Ocean Melody |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-10 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. . Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út í byrjun umferðar þannig (vinstra framstykki): Aukið út eftir 4 lykkjur. Prjónið 4 lykkjur eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð og jafnóðum inn í stroff. Aukið út í lok umferðar þannig (hægra framstykki): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð og jafnóðum inn í stroff. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi, hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Þegar stykkið hefur verið saumað saman, prjónið kant í hálsmáli í hring. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN: Fitjið upp 21-23-21-23-25-27 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm (endið eftir umferð frá röngu), setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón, klippið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN: Fitjið upp 21-23-21-23-25-27 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið yfir 21-23-21-23-25-27 lykkjur frá hægri öxl. Fitjið upp 21-23-27-29-31-33 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið til baka þær 21-23-21-23-25-27 lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn = 63-69-69-75-81-87 lykkjur. BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið, í fyrstu umferð í A.1 er fækkað um 1 lykkju = 62-68-68-74-80-86 lykkjur. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1 lykkju = 63-69-69-75-81-87 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN: Fitjið upp 21-23-21-23-25-27 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Aukið er út í byrjun á hverri umferð frá réttu, á eftir fyrstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum og uppslátturinn er prjónaður inn í stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið = 25-27-25-27-29-31 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka (endið eftir umferð frá röngu), setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón, klippið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN: Fitjið upp 21-23-21-23-25-27 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Aukið er út í byrjun á hverri umferð frá réttu, á eftir fyrstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum og uppslátturinn er prjónaður inn í stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið = 25-27-25-27-29-31 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 25-27-25-27-29-31 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 13-15-19-21-23-25 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið áfram eins og áður yfir 25-27-25-27-29-31 lykkjur frá vinstra framstykki = 63-69-69-75-81-87 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið, í fyrstu umferð í A.1 er fækkað um 1 lykkju = 62-68-68-74-80-86 lykkjur. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1 lykkju = 63-69-69-75-81-87 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 63-69-69-75-81-87 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 63-69-69-75-81-87 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 138-150-162-174-198-210 lykkjur. Byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum í hlið og haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn, þar til prjónað hefur verið alls 5-5-6-5-6-7 cm í stroffprjóni. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5-5-6-5-6-7 cm. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í stroffprjóni 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið til loka máls. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Prjónið upp 54-56-58-62-64-68 lykkjur meðfram opi innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 6 með DROPS Melody – þ.e.a.s. byrjið neðst á framstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar lykkjur, prjónið upp 27-28-29-31-32-34 lykkjur upp að axlasaum og prjónið upp 27-28-29-31-32-34 lykkjur frá axlasaumi og niður þar sem fitjaðar voru upp nýjar lykkjur á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-2-4-4-6-6 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-6-6-8-8 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með ca 5-5-5-3½-3-2½ cm millibili alls 7-7-7-9-9-10 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 39-39-40-38-37-36 cm. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-12-12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 49-49-50-48-47-46 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið efsta hlutann á ermi við lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 5, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60 til 88 lykkjur í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn mælist 4 cm. Fellið af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Susi wrote:
Ja, diese Frage stelle ich mir wie Charron auch immer wieder. Warum nicht mehr Modelle Topdown und ohne lästiges Zusammennähen? Das ist doch voll im Trend... ;-)
03.11.2023 - 13:26Charron wrote:
Avez vous un modèle semblable, mais tricoté en rond, ce qui serait tellement plus simple à suivre. Tout est en pièce détachée, et ça ne simplifie pas l\'envers et l\\\\\\\'endroit. Je recommence sans cesse depuis le début. Là je dois mettre de côté pour faire le devant et j\'imagine que je dois y revenir par la suite, pourquoi pas d\'un bout à l\'autre ?
28.10.2023 - 14:37Ruthsy wrote:
Hello, which size is the model wearing? I want to knit as a present but I want it to look more less like the picture, thank you.
27.06.2023 - 17:54DROPS Design answered:
Hi Ruthsy, All measurements for each size are found in the size chart at the bottom of the page. If you choose the size for your measurements, the fit will be the same as in the picture. Happy crafting!
28.06.2023 - 06:45Helena wrote:
Guten Tag, ich habe Melody in der Farbe 16 (Türkis) bestellt und die färbt extrem. Der Shop konnte mir nur bedingt weiterhelfen. Mit Mikrowelle behandeln... Niemand den ich kenne hat eine. Was kann ich sonst noch tun? Ich wasche mir alle 15-20min die Hände. Das kann doch nicht gesund sein! Danke für jedwelche Ratschläge.
09.03.2023 - 09:57DROPS Design answered:
Liebe Helena, es kann manchmal sowas mit dunklen Farben passieren. Dunkle Farben enthalten anfangs oft zusätzliche Farbe, daher ist es wichtig, dass das Kleidungsstück so lange ausgespült wird, bis das Wasser klar ist. Damit vermeidet man, dass die überschüssige Farbe andere Farben des Strickstücks beeinträchtigt. Teilen Sie bitte alles mit Ihrem DROPS Händler, der uns das mitteilen wird. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2023 - 12:07Olessia wrote:
Ocean dreams
23.01.2023 - 05:55Maria Collinge wrote:
Stairway to Heaven
22.01.2023 - 23:18Yelena Michel wrote:
Blaue Lagune
22.01.2023 - 21:57Therese wrote:
Clear sky
20.01.2023 - 00:13Ruth wrote:
Lækker
17.01.2023 - 16:32