DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4201.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Fairytale

Prjónað vesti úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í sléttprjóni með skáhallandi öxl. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-42
DROPS Design: Mynstur fa-521
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-200-200-200 g litur 922, ávaxtapúns
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-75-75-100 g litur 22, öskugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4201.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka, neðan frá og upp.
Bakstykkið er 2 cm lengra en framstykkið. Kantar í kringum handveg og hálsmál er prjónað í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-96-104-112-120-132 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroff í næstu umferð þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni.
Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 14-14-16-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 74-82-88-96-106-116 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið. Fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og fækkið um 1 lykkju 1-3-4-6-9-12 sinnum = 62-66-70-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 4-5-5-5-6-6 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 5-4-5-6-4-6 lykkjur á þráðinn. Núna hafa allar lykkjur verið felldar af eða settar á þráð.
Setjið til baka 17-19-20-21-22-24 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að sleppa við göt þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið: Fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-3-4-6-9-12 sinnum = 62-66-70-72-76-80 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm (nú eru eftir ca 10-10-12-12-14-14 cm að loknu máli). Í næstu umferð frá réttu eru miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur settar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráð, setjið til baka 17-19-20-21-22-24 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, byrjið við handveg og saumið niður þar til 1 cm er eftir að stroffi – héðan og niður á að vera klauf og bakstykkið er lengra en framstykkið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk. Notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 80 til 100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) hringinn í kringum allt hálsmálið. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið frá réttu þar sem fellt var af fyrir handveg með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk. Notið stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 og prjónið upp ca 112 til 136 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt.
Hægt er að brjóta uppá kantinn að innanverðu á stykki til að minnka víddina á öxlum og fá þykkari kant í handvegi.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Lena wrote:

Hallo, ich verstehe den Halsausschnitt auf der Vorderseite nicht so ganz. In der Anleitung steht ja die mittleren x Maschen stilllegen. Soll dann von den stillgelegten Maschen weiter abgekettet werden oder wie kann ich mir das vorstellen?

01.05.2024 - 18:05

DROPS Design answered:

Liebe Lena, wenn die mittleren Maschen für den Halsausschnitt stillgelegt werden, dann strickt man jede Schulter separat; am Anfang jeder Reihe vom Hals (Hin-Reihe für rechte Schulter/Rück-Reihe für linke Schulter) wird man Maschen abketten (Halsausschnitt) und gleichzeitig werden Maschen für den Schulter stillgelegt und zwar am Anfang jeder Rück-Reihe bei der rechten Schulter/jeder Hin-Reihe bei der linken Schulter. Viel Spaß beim Stricken!

02.05.2024 - 08:20

country flag Lina Melegari wrote:

Quanta lana mi occorre per fare il gilet Fairytale con Fabel 330 e 2 colori Kid Silk 16 e 17 per la mia taglia 48 Grazie per la Vs; cortesia e per il Vs bellissimo sito

15.03.2024 - 17:29

DROPS Design answered:

Buonasera Lina, per trovare la taglia corretta può seguire lo schema per le taglie in fondo alla pagina del modello. Buon lavoro!

16.03.2024 - 18:53

country flag Brigitte wrote:

Ich habe eine grundsätzliche Frage zur Maschenzahl. Nach Strickmuster für Größe M: Breite des Vorder- und Rückenteils 48 cm. Anschlag jeweils 96 Maschen. Da die Maschenprobe mit 5er Nadeln 17 Maschen = 10 cm ergibt, kann ich nicht verstehen, wie es zu 96 Maschen kommt, um eine Weite von 48 cm zu erreichen. 17 x 4.8 = 81,6, also 82 Maschen oder vielleicht ein paar mehr, aber doch nicht 14 extra = ca. 8cm? Verstehe ich etwas falsch? Danke für eine Erklärung

02.02.2024 - 17:37

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, für dieselbe Breite braucht man mehr Maschen für Bündchen mit den Nadeln Nr 4 als mit für Glattrechts mit den Nadeln Nr 5 , deshalb werden zuerst mehr Maschen für das Bündchen angeschlagen, dann Maschen abgenommen für die Nadeln Nr 5 = 82 Maschen mit 17 Maschenproben sind ca 48 cm breit. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2024 - 07:55

country flag Mona wrote:

Hej. Under “forklaring til opskriften” står der, at der skal strikkes i retstrik (ret på alle pinde). Længere nede står der så glatstrik. Ud fra opskriften lyder det som om, det er glatstrik hele vejen (på nær ved ribstrik). Er det en fejl?

30.01.2024 - 18:18

DROPS Design answered:

Hei Mona. Det er bare kantmaskene som skal strikkes i RETSTRIKK. Altså når du strikker vrangborden skal den strikkes slik: 1 maske RETSTRIK, strik rib (2 ret / 2 vrang) til der er 3 masker tilbage, strik 2 ret, 1 maske RETSTRIK. Selve vesten strikkes i glattstrikk, slik du ser på bildet. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 14:10

country flag Madeleine wrote:

Jag har maskat av de mittersta 26 maskorna och har nu axlarna kvar på stickorna som jag ska börja med. Förstår inte riktigt vad som menas med ”Minska 1 maska till hals i början av nästa varv från halsen”. Är det från avigsidan på ena axeln?

01.01.2024 - 23:09

DROPS Design answered:

Hej Madeleine, ja på ditt högra framstycke minskar du från rätsidan och vänster framstycke minskar du från avigsidan vid att sticka ihop de 2 första maskorna :)

03.01.2024 - 08:01

country flag Marielle Benningen wrote:

I am having difficulty understanding the diagonal shoulder. Is it possible to knit to knit plain shoulder straps?

21.11.2023 - 03:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Benningen, you could but your measurements might be then different as the one in the chart; diagonal shoulders are just short rows: you slip the first stitches at the beg of a row from shoulder towards neck on a thread on every other row until all stitches are slipped aside (at the same time bind off for neck as explained for your size), then work all stitches and bind off on net row. Happy knitting!

21.11.2023 - 08:59

country flag Virginie wrote:

Bonjour , Je ne comprends pas ce passage « COL: En commençant sur l’endroit à une des épaules, relever, avec la petite aiguille circulaire 4, 80 à 100 mailles (y compris les mailles en attente) autour de l’encolure. » ? : En commençant la relève des mailles à une épaule avec un nouveau fil, que faire de ce fil lorsque j’arrive aux 14 mailles qui sont en attente ? Merci d’avance pour votre réponse :)

04.11.2023 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, effectivement, vous commencez à relever les mailles au niveau de la couture d l'une des épaules, puis vous relevez des mailles jusqu'à vos 14 mailles en attente, vous tricotez ces 14 mailles à l'endroit et vous continuez à relever les mailles autour de l'encolure jusqu'au début du tour. Si votre. nombre de mailles n'est pas divisible par 4 lorsque vous relevez les mailles, diminuez/augmentez à intervalles réguliers au 1er tour de côtes. Bon tricot!

06.11.2023 - 08:06

country flag Juliette wrote:

Bonjour, je ne comprends pas ce que signifie tricoter “ une maille au point mousse” au tout début du tricot. Il ne faut pas juste faire des côtes 2/2 sur 4 cm ?

23.10.2023 - 15:38

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, vous tricotez bien en côtes pour le bas du dos/devant mais avec 1 maille lisière au point mousse de chaque côté, autrement dit, tricotez à l'endroit la 1ère maille et la dernière maille de chaque rang (sur l'endroit mais aussi sur l'envers). Bon tricot!

24.10.2023 - 08:47

country flag Juliette wrote:

Bonjour, - j’ai une question concernant ce passage «Placer en attente 3 fois 4 mailles puis les 5 dernières mailles ». Pourquoi il faut les placer séparément ? je peux mettre mes 17 mailles sur un arrête maille directement non? - je ne comprends pas ce qu’il faut faire ici non plus : « relever le fil entre 2 mailles et le tricoter ensemble torse à l’envers » Merci bcp !

20.10.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

BonjourJuliette, on tricote des rangs raccourcis pour former un biais au niveau des épaules: on a ainsi plus de rangs côté encolure que côté emmanchure - dans cette vidéo, on montre (pour un autre modèle) comment procéder. Pour éviter des trous entre les mailles en attente, relevez le fil au niveau où vous avez tourné, et tricotez le torse avec la maille suivante pour éviter un trou. Bon tricot!

20.10.2023 - 16:03

country flag Juliette wrote:

Et ducoup il faut rabattre 2 fois, cad une m au niveau de chaque épaule? et il y a écrit qu'il faut 'finir les épaules séparément' mais je ne comprends pas comment faire parceque après avoir fait l'étape de l'encolure ça veut dire qu'on reste sur une épaule et on continu de tricoter et après on fait pareil sur l'autre je suppose ? et après il y a écrit 'rabattre souplement' ça veut dire qu'il faut rabattre toutes les mailles sur les 2 chaque épaule pour les finir quoi ?

20.10.2023 - 13:15

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, quand vous avez rabattu les mailles de l'encolure dos, vous terminez les 2 épaules l'une après l'autre, rabattez sur l'endroit, mettez les mailles de l'épaule droite en attente et terminez l'épaule gauche: en début de rang sur l'envers, tricotez les premières mailles pour les mettre en attente, et rabattez 1 maille au début du 1er rang à partir de l'encolure (=sur l'endroit pour l'épaule gauche du dos), terminez l'épaule gauche comme indiqué, puis coupez le fil, et tricotez l'épaule droite de la même façon. Bon tricot!

20.10.2023 - 14:20