DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Watercolour Horizons Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. RENDUR: Peysan er prjónuð með 2 þráðum. Rendur eru prjónaðar þannig: Uppfitjun + kantur í hálsmáli + 15 cm á flík: litur 01 + litur 40 2 cm með litur 01 + litur 07 10 cm með litur 07 + litur 40 2 cm með litur 07 + litur 41 10 cm með litur 08 + litur 41 2 cm með litur 08 + litur 40 Prjónið til loka máls með litur 41 + litur 40 HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax á eftir stroffi efst í hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-92-108-108-108 lykkjur með 1 þræði í lit 01 og 1 þræði í lit 40 í DROPS Kid-Silk (2 þræðir) á hringprjón 5 og hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið lykkjunum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 100-100-100-116-116-116 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist alls 12 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, síðan er prjónað stroff eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti, endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli, stykkið er síðan mælt héðan. Peysan er prjónuð í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 4 prjónamerki sett í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 18-18-18-22-22-22 lykkjur eftir á prjóni (hægra framstykki). HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Klippið þræðina frá og byrjið mitt að aftan (mitt í umferð): UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Klippið þræðina frá. Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu = 148-148-148-164-164-164 lykkjur á prjóni. Síðan er prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan. Nú byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón og garðaprjón yfir kantlykkjur að framan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). STÆRÐ S, M, og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukning fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-4 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-32-36-40 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli). Eftir síðustu útaukningu eru 264-284-304-320-344-360 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist ca 20-22-24-24-28-32 cm, mælt miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist núna fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 44-47-50-54-58-62 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 44-47-50-54-58-62 lykkjur sem eftir eru (framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-196-208-228-248-268 lykkjur. Prjónið sléttprjón í garðaprjóni í köntum að framan og röndum þar til stykkið mælist 18-18-18-20-18-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 220-236-252-276-300-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-36-35-34-31-28 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-44-43-42-39-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (25)
Ulrike wrote:
In dem oberen Bereich, in dem die Raglanzunahme mit verkürzen Reihen gestrickt wird. Ich nehme jeweils in der (rechten) Hinreihe UND den der ( linken) Rückreihe zu. Wie die Umschläge in der (links zu strickenden) Rückreihe gestrickt werden, konnte ich im Video sehen. Werden die Umschläge der Rückreihe (dann auf der rechts zu strickenden Reihe) immer „einfach“ verschränkt gestrickt? Haben die Umschläge in beiden Reihen die gleiche Richtung?
23.03.2024 - 11:23DROPS Design answered:
Liebe Ulrike, ja genau, die Umschläge werden immer verschränkt gestrickt, dh links verschränkt bei den Rück-Reihen und rechts verschränkt bei den Hin-Reihen. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 08:25Elly wrote:
Ik heb ook een vraag over het meerderen. Betekent ‘op het lijf’, dat je dan maar aan 1 kant van iedere markeerdraad meerdert?
11.03.2024 - 17:43DROPS Design answered:
Dag Elly,
Klopt, je meerdert dan alleen aan de kant van de markeerdraad waar het lijf zit, dus het voorpand of het achterpand.
11.03.2024 - 20:37Anja Wiedeman-Toninga wrote:
Meerder iedere 2e naald (elke naald aan de goede kant), maar iedere 2e meerdering is alleen op de voor- en achterpanden (dus iedere 2e naald op het lijf en iedere 4e naald op de mouwen, met afwisselend 4 en 8 gemeerderde steken). Meerder 18-22-26-26-30-30 keer op het lijf (9-11-13-13-15-15 keer op de mouwen). Ik snap dit niet, kunt u me helpen?
23.02.2024 - 20:58DROPS Design answered:
Dag Anja,
Je breit heen en weer en je maakt iedere 2e naald meerderingen op het lijf en iedere 4e naald maak je meerderingen op het lijf en ook op de mouwen. Dit herhaal je steeds in de hoogte totdat je het aantal aangegeven meerderingen hebt gemaakt. Je meerdert dus 2x zo vaak op het lijf dan op de mouwen.
25.02.2024 - 10:38Elodie wrote:
I would love to know what's the circumference for each size. How large is size XL ? And XXL ? It's quite difficult to know which size to knit, and i would hate to end up with the wrong size of garment after spending so many hours on it... :/
11.12.2023 - 20:49DROPS Design answered:
Hi Elodie, The circumference will be double the width of the body, which is found in the size chart at the bottom of the pattern. Happy knitting!
12.12.2023 - 07:25Janne Lill Aske wrote:
Hei! Etter økninger til bærestykke, ser jeg ikke hvordan det skal være økt 32 ganger (str L) for det står kun 26 lenger opp. \r\nSTØRRELSE S, M, og XXXL: Fortsett med glattstrikk og økninger til raglan, men nå økes det kun på bolen, økningene til ermer er ferdig. Øk på hver 2.pinne totalt 2-1-4 ganger. ALLE STØRRELSER: Det er nå økt totalt 26-29-32-32-36-40 ganger på bolen og 15-17-19-19-21-21 ganger på ermene
20.08.2023 - 21:32DROPS Design answered:
Hei Janne Lill, Du øker 6 ganger på forkortede pinner til halsringningen. Etter halsringningen øker du 26 ganger til på for/bakstykkene, som blir totalt 32 ganger. God fornøyelse!
21.08.2023 - 06:46Ilana Milman wrote:
Are the markers that names “ sleeves” both at the front or back of the work.? It have to be on the same side for symmetry of decreases . I didn’t understand
06.08.2023 - 11:34DROPS Design answered:
Dear Ilana, the sleeves are located on the sides, between the front pieces and the back piece. You have 2 markers on each sleeve, one marks the transition between the back piece and the sleeves and another one the transition between the sleeve and the front piece. They are neither on the front piece, nor the back piece (there is already 20 stitches for each sleeve) but the decreases will be symmetrical on them. Happy knitting!
06.08.2023 - 22:13Irene Nørberg wrote:
Blir forvirret av beskrivelsen på raglan og økning. Det står økes på forstykke/bakstykke ikke ermene annen hver rett pinne. Betyr det da at det bare økes på den ene siden av merketrådene, ikke begge? Dvs bare 1 maske: før 1. merketråd men ikke etter. (Forstykket) Etter 2.merketråd, før 3.merketråd (bakstykket), og etter 4.merketråd (forstykke).
18.07.2023 - 19:39DROPS Design answered:
Hei Irene. Du har 1 masker på hver side av merketrådene = 2 masker, og det er 4 overganger. Når du strikker skal du øke 1 maske FØR disse 2 maskene og du skal øke ETTER disse 2 maskene. Slik: Strikk til det gjenstår 1 maske før 1. merke, lag et kast, strikk 2 masker (merketråden sitter mellom disse 2 maskene), lag et kast. Strikk til det gjenstår 1 maske før 2. merke, lag et kast, strikk 2 masker, lag et kast. Strikk til det gjenstår 1 maske før 3. merke, lag et kast, strikk 2 masker, lag et kast. Strikk til det gjenstår 1 maske før 4. merke, lag et kast, strikk 2 masker, lag et kast = 8 økninger pr økeomgang. Strikk pinnen ut. mvh DROPS Design
26.07.2023 - 12:35Henrikke wrote:
Hei. Skal det byttes til pinne nr 4 når man kommer til vrangbord på bol (nederst)? Klarer ikke lese at det står i oppskriften! Men mulig det er allmenn kunnskap for erfarne strikkere, jeg er nybegynner 😅 Mvh Henrikke
24.05.2023 - 14:35DROPS Design answered:
Hej Henrikke, ja det skal byttes til pinne nr 4. Nej det er ikke allmenn kunnskap, det skal stå i oppskriften, så vil laver en rettelse - tak for info! :)
24.05.2023 - 14:59Henriette wrote:
Hei, Kan man gjøre raglanøkningene til høyre/venstre ved å plukke opp tråden istedenfor å gjøre et kast som strikkes vridd på neste omgang? Veldig fine farger på jakken, har nettopp kjøpt garnet! mvh Henriette
10.05.2023 - 16:08DROPS Design answered:
Hei Henriette, Det er mulig å øke ved å plukke opp tråden, men ulempen er at du strammer garnet når du gjør det, og akkurat den raden kan synes etterpå som litt strammere. God fornøyelse!
11.05.2023 - 06:41Unni Kristin Ims wrote:
Finnes denne oppskriften på norsk🇳🇴
13.04.2023 - 21:28