrissi wrote:
Hallo. Es heißt bei der Anleitung beim stricken von Glatt rechts nach 10 cm Maschen zunehmen. Muss ich da die 6 cm vom Bund mit dazu zählen?
25.08.2023 - 11:13DROPS Design answered:
Liebe Chrissi, diese 10 cm messen Sie ab der Anschlagskante. Viel Spaß beim stricken!
25.08.2023 - 12:12Graciela Schmidt wrote:
Buenas tardes. No veo muy claro cómo hacer la sisa de la espalda.
19.07.2023 - 23:22DROPS Design answered:
Hola Graciela, Vas a cerrar al inicio de filas tanto por el lado derecho como por el lado revés. Primero cierras 2 pts al inicio de las siguientes 1-1-2-2-3-4 filas por el lado derecho y por el lado revés (es decir, cuando pone 1 vez significa 1 vez por el lado derecho y 1 vez por el lado revés). Después cierras 1 punto al inicio de cada fila 4-4-3-5-4-5 veces (igual que antes, serían en total 8 filas para la talla más pequeña, 4 por el lado derecho y 4 por el lado revés).
20.07.2023 - 11:58