DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Dazzling Diamonds Top

Prjónaður toppur úr DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með böndum á öxlum og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.

DROPS 240-8
DROPS Design: Mynstur r-815
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XL/XXL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 08, natur

Eða notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4, A.5 og A.6).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað í hring að loknu máli. Bönd á öxlum eru saumuð saman á hvorri öxl.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 10 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Muskat eða DROPS Cotton merino. Prjónið fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 4-5-6-7-3-4 cm aðeins strekkt. Fyrra bandið á öxl er tilbúið, klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið annað band á öxl á sama hátt á hringprjón 4. Í lok síðustu umferðar, fitjið upp 45-45-45-55-55-55 nýjar lykkjur á prjóninn, síðan er prjónað áfram yfir 10 lykkjur frá fyrra bandinu á öxl (passið uppá að garðaprjón passi við bæði böndin á öxlum). Það eru 65-65-65-75-75-75 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur og næsta umferð er prjónuð frá réttu.
Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 50-50-50-60-60-60 lykkjur, prjónið A.3 yfir 8 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina.
Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ XS/S:
= 65 lykkjur.
Prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1, prjónið A.2 yfir næstu 60 lykkjur, það eru 3 lykkjur eftir í umferð og prjónið síðustu 3 lykkjur eins og síðasta lykkjan í A.3. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.4 yfir 7 lykkjur, prjónið A.2 yfir 50 lykkjur, prjónið A.5 yfir 8 lykkjur.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, eru 80 lykkjur í umferð. Útaukning í stærð XS/S er lokið. Stykkið mælist ca 14 cm frá þar sem böndin á öxlum var sett saman.

STÆRÐ M, L og XL:
= 65-65-75 lykkjur.
Prjónið A.4 yfir 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 40-40-50 lykkjur, prjónið A.5 yfir 13 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 75-75-85 lykkjur í umferð.
Prjónið A.4 yfir 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 50-50-60 lykkjur, prjónið A.6 yfir 13 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, eru 90-100-110 lykkjur í umferð. Útaukning í stærð M, L og XL er lokið. Stykkið mælist ca 14-14-14 cm frá þar sem böndin á öxlum var sett saman.

STÆRÐ XL/XXL og XXL/XXXL:
= 75-75 lykkjur.
Prjónið A.4 yfir 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 50-50 lykkjur, prjónið A.5 yfir 13 lykkjur.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, eru 85-85 lykkjur í umferð.
Prjónið A.4 yfir 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 60-60 lykkjur, prjónið A.5 yfir 13 lykkjur.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 95-95 lykkjur í umferð.
Prjónið A.4 yfir 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 70-70 lykkjur, prjónið A.6 yfir 13 lykkjur.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, eru 120-130 lykkjur í umferð.
Útaukning í stærð XL/XXL og XXL/XXXL er lokið. Stykkið mælist ca 19-19 cm frá þar sem böndin á öxlum var sett saman.

ALLAR STÆRÐIR:
= 80-90-100-110-120-130 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða á auka prjón. Nú er framstykkið prjónað.

FRAMSTYKKI:
Prjónið alveg eins og bakstykki. Þegar framstykkið hefur verið prjónað til loka, setjið lykkjur frá bakstykki inn á hringprjóninn saman með framstykkinu. Setjið lykkjurnar á prjóninn þannig að hægt sé að prjóna beint áfram frá framstykki og að bakstykki. Héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-180-200-220-240-260 lykkjur. ATH! Færa verður umferðina til, mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ XS/S:
Klippið þráðinn og byrjið umferð 3 lykkjum inn á framstykki!

STÆRÐ M, L, XL, XL/XXL og XXL/XXXL:
Prjónið 2 lykkjur slétt og byrjið umferð hér.

ALLAR STÆRÐIR:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð svo það verði auðvelt að fylgjast með hvar umferðin byrjar og endar. Prjónið A.7 yfir allar lykkjur.
Prjónið mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm frá þar sem stykkið var sett saman eða endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina.
Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð.

FRÁGANGUR:
Saumið saman böndin á öxlum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu, brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = fitjið upp 1 nýja lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Jane Binns wrote:

Str XS/S diagram A5. Jeg ender med 13 masker, hvor får jeg de sidste 5 masker fra?? Jeg ender på 75 masker, men som jeg ser det, skal jeg ende med 80

04.04.2024 - 23:18

DROPS Design answered:

Hej Jane, du starter med 65 masker, tager 5 masker ud ifølge A.4 og tager 10 masker ud ifølge A.5. Det bliver ialt 80 masker :)

09.04.2024 - 09:45

country flag Jane Binns wrote:

Jeg strikker str XS/S, men jeg har sat for og bagstykke sammen og strikker videre i diagram 7, bliver retsiden korrekt, men bagsiden forkert. Mønsteret bliver ikke forskudt. Hvad gør jeg forkert? Jeg har strikket diagrammet hele vejen rundt....

04.04.2024 - 23:03

DROPS Design answered:

Hej Jane, du skal selv klippe tråden og forskyde omgangen :)

09.04.2024 - 09:41

country flag Tünde wrote:

Eljutottam a karöltőig, ahol összekapcsolódik az eleje és a hátulja. A leírás ezt mondja:Vágjuk el a fonalat és a kört az elején 3 szemmel kezdjük (S méret). Ezt én úgy értelmeztem, hogy 3 szemet simán lekötök és itt kezdődik a kör. De így a minta elcsúszott az eddig lekötötthöz képest. Gondolkodtam, hogy mit rontok el. Ha a mintát folytatni akarom, hogy szépen kijöjjenek a rombuszok, akkor kétoldalt az 5-5 szaporított szemen egy fél mintát kell kössek?

04.04.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Kedves Tünde, a mintát a korábbiak szerint kell folytatni, ha a szemek száma a sor elején/végén nem ad ki egy teljes mintát, akkor ott vagy fél mintát, vagy harisnyakötéssel kell kötni. Sikeres kézimunkázást!

05.04.2024 - 02:09

country flag Marja-Liisa Tolonen wrote:

Yritän neuloa tätä. Purkanut monesti. Etu ja taka kpl.tasona pitsineuletta, siis oikealla oikeaa ja nurjalla nurjaa. Pitsi kuviosta tulee suurempi kuin pyörönä neulottu, silloinhan jää nurja kerros pois. Lisäksi kädentie 24cm. Ohjeessa 14 cm. Puikot 4 ja lanka muskat. Miten neulotaan tasona pitsineuletta niin, että nurja kerros jää pois.? Sitä ihmettelen. Ihana malli, niin haluaisin onnistua.

11.03.2024 - 17:27

DROPS Design answered:

Hei, neulot mallineuletta samalla tavalla kuin jos neuloisit suljettua neuletta piirroksen mukaisesti, mutta joka toinen kerros neulotaan oikealta vasemmalle ja joka toinen kerros vasemmalta oikealle. Tarkista myös neuletiheys!

11.03.2024 - 18:20

country flag Evelyne Louaked wrote:

Bonjour, je viens de commencer les diagrammes 4 6 et 2 Au deuxième rg sur l envers je me retrouve après augmentation, avec une maille en trop!

03.02.2024 - 15:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Louaked, vous pouvez mettre 1 marqueur entre chaque diagramme, ce sera ainsi plus facile de mieux vous repérer et de trouver d'où vient cette maille en trop. Bon tricot!

05.02.2024 - 08:34

country flag Aline wrote:

Est-ce qu’on peut le tricoter en top-down. Si oui est-ce que vous pouvez me donner quelques explications? Merci et bonne journée

24.10.2023 - 17:38

DROPS Design answered:

Bonjour Aline, ce modèle se tricote effectivement de haut en bas en commençant par les bretelles du dos, puis on tricote le dos jusqu'aux emmanchures et on met en attente; on tricote ensuite les bretelles du devant et on tricote le devant jusqu'aux emmanchures, puis on reprend le dos et le devant et on tricote en rond. Bon tricot!

25.10.2023 - 07:30

country flag Liliane Van Wichelen wrote:

Ik heb dit patroon uitgeprobeerd. Rugpand tot na meerderingen maat M. Dit zijn in totaal 3 ribbels = 6 naalden, 1 x patroon van 12 naalden en 1 x patroon van 12 naalden met meerderingen = totaal 27 naalden en 90 steken . Volgens uitleg zou dit 14 cm moeten zijn. Proeflapje is 28 naalden voor 10 cm . Ik hen dus nu inderdaad slechts 10 cm. Kunt u dit eens bekijken? Is het patroon fout of ik?

27.08.2023 - 17:36

country flag Christine wrote:

Wenn ich den oberen Teil des Diagramms A7 stricke, sind die drei zusammengestrickten Maschen plötzlich schräg nach links versetzt und nicht mehr in der Mitte und symmetrisch. Was mache ich falsch? Werden die drei Maschen nicht genau am Reihenanfang zusammengestrickt? Warum ist das schwarze Dreieck auf dem Diagramm eine Masche nach Rechts versetzt?

20.08.2023 - 21:48

DROPS Design answered:

Liebe Christine, für das obere Teil vom A.7 beginnen Sie jede 2. Runde wenn 1 Masche vom vorigen Runde immer noch auf der Nadel ist, so wird der 1. Umschlag die letzte Masche der Runde, dann stricken Sie die letzte Masche der Runde mit den 2 ersten Maschen vom 1. Rapport zusammen (= 1. Masche der Runde), und so stricken Sie immer weiter: die letzte Masche vom Rapport wird zusammen mit den 2 ersten Maschen vom nächsten Rapport gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

21.08.2023 - 09:26

country flag Nat wrote:

In this part: ALL SIZES: = 80-90-100-110-120-130 stitches. Slip stitch on a thread or an extra needle. Now work front piece. I cut the yarn of the back piece i just made, right?

25.07.2023 - 17:23

DROPS Design answered:

Hi Nat, yes cut the yarn. Happy knitting!

25.07.2023 - 20:30

country flag Monica wrote:

Hei. Jeg strikker str L, når jeg har strikket A4 over 12 m - A2 over de neste 40 og (50 andre gang) - A5 over de siste 13 m, så skal jeg ende opp med 100 m på pinnen, jeg har bare 85. Hva gjør jeg feil?

24.04.2023 - 20:16

DROPS Design answered:

Hei Monica, Du har 5 økte masker hver gang du har strikket A.4 (i din størrelse) i høyden. Du har 20 økte maske i hver høyde av A.6. Dette betyr at du øker 25 masker totalt og har 100 masker på pinnen. God fornøyelse!

25.04.2023 - 08:15