Sweet Spring Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli, köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-11 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 1 lykkju sléttprjón (lykkja með prjónamerki í) í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 11 lykkjur (1 kantlykkja + A.1 / A.3) í hvorri hlið (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Aukið er út um alls 2 lykkjur í hverri útaukningsumferð (1 lykkja í hvorri hlið við miðju að framan). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan, séð þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 3 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum ca 8, 16 og 24 cm frá neðri kanti. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar með kaðli og gatamynstri. Jafnframt er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli/að framan í kringum allt opið á peysunni. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-74-76-78-80-82 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið að röngu. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú byrjar mynstrið á ermum, jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu og v-hálsmáli – lestu því allan næsta kafla áður en þú byrjar að prjóna. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 3 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-24-26-28 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, það eru 3 lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (framstykki). Síðan er prjónað þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir næstu 18-20-22-24-26-28 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með þetta mynstur og haldið áfram með útaukningu fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma í hverri umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.4 (26 lykkjur) yfir lykkjur í A.2. þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina, endurtakið 4 síðustu umferðir. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 10-13-15-15-21-22 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-14-14-16-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (7-7-7-8-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-29-31-35-38 sinnum á berustykki og 17-20-22-23-28-30 sinnum á ermum. JAFNFRAMT í umferð með ör í A.1/ A.3, byrjar útaukning fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 8.-8.-8.-6.-6.-6. hverri umferð 2-2-3-4-5-6 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 22-25-27-29-33-36 cm. Nú eru 264-290-310-326-366-390 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-47-52-56 lykkjur (framstykki), setjið næstu 60-66-70-72-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 16-16-16-20-20-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-82-88-98-106 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 60-66-70-72-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 16-16-16-20-20-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-41-44-47-52-56 lykkjur (framstykki) sem eftir eru. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-190-202-222-242-262 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og A.1/A.3 við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 16-15-15-15-13-12 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 28-34-42-46-46-50 lykkjur jafnt yfir = 204-224-244-268-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-66-70-72-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 16-16-16-20-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-82-86-92-102-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 16-16-16-20-20-22 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerkið og haldið áfram með A.4 og sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 10-11-13-16-19-20 sinnum = 56-60-60-60-64-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-35-33-32-28-25 cm frá skiptingu – eða óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist alls 45-43-41-40-36-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið á að nota þegar talinn er helmingur af lykkjum í kanti að framan/hálsmáli. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og það er 1. umferð sem er prjónuð í kringum hálsmál. Byrjið neðst á hægra framstykki frá réttu og prjónið upp ca 119-125-131-137-143-149 lykkjur meðfram öllum kantinum að framan upp að prjónamerki í hnakka, á hringprjóna 4 – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 119-125-131-137-143-149 lykkjur meðfram öllum kanti að framan og niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 4 + 2 = ca 238-250-262-274-286-298 lykkjur. Það er mikilvæt að stroffið verði ekki of laust og með of margar lykkjur, en stroffið á heldur ekki að draga kantana saman að framan vegna of margra lykkja. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 1½ cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af aðeins laust. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Sandra Schittkowski wrote:
Eine Frage zu den Raglanzunahmen, die Umschläge sollen immer links verschränkt gestrickt werden... aber sonst werden doch die Maschen vor und nach der Raglanmasche links bzw. rechts verschränkt gestrickt, damit man ein spiegelgleiches Bild der Zunahmen an der Raglannaht sieht. Jetzt neigen sich alle Zunahmen nach links, soll das so?
19.04.2024 - 13:32DROPS Design answered:
Liebe Frau Schittkowski, die Umschläge werden hier immer links bein den Rückreihen gestrickt (wie in diesem Video oder in dieser Lektion , aber gerne können anders stricken - siehe z.B. dieses Video. Viel Spaß beim Stricken!
19.04.2024 - 14:56Line wrote:
Hej, Kan I specificere hvor mange gange og hvor ofte jeg skal tage ud til v-hals i en str S? Tak for en fin opskrift! Mvh Line
31.03.2024 - 16:08DROPS Design answered:
Hej Line, i den mindste størrelse tager du kun ud til V-hals 2 gange :)
05.04.2024 - 12:15Nathalie Girard wrote:
Sur le modèle Sweet spring, es ce que le jeté de part et d’autre de la maille marqueur correspond aux augmentations du raglan ? Merci beaucoup
09.03.2024 - 09:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Girard, tout à fait, c'est la première augmentation pour le raglan. Bon tricot!
11.03.2024 - 07:50Girard Nathalie wrote:
Pouvez vous me confirmer que dans les diagrammes, les point en noir entre 2 mailles sont tout simplement des augmentations, contrairement aux point en blancs qui sont eux un point dentelle. Merci pour votre aide
08.03.2024 - 11:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Girard, tout à fait, ce sont tous deux des jetés mais les noirs seront tricotés torse pour éviter des trous et permettent d'augmenter alors que les blancs sont pour le point ajouré. Bon tricot!
08.03.2024 - 13:36Stephanie Bloom-Nervi wrote:
Hi, can you tell me the size used on the model for this pattern please? It would be usual to avail of this info on all patterns. Thank you, Stephanie
07.02.2024 - 09:15DROPS Design answered:
Hi Stephanie, You will find a size chart at the bottom of the pattern with all measurements for the different sizes, so you can choose the size you need. The picture of the model shows the shape and fit of the garment when you choose your correct size. Happy crafting!
08.02.2024 - 07:14Talli Cedar wrote:
Hello, I would love to knit this project but am wondering about the amount of yarn: you noted a very small amount. I have a yarn that fits the guage but find it hard to believe such small amount would be enough. Could you please clarify? For example the Bronze Summer pattern uses the same guage and much more yarn. Thank you!
03.02.2024 - 09:22Tetard wrote:
Bonjour, La deuxième partie des augmentations du raglan ne me semble pas très clair... Si j'ai compris le 1er et dernier marqueur j'augmente tous les deux rgs et le 2eme et 3eme tous les 4 rgs. Est ce bien ça ??? Je vous remercie pour votre aide Cordialement
21.01.2024 - 18:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tetard, lorsque vous avez augmenté 8 mailles entre 10 à 22 fois (cf taille) autrement dit pour les manches et pour le dos/le devant, vous allez augmenter maintenant alternativement 4 mailles (dos et devant seulement) et 8 mailles (dos, devant et manches, comme avant). Lorsque vous augmentez seulement 4 mailles, augmentez avant le 1er marqueur (devant gauche), après le 2ème et avant le 3ème marqueur (dos) et après le 4ème marqueur (devant droit). Bon tricot!
22.01.2024 - 10:24Kirsten Lund wrote:
Kan I specificere nærmere hvor i mønster A1 eller A3 jeg skal lave omslag til V-hals? Er det lige efter/før kantmasken?
09.01.2024 - 20:14DROPS Design answered:
Hej Kirsten, du strikker A1 og A3 yderst mod midt foran og tager ud til V-hals lige indenfor, altså på indersiden af A.1 og A.3 så du kan strikke de nye masker i glatstrik :)
11.01.2024 - 15:29Anida wrote:
W opisach schematów,,2 oczka na prawo i zdjąć jedno oczko,drugie przerobić na prawo i przeciągnąć,,wyświetlają się niebieskie kwadraciki ze znakiem zapytania.Dlaczego?
20.11.2023 - 19:04DROPS Design answered:
Witaj, u mnie wszystko jest ok. Może to kwestia przeglądarki. Spróbuj wyczyścić ciasteczka. Pozdrawiamy!
21.11.2023 - 08:50Devaud wrote:
Bonjour, combien de pelotes de drops kid silk pour un pull femme tricoté en trois fils et un autre pull en quatre fils. Merci de votre réponse et bonne journée
13.10.2023 - 11:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Devaud, tout dépend de la tension utilisée, en général, 2 fils Kid-Silk correspondent à une tension de 16-17 mailles (groupe de fils C) et 3 fils Kid-Silk à une tension de 14 mailles environ (groupe de fils D). Aidez-vous de notre moteur de recherches en choisissant les tensions souhaitées et utilisez le convertisseur pour avoir la quantité correspondante. Retrouvez plus d'infos sur les calculs ici. Votre magasin saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
13.10.2023 - 15:24