Mint Dream Cardigan |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, skáhallandi öxl og sjalkraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 241-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Haldið áfram með 1 lykkju sléttprjón innan við kantlykkjur að framan. Fækkið lykkjum í lok umferðar við hálsmál þannig: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Haldið áfram með 1 lykkju sléttprjón innan við kantlykkjur að framan. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 8, 16, 24, 32 og 40 cm. S: 9, 17, 25, 33 og 41 cm. M: 8½, 16½, 25, 33½ og 42 cm. L: 9, 17½, 26, 34½ og 43 cm. XL: 8, 17, 26, 35 og 44 cm. XXL/XXXL: 9, 18, 27, 36 og 45 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka neðan frá og upp, þegar stykkinu er skipt við handveg eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 195-219-237-261-285-303 lykkjur með DROPS Air á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff fram og til baka (1. umferð er frá réttu) þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 1 lykkju perluprjón * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkja perluprjón, 1 lykkja sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (ystu 8 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður) er lykkjum fækkað um 19-23-21-25-29-27 lykkjur jafnt yfir = 176-196-216-236-256-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er mynstrið prjónað frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið mynstur A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka er A.2 prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið A.2 og aukið út um 1 lykkju yfir næstu 160-180-200-220-240-260 lykkjur (nú eru eftir 9 lykkjur í umferð), prjónið 1 lykkju eins og fyrsta lykkja í A.2 (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Það eru 177-197-217-237-257-277 lykkjur í umferð. Mynsturteikningin er endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, á að skipta stykkinu fyrir handveg. Setjið ystu 48-53-58-63-68-73 lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn (hægra og vinstra framstykki), miðju 81-91-101-111-121-131 lykkjum er haldið eftir á prjóni (bakstykki). Nú er bakstykkið og framstykkin prjónuð hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 81-91-101-111-121-131 lykkjur. Prjónið eftir mynsturteikningu A.2 þar til stykkið mælist 43-43-43-48-48-48 cm (ef maður vill þá er hægt að hætta eftir hálfa eða heila mynstureiningu á hæðina). Prjónið mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikning A.4 endurtekin að loka máli. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið skáhallandi öxl jafnframt því sem fellt er af fyrir hálsmáli. Lestu 2 næstu kafla áður en þú prjónar áfram! SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá hlið, til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-11-12-13 lykkjur á þráð alls 3 sinnum. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af miðju 15-17-17-19-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja. Þegar skáhallandi öxl og affeling fyrir hálsmáli er lokið eru 8-9-11-12-14-15 lykkjur á prjóni, setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 32-36-41-45-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón – það er hægt að prjóna upp 1 lykkju sem prjónuð er saman með næstu lykkju ef það myndast gat í stykkinu þar sem lykkjur voru settar á þráðinn. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 48-53-58-63-68-73 lykkjur. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið eftir mynsturteikningu A.2 þar til stykkið mælist 43-43-43-48-48-48 cm – stillið af eftir bakstykki. Nú er mynsturteikning A.2 prjónuð jafnframt því sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar – sjá ÚRTAKA-1 og lestu allan kaflann að neðan áður en þú prjónar áfram! Endurtakið úrtöku fyrir v-hálsmáli til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu og í annarri hverri umferð frá réttu) þar til fækkað hefur verið alls 9-10-10-11-11-12 sinnum = 39-43-48-52-57-61 lykkjur. Jafnframt þegar mynsturteikning A.3 er lokið, endurtakið mynsturteikningu A.4 að loknu máli. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, prjónið skáhallandi öxl – sjá útskýringu að ofan. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá hlið, til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-11-12-13 lykkjur á þráð alls 3 sinnum. Það eru 15-16-18-19-21-22 lykkjur eftir á prjóni. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 39-43-48-52-57-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantur að framan er prjónaður eins og áður) – það er hægt að prjóna upp 1 lykkju sem er prjónuð saman með næstu lykkju ef það myndast gat í stykkinu þar sem lykkjur voru settar á þráðinn. Prjónið 2 umferðir garðaprjón (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 32-36-41-45-50-54 lykkjur fyrir öxl = 7 lykkjur á prjóni. Prjónið perluprjón þar til kantur að framan mælist 5-5½-5½-6-6-6½ cm frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti á öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 48-53-58-63-68-73 lykkjur. Setjið til baka lykkjur frá öðrum þræðinum á hringprjón 5. Prjónið eftir mynsturteikningu A.2 þar til stykkið mælist 43-43-43-48-48-48 cm – stillið af eftir bakstykki. Nú er mynsturteikning A.3 prjónuð jafnframt því sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar – sjá ÚRTAKA-1 og lestu kaflann að neðan áður en þú prjónar áfram! Endurtakið úrtöku til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu og í annarri hverri umferð frá réttu) þar til fækkað hefur verið alls 9-10-10-11-11-12 sinnum = 39-43-48-52-57-61 lykkjur. Jafnframt þegar mynsturteikning A.3 er lokið, endurtakið mynsturteikningu A.4 að loka máli. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, prjónið skáhallandi öxl. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá hlið, til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-11-12-13 lykkjur á þráð alls 3 sinnum. Það eru 15-16-18-19-21-22 lykkjur eftir á prjóni. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 39-43-48-52-57-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður) – það er hægt að prjóna upp 1 lykkju sem er prjónuð saman með næstu lykkju ef það myndast gat í stykkinu þar sem lykkjur voru settar á þráðinn. Prjónið 2 umferðir garðaprjón (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 32-36-41-45-50-54 lykkjur fyrir öxl = 7 lykkjur á prjóni. Prjónið perluprjón þar til kantur að framan mælist 5-5½-5½-6-6-6½ cm frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti á öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið kanta að framan saman mitt að aftan, saumið síðan kant að framan niður meðfram hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ERMI: Prjónið upp ca 57-61-65-69-71-75 lykkjur á stuttan hringprjón 5 innan við 1 lykkju í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið hringinn eftir mynsturteikningu A.3 með 1 lykkju í sléttprjóni mitt undir ermi og setið eitt prjónamerki í þessa lykkju (prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum síðar). ATH! Í síðustu umferð í A.3 er fækkað um 1-0-4-3-0-4 lykkjur jafnt yfir = 56-61-61-66-71-71 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, endurtakið mynsturteikningu A.4 að loknu máli (miðjulykkjan undir ermi er prjónuð í sléttprjóni eins og áður). Jafnframt þegar ermin mælist 6 cm, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með ca 9-5-6-3½-3-3 cm millibili alls 4-6-5-7-7-7 sinnum = 48-49-51-52-57-57 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 33-32-30-28-26-25 cm, það eru eftir 14 cm að loknu máli. Prjónið mynsturteikningu A.3 (með 1 lykkju sléttprjón mitt undir ermi eins og áður) og aukið út um 6-5-3-8-3-3 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 54-54-54-60-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur perluprjón) í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Kathleen Carlson wrote:
I'm stuck on the diagonal shoulder (back). I have 111sts and it's too many sts to fit the directions?BACK I have 33sts on each side in thread with 45sts remaining on needle. I believe there should only be 19 sts for NECK??? What am I doing wrong? I'm an expert knitter and can't figure this out. Please help so I can finish this project!
16.07.2023 - 18:58DROPS Design answered:
Dear Kathleen, your number of stitches is correct. On the shoulders you have 33 stitches in threads for each shoulder. AT THE SAME TIME you cast off the 19 middle stitches (but there are more stitches). Then you cast off 1 more stitch from the neck on each side and you should have 12 stitches left on each shoulder. Happy knitting!
17.07.2023 - 14:26Claudia wrote:
Habe die Jacke gestrickt und sie ist eine Größe größer geworden, obwohl die Maschenprobe in glatt rechts genau passte. :(( Muss diese nicht im Perlmuster sein, da Rechts-Links-Muster meist lockerer ausfallen? Müssen die Blenden-M (+5cm) nicht in der Maßskizze eingerechnet werden? Die Maße sind genau wie beim Pullover! Muss im Rückenteil nach A.2 die Masche, die vorher zugenommen wurde, nicht wieder abgenommen werden, damit A.4 auskommt?
30.05.2023 - 13:31DROPS Design answered:
Liebe Claudia, Diagramme stimmen so und sollte Ihre Maschenprobe glatt rechts stimmen, dann sollten die Breite genauso stimmen, dh die 81-91-101-111-121-131 Maschen vom Rückenteill sollen 48-54-59-65-71-77 cm messen (die Breite glatt rechts muss dieselbe wie im Perlmuster sein). Die Blenden-Maschen gehören zum Vorderteile und kommen nicht mit der Breite dazu. Hoffentlich kann das Ihnen helfen.
30.05.2023 - 16:05Bente Andersen wrote:
Hvis ribben på for- og bagstykke strikkes som beskrevet i opskriften, strikkes der ret på vrangsiden mellem de 3 m perlestrik. På billedet er der strikket vrang på vrangsiden. Tænker at det er en fejl 😊
11.05.2023 - 11:19