Christmas Time Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með jólasveinum og jólatrjám. Stærð S - XXXL. Þema: Jól.
DROPS 233-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Ef óskað er eftir meira mynstri á fram- og bakstykki og ermum, er hægt að halda áfram með mynsturteikningu í röð að eigin ósk, en munið eftir að þetta kemur til með að hafa áhrif á efnismagn. Á ermum er mynd staðsett mitt á ermi og það er talið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós grár, prjónið lykkjuna með prjónamerki með litnum ljós grár, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 9½-10-9-9-9½-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 122-126-130-134-142-146 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós grár í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn skógargrænn. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka jafnframt því sem rendur eru prjónaðar þannig: Prjónið 1 umferð með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, haldið síðan áfram með stroff með litnum ljós grár þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 29-31-37-41-43-45 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 151-157-167-175-185-191 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Setjið 1 prjónamerki í stykkið við miðju að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós grár og með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykki mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 38-40-54-54-60-62 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 189-197-221-229-245-253 lykkjur. Stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningar eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR-1 og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Allur kanturinn að framan eru prjónaður með litnum ljós grár. A.1: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu), prjónið síðan A.1 alls 22-23-26-27-29-30 sinnum (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), endið umferð með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATH. Þegar prjónað er frá réttu er A.1 endurtekið eftir kant að framan þar til 7 lykkjur eru eftir, síðan er fyrsta lykkjan í A.1 prjónuð svo að mynstrið byrji og endi alveg eins áður en endað er með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 48-56-56-64-64-72 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 237-253-277-293-309-325 lykkjur. A.2: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.2 frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (séð frá réttu), prjónið A.2 alls 28-30-33-35-37-39 sinnum, endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 40-48-48-56-64-64 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 277-301-325-349-373-389 lykkjur. A.3: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan, prjónið A.3 alls 33-36-39-42-45-47 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.3 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 24-32-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 301-333-365-397-421-445 lykkjur. A.2: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (séð frá réttu), prjónið A.2 alls 36-40-44-48-51-54 sinnum, endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 16-16-16-16-24-32 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 317-349-381-413-445-477 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2 – jafnframt skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 23-25-26-28-30-32 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 52-56-60-66-72-78 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-68-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi), prjónið 93-101-109-121-133-145 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 60-68-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 52-56-60-66-72-78 lykkjur eins og áður (framstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 213-229-245-269-293-317 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 41-41-45-53-57-61 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 254-270-290-322-350-378 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-76-80-84-88 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 5. af 8 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2 JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-37-37-35-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 64-68-68-72-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-44-44-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Anna wrote:
Ops! Dimenticato la taglia... XL
18.09.2023 - 10:24Anna wrote:
Salve è grazie per la grande varietà di modelli disponibili:-) ,se volessi lavorare questo cardigan in tinta unita quanto filato dovrei acquistare? Grazie in anticipo e buon lavoro !
18.09.2023 - 10:20DROPS Design answered:
Buonasera Anna, la bellezza di questo modello è proprio lo sprone lavorato! Per la quantità di filato in più necessaria, si può rivolgere al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
25.09.2023 - 23:15