Cream Wafer |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu á eftir / undan 2 lykkjur sléttprjón við hvert prjónamerki þannig: Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar inn í mynstur í næstu umferð. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-88-88-96-96-96 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 11 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður þar sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 5 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er og aukið út þannig: Prjónið 1 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur 26-30-30-34-34-34 sléttar lykkjur og aukið út 16-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING! (= 42-42-42-50-50-50 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 26-30-30-34-34-34 lykkjur slétt og aukið út um 16-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 42-42-42-50-50-50 lykkjur fyrir bakstykki). Nú eru 112-112-112-128-128-128 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð, ca mitt að aftan, berustykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Það á að prjóna mynstur og auka út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt (1. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjus léttprjón (2. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 40-40-40-48-48-48 lykkjur (5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd), prjónið A.4 yfir 1 lykkju, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkju sléttprjón (3. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (4. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, prjónið A.3 yfir 40-40-40-48-48-48 lykkjur (5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd), prjónið A.4 yfir 1 lykkju og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar í mynstur A.1 og útauknar lykkjur á framstykki/bakstykki er prjónað eins og útskýrt er í A.2/A.4). Þegar mynsturteikning A.2 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.4, lykkjur sem eru auknar út á framstykki/bakstykki eru prjónaðar inn í mynstur A.1 (kaðli er snúið í sömu umferð í mynsturteikningu A.3 og A.5/A.6 alla leiðina). Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 19-23-25-27-27-29 sinnum hvoru megin við hvert prjónamerki = 264-296-312-344-344-360 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. aukið er út á eftir 2. og 4. prjónamerki og aukið út á undan 3. og 1. prjónamerki). Aukið svona út alls 3-2-3-1-3-6 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 19-23-25-27-27-29 sinnum á ermum, alls 22-25-28-28-30-35 sinnum á fram- og bakstykki og það eru 276-304-324-348-356-384 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-27-29-32 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Nú á að skipta stykkinu fyrir ermar og fram- og bakstykki, þetta er gert þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 90-96-102-110-114-124 lykkjur eins og áður, setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 88-94-100-108-112-122 lykkjur eins og áður. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-204-220-236-252-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, í miðju á nýjum lykkjum sem voru fitjaðar upp undir ermum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og haldið áfram hringinn með mynstri A.1 hvoru megin við A.5, A.3 og A.6. ATH: A.1 kemur ekki endilega til með að ganga jafnt upp undir ermum í hvorri hlið, prjónið þess vegna 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru stilltar af miðað við mynstur á framstykki og bakstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-28-28-29-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón og fækkið um 28 lykkjur jafnt yfir í umferð = 164-176-192-208-224-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-68 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 54-62-68-72-76-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Haldið áfram hringinn í mynstri A.1. ATH: Mynstrið kemur ekki endilega til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, prjónið þess vegna 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru stilltar af miðað við mynstur á ermi. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 6-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 6-9-11-12-13-14 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 37-36-34-33-32-30 cm frá skiptingu (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd, það eru eftir 5 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í næstu umferð. Ermin mælist 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Kris Schmidt wrote:
Please explain how to "cut yarn" at the end of the yoke after under arm stitches have been added and then restart knitting in the middle of the new stitches under the arm.
07.03.2024 - 02:42DROPS Design answered:
Hi Kris, You finish the last round on the yoke (with the cast-on stitches for the armholes) after the back piece. If you are not happy cutting the yarn and beginning again mid-under the sleeve you can work to the first of the new markers. The main thing is that the round now starts under one sleeve. Happy knitting!
07.03.2024 - 07:01Ola wrote:
W dodawaniu oczek na reglan powinno być w opisie jak dodawać za markerem i przed markerem a jest dwa razy: "przed markerem"
04.12.2023 - 14:39DROPS Design answered:
Bardzo Ci dziękuję Olu. Pomyłka już poprawiona. Pozdrawiam!
05.12.2023 - 09:51FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonjour, Merci de votre patience mais j'ai trouvé toute seule pour la dernière question. encore merci et bonne journée
30.11.2023 - 09:36FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonjour, Je sais que je dois vous embété mais quand on arrive avec les augmentations des côtés du devant et du dos on augmente que d"un côté à gauche ou à droite. Merci
29.11.2023 - 17:49DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lelarge, lorsque vous augmentez pour le raglan uniquement pour le dos et le devant, au début et à la fin du dos + au début et à la fi n du devant. Bon tricot!
30.11.2023 - 10:00FRANÇOISE LELARGE wrote:
Rebonjours Quand on augmente pour les côtés du devant ou du dos on augmente d'un seul côté ou des deux côtés. Là je suis perdue
29.11.2023 - 17:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lelarge, vous parlez des augmentations du raglan faites uniquement pour le dos et le devant? Si c'est bien le cas, lorsque vous avez augmenté 27 fois (taille XXL) 8 mailles pour le raglan (dos, devant et manches), on augmente maintenant que pour le devant et le dos (plus pour les manches), soit 4 mailles (2 pour le devant et 2 pour le dos) 3 fois au total, vous avez ainsi augmenté 30 fois pour le dos et le devant (mais toujours 27 fois pour les manches). Bon tricot!
30.11.2023 - 09:57FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonjour, Il doit y avoir une erreur dans les explications au moment de diviser l'ouvrage un vous nous dite de mettre 114 mailles et après l 'autre vous nous dite 112 mailles.
29.11.2023 - 13:33DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lelarge, lorsque vous tricotez le tour de division des manches, pour tricotez les 2 premières mailles à l'endroit auxquelles s'ajouteront les 112 dernières mailles du tour pour le dos = vous aurez ainsi bien 114 mailles pour le dos et 114 mailles pour le devant. Bon tricot!
29.11.2023 - 15:32FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonnjour, J'ai détricoté mon pull jusqu'à l'ecolure et je le refais car je compte mes augmentations depuis le début de l'ouvrage et il me semble que celà est mieux. Merci pour tous les bons conseils que vous me donné . Bonne journée
26.11.2023 - 11:18FRANÇOISE LELARGE wrote:
Je voulait dire augmentation.
25.11.2023 - 09:38FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonnjour, les 27 fois augmentations total se compte depuis le début de l'ouvrage ? Je pense que oui, c'est pour celà que j'ai du redéfaire mon ouvrage car trop de mailles. L'explication ne dit pas si on doit compter les diminutions depuis le début de l'ouvrage dès que l'on commence les diminutions.
25.11.2023 - 09:36FRANÇOISE LELARGE wrote:
Bonsoir, je vais défaire mon tricot car après mes 27 fois aufmentations je me retrouve avec beaucoup trop de mailles et j ne comprend pas ; pourtant j'ai bien suivi les diagrammes . et les augmantations tous les deux rangs. Merci pour votre réponse. en attendant je redefait mon tricot jusqu'à l'encolure qui elle est bonne.
24.11.2023 - 18:57DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lelarge, effectivement, on va augmenter 27 fois au total tous les tours, soit 128 mailles + 27 fois 8 mailles = 344 mailles, autrement dit, y compris la 1ère augmentations décrite dans les explications. Bon tricot!
27.11.2023 - 07:47