DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spice Market

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 233-10
DROPS Design: Mynstur x-485
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-900-1000-1100 g litur 66, toffee

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum.
Öll útaukning er gerð á undan/á eftir A.1/A.2 (lykkja með prjónamerki er miðjulykkjan í A.1/A.2).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þega prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í uppsláttinn þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá réttu þannig (þetta á einnig við þegar stykkið er prjónað í hring):
Á UNDAN A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í uppsláttinn þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Alaska. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm.
Í næstu umferð eru 4 prjónamerki sett í stykkið, þetta er gert jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkju í umferð eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar aukið á út fyrir laskalínu (hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju frá stroffi):
Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkju slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Að auki er A.1 prjónað við hvert prjónamerki (lykkja með prjónamerki er miðjulykkjan í A.1).
Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón, A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið á hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki, en nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.1 (A.2 er endurtekið síðan á hæðina – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
= 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ S, M, L og XL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermar í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 13-17-19-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XXL og XXXL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum til viðbótar = 152-180 lykkjur.
Aukið síðan út á fram- og bakstykki og ermum í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 22-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 248-280-296-320-340-368 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og A.2 án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan á eftir stoffi í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-22-26-26-32 lykkjur jafnt yfir = 182-198-212-232-252-282 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laus með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 7-10-12-13-15-15 sinnum = 41-43-45-47-47-49 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki og festið niður með 4 sporum með því að sauma það niður með einu spori í hverja laskalínu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spice Market

Heléne, Norway

Spice Market

Lisa & Bella, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Shah wrote:

I am a bit confused with the short row section. "Start from the right side 2 stitches before marker-stitch-3 (front left neck when the garment is worn). Work stockinette stitch, A.1 and increase for RAGLAN – read description above, until you have worked 2 stitches past marker-stitch-2 (front right of neck and 8 stitches increased for raglan)." The pattern says it is a 8 stitch increase but would it not be two stitch increase based on chart A1?

22.04.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Dear Shah, the 8 increases specified are not the ones according to chart A.1; they are worked additionally to the chart. You work 1 repeat of A.1 on each marker, so you should have 4 repeats of A.1. Each marker indicates the raglan line. As explained in RAGLAN above, you increase on both side of the marker/ A.1., so you should increase 8 stitches in the row. Since you have started before marker-3 and finish after marker-2, you should have worked 8 increases on the row. Happy knitting!

23.04.2023 - 20:10

country flag Ximena Merino (Chile) wrote:

Tienen algún vídeo que muestre cómo empezar la “línea del escote”? Lo leo pero no lo puedo entender. Ese sector se teje de ida y vuelta y no en redondo? Tengo que poner una lana nueva? Gracias!!

15.04.2023 - 23:18

DROPS Design answered:

Hola Ximena, después del cuello doble y cortar el hilo, añades un nuevo hilo y comienzas 2 puntos antes del marcapuntos-3 en el cuello. Ahora trabajas filas acortadas (de ida y vuelta) según se indica en el patrón; puedes ver cómo trabajar filas acortadas aquí: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&lang=es.

16.04.2023 - 18:34

country flag Manon wrote:

Ik zoek een Matentabel voor dit model.

31.03.2023 - 11:02

country flag Manon wrote:

Ik zou een patroon willen gebruiken maar vind nergens de Matentabel met de afmetingen. Waar kan ik dit vinden?

31.03.2023 - 11:01

DROPS Design answered:

Dag Manon,

De maten komen overeen met de Amerikaanse maten S t/m XXXL. Om de maat te bepalen kan het ook handig zijn om een bestaand kledingstuk erbij te pakken en daarvan de maten te vergelijken met de maten in de tekening onderaan het patroon.

01.04.2023 - 19:14

country flag Christiane Doulet wrote:

Est ce que je peux faire ce modèle pour une femme ? Merci

30.03.2023 - 22:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Doulet, tout à fait, retrouvez également la version femme ici. Bon tricot!

11.04.2023 - 09:52

country flag Elina wrote:

Onko ohjeessa virhe pääntien kohdassa? Lyhennetyt kerrokset aloitetaan tekemään (XXL) 108 silmukalla, ja lyhennettyjen kerrosten (+8s+4s+8s+4s) jälkeen työssä on 132s. Kaarroke alkaa kuitenkin 140 silmukalla? Missä kohdassa tulisi lisätä nuo puuttuvat 8s?

07.03.2023 - 22:15

DROPS Design answered:

Hei, nämä 8 silmukkaa lisätään, kun jokaisen merkin kohdalla neulotaan piirroksen A.1 mallineuletta (eli jokaisen 4 merkin kohdalla lisätään 2 silmukkaa = yhteensä 8 lisättyä silmukkaa).

08.03.2023 - 16:52

country flag Daniela Faranda wrote:

Questo maglione è lavorato con ferri circolari Vorrei questo modello con uno schema ai ferri lineari

02.03.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, purtroppo in questa sede non ci è possibile riadattare i modelli alle singole esigenze. Le ricordiamo che per un'assistenza più personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

02.03.2023 - 18:49

country flag Evelien wrote:

Dear Mr, Mrs, It seems there is a counting error for (at least) size XL upon division for the yoke: 100 stitches need to be divided into 15+21+29+21+14 instead of 14+21+27+21+13. Kind regards Evelien

27.02.2023 - 19:14

DROPS Design answered:

Dear Evelien, please note that the markers should be inserted in one stitch and not between stitches, so that you should have: 15+1+21+1+29+1+21+1+14=104 sts (including increases). Happy knitting!

28.02.2023 - 11:22

country flag Heather wrote:

Hello, I am knitting size XL having completed double neck I have my 104 sts. Following directions for neckline having completed the rows R.S=8inc, W.S=4, R.S=8inc, W.S=4 the number of increases total=24st. This added to my 104 would only add up to 128 st however the pattern states the yoke should be 136 sts for XL. I must be missing something?

21.02.2023 - 23:11

DROPS Design answered:

Dear Heather, please note that you will increase 2 stitches in each A.1 when working the first row (P1, YO, K1, YO, P1) so that you will have 104 + 8 sts increased in A.1 + 8 sts increased for raglan = 120 sts after 1st row + 4 sts increased from WS = 124 + 8 sts increased on 3rd row = 132 sts + 4 sts increased on 4th row = 136 sts. Happy knitting!

22.02.2023 - 08:43

country flag Suzanne wrote:

Hej…halskant…ska man sticka förkorta varv på framsidan och på baksidan… Lite otydligt när man är nybörjare.. Man måste väll öka på framsidan och baksidan men inte på ärmana? Så förkorta varv på fram och baksida halsen? . ? .

21.02.2023 - 06:42

DROPS Design answered:

Hei Suzanne. Når halskanten er ferdig strikker skal tråden klippes og du starter nå 2 masker før masken med 3. merke, så strikkes det forkortete pinner over noen få masker på forstykket, over 1 raglanlinje, over ett erme, over neste raglanlinje, over bakstykket, over neste raglanlinje, over det andre ermet og over siste raglanlinje og noen få masker over forstykket, snu og fortsett med forkortete pinner som forklart i oppskriften. Det strikkes ikke forkortete pinner midt foran. Husk økningene til raglan. Når de forkortete pinnene er ferdig strikket, klippes tråden og man starter midt bak. mvh DROPS Design

06.03.2023 - 09:25