Tweed Casual |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. HNAPPAGAT: Hnappagöt eru prjónuð, með byrjun frá réttu, þannig: Prjónið yfir fyrstu 8 lykkjurnar eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 8 lykkjurnar eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 8 lykkjurnar (síðasta umferðin er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn. Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 8 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan. Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist: S: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. M: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. L: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. XL: 6, 14, 22, 30 og 38 cm. XXL: 6, 15, 23, 31 og 39 cm. XXXL: 6, 15, 24, 32 og 40 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið og bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp það sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram framstykkjum og prjónaður er tvöfaldur kantur að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-224-240-264-280 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt (frá réttu) og fækkað er um 30-34-38-38-46-46 lykkjur jafnt yfir = 162-174-186-202-218-234 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki 41-44-47-51-55-59 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 80-86-92-100-108-116 lykkjur á bakstykki á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT þegar lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli eru lykkjur felldar af fyrir handvegi og hvort stykki er síðan prjónað til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: HANDVEGUR: Í byrjun á næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: HANDVEGUR: Í lok næstu umferðar frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. BAKSTYKKI: = 76-80-84-92-100-106 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur í hvorri hlið á stykki, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 74-78-82-86-90-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli (28-30-31-33-34-37 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 27-29-30-32-33-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 12-12-10-12-10-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-3-2½ cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 54-54-54-51-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2-3-4-4-4-5 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 56-58-60-62-66-66 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu þannig: Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 9-9-10-5-4-4 lykkjur í byrjun á hverri umferð alls 2-2-2-5-6-6 sinnum = 20-22-20-12-18-18 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 1½ til 2 metra inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur (með þessu er hægt að prjóna áfram með dokkuna án þess að þurfa að klippa þráðinn frá í lokin) þannig: Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund. Nú er haldið áfram með stykki í þeim enda á umferð sem dokkan er í = neðst á framstykki. Fitjið upp 16 lykkjur fyrir kant að framan eins og viðbót við lykkjur sem teknar voru upp neðst á framstykki (uppfitjun á lykkjum er gerð frá röngu). Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 16 lykkjur samtímis sem kanturinn að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkjunni á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu / næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 16 kantlykkjur að framan, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið kant í hálsmáli að aftan. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Lyftið yfir fyrstu / næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 8-8-9-9-10-10 cm. Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og síðan er fellt af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjað er að taka upp lykkjur efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund. Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp eru fitjaðar upp 16 lykkjur fyrir kant að framan (= neðst á framstykki). Nú er kantur að framan prjónaður yfir 16 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan er prjónaður kantur í hálsmáli að aftan. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 8-8-9-9-10-10 cm. Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Síðan eru lykkjur felldar af. FRÁGANGUR. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við kant í hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Carmel wrote:
Hi, as I am not able to use circular or double pointed needles, can you supply this pattern for knitted flat on double pointed needles please? I have not been able to find any other pattern quite like it. Many thanks
17.03.2024 - 04:54DROPS Design answered:
Dear Carmel, please understand, that since we have thousands of patterns on our site, we cannot modify them to each individual request. You are welcome though to modify them to your needs, and HERE is a lesson that might help you do that: Happy Knitting!
17.03.2024 - 09:35Bodil Møller Jensen wrote:
Jeg begyndte at strikke forkanten på pind fem, men blev enig med mig selv om, da jeg var ca halvvejs, at jeg ville trevle op og gå en pind størrelse op, for det blev simpelthen for stramt, så hvis man ikke strikker meget løst, og jeg strikker ikke meget fast, så er det ikke en god idé at følge pindestørrelse i opskriften.
29.02.2024 - 21:54Graça Costa wrote:
Bom dia tenho alguma dificuldade em perceber como se faz as orlas na frente do casaco, tem algum vídeo?
04.02.2024 - 10:51DROPS Design answered:
Bom dia! Neste modelo, levantam-se, primeiro, malhas a toda a volta da abertura do casaco. Essas malhas vao unir o casaco às carcelas que se tricotam em separado e são unidas ao casaco como se pode ver neste vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1728&lang=pt Bons tricôs!
05.02.2024 - 09:48Barbro wrote:
Hej!Jag stickar 233-9 storlek XL men ärmarna kommer bli för långa, behöver nog korta dom ca 3 cm, hur gör jag det bäst? Har aldrig stickat ärmar på detta vis förut.
08.11.2023 - 17:10DROPS Design answered:
Hei Barbro. Du kan bare strikke den 3 cm kortere mellom vrangbord og til arbeidet måler 51 cm, men da må du regne ut hvor ofte du må øke slik at du har riktig maskeantall når ermet måler 51 cm og det skal strikkes ermtopp. Eller du kan begynne med økningene når ermet måler 9 cm (istedenfor 12 cm.) Om du allerede har strikket ferdig ermet med den oppgitte lengden og ikke ønsker å rekke opp, kan du rekke opp vrangborden og 3 cm av ermet og så strikke ny vrangbord (maskene blir da andre vei) Se evnt videoen: Hur man förlänger en stickad ärm/ ett fram- & bakstycke. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 11:49Anna Flesvig wrote:
Kan jeg få tips på navn i garntype C. Ser av tidligere spørsmål at man kan kutte ut følgetråden og gå fra gruppe B til C.
01.11.2023 - 16:06DROPS Design answered:
Hei Anna, Hvis du velger Garn og Pinner på toppen av oppskriften, deretter Garngrupper (nederst og litt til høyre), finner du alle garn i gruppe C. God fornøyelse!
02.11.2023 - 06:58Eva wrote:
Hi - I'm a beginner, so I'm sorry if this is an obvious question. I just want to check regarding the A.1, A.2, and A.3 patterns.. The first row is always started from the right side. Should I still purl the 3 stitches together, even if I'm doing stocking stitch? And for A.2 and A.3, when I turn around and knit from the wrong side (2nd line in the pattern), does the yarn over have to be in the precise place indicated in the pattern, relative to the stitches that were purled together?
28.08.2023 - 15:36DROPS Design answered:
Dear Eva, correct, you will decrease by purling 3 sts toegther, then in A.2 and A.3 work the yarn over after the remaining stitch in A.2 and before the remaining stitch in A.3 (reading from the left towards the right from wrong side). Happy knitting!
28.08.2023 - 16:36Nisa Pahladsingh wrote:
Hello! What would the difference be if I chose not to use the Kid-Silk quality? Is it possible to make the cardigan without it?
07.08.2023 - 22:23DROPS Design answered:
Dear Mrs Pahladsingh, you then might have to use a yarn group C instead of this combination of yarns, you would then keep correct and desired tension. Happy knitting!
08.08.2023 - 09:17Cristina Borghetti wrote:
Buongiorno, Vorrei eseguire questo modello taglia s con il filato Nepal che lavoro con i ferri 4,5. Posso utilizzare lo stesso numero di maglie o cambia qualcosa?
15.05.2023 - 11:36DROPS Design answered:
Buonasera Cristina, Nepal è un filato che appartiene al gruppo C, mentre questo modello è lavorato con un filo di un filato del gruppo A e un filo di un filato del gruppo B: può provare a fare un campione con Nepal e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!
15.05.2023 - 21:45Cristina Borghetti wrote:
Buongiorno, Vorrei eseguire questo modello taglia s con il filato Nepal che lavoro con i ferri 4,5. Posso utilizzare lo stesso numero di maglie o cambia qualcosa?
15.05.2023 - 11:12DROPS Design answered:
Buonasera Cristina, Nepal è un filato che appartiene al gruppo C, mentre questo modello è lavorato con un filo di un filato del gruppo A e un filo di un filato del gruppo B: può provare a fare un campione con Nepal e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!
15.05.2023 - 21:42Linda wrote:
Last line for sleeves: Cast off 9-9-10-5-4-4 stitches at the beginning of each row 2-2-2-5-6-6 times = 20-22-20-12-18-18 stitches. Cast off. The math does not add up here. Do you have to cast off 2 times the number of rows stated instead? Or cast off at the beginning and end of the row?
15.03.2023 - 13:06DROPS Design answered:
Dear Linda, these stitches will be indeed cast off two times since you cast off at the beginning of each row, both from right side and from wrong side, for ex in S cast off 9 stitches at the beginning of next 4 rows (= 9 sts 2 times on each side). Happy knitting!
15.03.2023 - 13:46