Frozen Flowers |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð jólakúla úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað í hring í 2 stykkjum frá miðju og út, með áferðamynstri, stjörnu og skúf. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1589 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Í byrjun á umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. 3 STUÐLAR SAMAN: Heklið 2 stuðla um loftlykkjuhringinn, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn á báðum þessum stuðlum í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um loftlykkjuhringinn, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. 1 STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um toppinn á stuðlahóp, þ.e.a.s. ekki er heklað í sjálfan lykkjubogann, heldur hringinn utan um toppinn á stuðlahópnum. 2 STUÐLAKRÓKAR-ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR FYRIR HORN Á STJÖRNU: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul til hægri (frá fyrri umferð), en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 þríbrugðinn stuðul um stuðlakrókinn-tvíbrugðinn stuðul til vinstri (frá fyrri umferð), en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – sjá 3. umferð í mynsturteikningu A.1. 1 STUÐLAKRÓKUR-STUÐULL: Heklið 1 stuðul um toppinn á horni á stjörnu, þ.e.a.s. ekki er heklað í sjálfan lykkjubogann, heldur hringinn utan um toppinn á stuðlakrók-þríbrugðnum stuðlum frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLAKÚLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Jólakúlan er hekluð í hring frá miðju og út í 2 alveg eins stykkjum. Stykkin eru hekluð saman og mynda jólakúlu sem er útskýrð í uppskrift sem síðan er fyllt með vatti. Að lokum er gerður skúfur sem er festur í botninn á jólakúlunni og lykkja er hekluð efst á jólakúluna. STYKKI-1: Byrjið með heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan og tengdið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1, eða fylgdu útskýringu að neðan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: * Heklið 3 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN um loftlykkjuhringinn – sjá útskýringu að ofan, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* alls 6 sinnum. UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjubogann, * 3 stuðlar um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 1 STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL – sjá útskýringu að ofan, um toppinn á stuðlahópnum frá fyrri umferð *, heklið frá *-* alls 6 sinnum. UMFERÐ 3: * Heklið 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, heklið 2 STUÐLAKRÓKAR-ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR FYRIR HORN Á STJÖRNU – sjá útskýringu að ofan, hoppið yfir 1 stuðul, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 6 sinnum. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjum. Heklið 1 STUÐLAKRÓK-STUÐULL – sjá útskýringu að ofan, um toppinn á horni á stjörnu, heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 næstu lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum. Þegar þessar 4 umferðir hafa verið heklaðar, hefur A.1 verið heklað til loka. Klippið þræðina og festið. Heklið eitt alveg eins stykki til viðbótar, heklið síðan 1 keðjulykkju í næstu lykkju , ekki klippa þræðina frá. FRÁGANGUR: Leggið bæði stykkin saman – passið uppá að byrjun á umferð mætist á báðum stykkjunum og að hornin á stjörnum mætist á sama stað. Byrjið umferð við horn á stjörnu og heklið stykkin 2 saman í gegnum bæði lögin og í gegnum heilu lykkjubogana þannig: * 2 fastalykkjur í lykkju við horn á stjörnu, 1 fastalykkja í gegnum hverja og eina af 6 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn, en skiljið eftir smá op í lok umferðar. Fyllið jólakúluna með vatti og heklið síðan opið saman. Klippið þræðina frá og festið. Byrjun á umferð er núna mitt undir jólakúlunni. LYKKJA: Haldið jólakúlunni þannig að byrjun á umferð verði mitt undir kúlunni. Klippið einn þráð DROPS Baby Merino ca 18 cm, þræðið í gegnum ystu lykkju við horn á stjörnu efst á jólakúlunni og hnýtið hnút í enda. SKÚFUR: Klippið 13 þræði DROPS Kid-Silk ca 35 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda og þræðið í gegnum jólakúluna við horn á stjörnu í botni á jólakúlunni. Þræðið þræðina í gegnum lykkjuna og herðið aðeins. Klippið þræðina í óskaða lengd. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Carlotta wrote:
Non riesco a trovare la spiegazione delle presine ginger per Natale
17.10.2023 - 22:21DROPS Design answered:
Buongiorno Carlotta, a quale modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
18.10.2023 - 16:57