DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Scent of Lilac Vest

Heklaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður í gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-28
DROPS Design: Mynstur e-346
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 05, lavender

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 5-5-5-6-6-6 st.


HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

HEKLFESTA:
24 stuðlar á breidd og 13 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Toppurinn er fyrst heklaður fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður, síðan eru stykkin sett saman og heklað er fram og til baka frá miðju að framan.

BAKSTYKKI:
Heklið 13-13-15-15-17-17 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðul í hverja af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Endurtakið 2 efstu umferðir í A.1 þar til stykkið mælist ca 7 cm, geymið stykkið og heklið annað band á öxl / hlýra á sama hátt.

Síðan er heklað yfir bæði böndin á öxl / hlýra þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjum frá fyrra bandi / hlýra á öxl, heklið 43-47-51-55-63-67 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjum frá seinna bandi / hlýra á öxl = 65-69-77-81-93-97 lykkjur. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu 5 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til 5 stuðlar eru eftir, heklið A.2.

Lestu allan næsta kafla, nú eru heklaðar 2 umferðir með mynstri, jafnframt því frá fyrstu umferð byrjar útaukning í hvorri hlið:
Í 2 næstu umferðum er heklað A.3 yfir nýju stuðla í hálsmáli, A.2 yfir 5 ystu stuðla í hvorri hlið og 1 stuðul í hverja lykkju yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar A.3 hefur verið heklað til loka, heklið 1 stuðul í hverja lykkju og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT frá fyrstu umferð í A.3 er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið, aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul, aukið er út í 5. lykkju inn frá hvorri hlið. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 87-93-103-109-125-131 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-19-19-21-22 cm. Endið með umferð frá röngu, klippið þráðinn.

Geymið stykkið og heklið framstykkin.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 13-13-15-15-17-17 loftlykkjur með heklunál 3 og DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), 1 stuðul í hverja af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað ca 7 cm. Nú á að auka út í hvorri hlið, ekki er aukið út alveg eins í byrjun og í lok umferðar. Haldið áfram með stuðla með A.2 yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið og aukið út þannig: Aukið út um 1 stuðul að hlið og 2 stuðla við miðju að framan. Aukið er út í hverri umferð, aukið er út í 5. lykkju inn frá hlið (byrjun umferðar séð frá réttu) og í 5. og 6. stuðul frá miðju að framan (í lok umferðar séð frá réttu). Aukið út með því að hekla 2 stuðla í hvern stuðul. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð).

Eftir alla útaukningu eru 44-47-52-55-63-66 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-19-19-21-22 cm. Endið með umferð frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 13-13-15-15-17-17 loftlykkjur með heklunál 3 og DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), 1 stuðul í hverja og eina af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað ca 7 cm. Nú á að auka út í hvorri hlið, ekki er aukið út eins í byrjun og í lok umferðar. Haldið áfram með stuðla með A.2 yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið og aukið út þannig: Aukið út um 2 stuðla við miðju að framan og 1 stuðul í hlið. Aukið er út í hverri umferð, aukið er út í 5. og 6. lykkju inn frá miðju að framan (byrjun umferðar séð frá réttu), og í 5. lykkju inn frá hlið (lok umferðar séð frá réttu). Aukið út með því að hekla 2 stuðla í hvern stuðul. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð).

Nú eru stykkin hekluð saman.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá vinstra framstykki, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá bakstykki, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá hægra framstykki, heklið 8 loftlykkjur í lok hægra framstykkis. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) og heklið 1 stuðul í hverja af 4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju út umferðina = 203-223-243-267-295-315 stuðlar. Heklið A.4 yfir lykkjur í hægri kanti að framan og A.5 yfir lykkjur í vinstri kanti að framan og 1 stuðul í hvern stuðul yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem stykkin voru sett saman. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 14 stuðla jafnt yfir (ekki er aukið út yfir lykkjur í A.4/ A.5) = 217-237-257-281-309-329 stuðlar. Heklið (séð frá réttu) A.5, A.6 þar til 12 lykkjur eru eftir, heklið fyrstu lykkju í A.6, heklið A.4. Þegar A.6 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er toppurinn tilbúinn. Klippið þráðinn og festið. Toppurinn mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Tölur eru saumaðar í vinstri kant að framan. Staðsetjið efstu töluna 1 cm niður frá hálsmáli, neðstu töluna ca 4 cm frá neðri kanti og þær 3-3-3-4-4-4 tölur sem eftir eru jafnt á milli. Tölunum er hneppt í gegnum gat í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = 1 stuðull í stuðul eða 1 stuðull í loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 stuðlar í sama stuðul
symbols = heklið 3 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (3 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir eingöngu hvernig á að hekla mynstrið í fyrstu umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Marga wrote:

Sigo sin entenderlo. Al final del delantero izquierdo se hacen 8 puntos de cadeneta y vuelvo hacia atrás, total me quedarán 6 puntos altos, y después debo hacer lo mismo con el delantero derecho, pero como no uno a la espalda?

15.04.2024 - 06:30

DROPS Design answered:

Hola Marga, después de los 8 puntos de cadeneta del delantero izquierdo, giras y trabajas la fila 2: empiezas trabajando 1 punto alto en el 4º pt de cadeneta (los 3 puntos de cadeneta anteriores forman 1 punto alto) y después 1 punto alto en cada punto de la fila anterior (tanto puntos altos como de cadeneta). De este modo, trabajando puntos altos hasta sobre las cadenetas de unión entre las secciones, tendrás todos los puntos del cuerpo unidos/ juntos o regulares. No tienes que repetir lo del 4º pt de cadeneta al final de la fila, porque ya trabajaste así al inicio de la fila anterior, en el delantero derecho.

21.04.2024 - 23:57

country flag Marga wrote:

Como se unen los delanteros a la espalda, me lio con los 8 puntos y los doce puntos, no entiendo cómo hacerlos y tejerlos.

14.04.2024 - 21:22

DROPS Design answered:

Hola Marga, trabaja como sigue para la talla más pequeña: Trabajar 1 punto alto en el 4º punto de cadeneta desde el ganchillo (2 puntos altos), 1 punto alto en cada uno de los 4 puntos de cadeneta, 1 punto alto en cada punto alto/punto de cadeneta del delantero izquierdo, trabajar 8 puntos de cadeneta, 1 punto alto en cada punto alto/ puntos de cadeneta de la espalda, trabajar 8 puntos de cadeneta, 1 punto alto en cada punto alto/ puntos de cadeneta del delantero derecho, trabajar 8 puntos de cadeneta al final de la fila. Cuando te señalan la secuencia de números con guiones significa que es un número diferente para cada talla.

14.04.2024 - 23:52

country flag Marga wrote:

Las explicaciones no se entienden demasiado bien. Sobre todo a la hora de hacer las uniones, imposible de entender. No sé si podré terminarlo.

14.04.2024 - 21:10

country flag Jenny wrote:

Hi, I’m writing to ask about the instructions for the back, where you say increase 5 stitches in from the edge on A3. Does this mean after completing A2 and the remaining 6 trebles on the shoulder strap please? Also, it states 2 rows of A3, do I do A3 along the whole of the 43 chain stitches or just the first few as per the diagram? Do I do A3 then for all of the remaining rows on the back. Thank you

27.03.2024 - 21:02

DROPS Design answered:

Dear Jenny, you increase 1 stitch on each side, working the 5th stitch from the side edge of the piece as follows: 2 treble crochet in 1 treble crochet. So you would be increasing in the last A.2 treble crochet at the beginning of the row and the first A.2 treble crochet at the end of the row. A.3 is worked over the new cast on stitches, so you repeat A.3 over all of the new chain stitches. Once you have finished working A.3 you only work A.2 and the treble crochets. Happy crochetting!

01.04.2024 - 00:25

country flag Jenny wrote:

Hi, I’m writing to ask about the instructions for the back, where you say increase 5 stitches in from the edge on A3. Does this mean after completing A2 and the remaining 6 trebles on the shoulder strap please? Also, it states 2 rows of A3, do I do A3 along the whole of the 43 chain stitches or just the first few as per the diagram? Do I do A3 then for all of the remaining rows on the back. Thank you

27.03.2024 - 21:01

DROPS Design answered:

Dear Jenny, you increase 1 stitch on each side, working the 5th stitch from the side edge of the piece as follows: 2 treble crochet in 1 treble crochet. So you would be increasing in the last A.2 treble crochet at the beginning of the row and the first A.2 treble crochet at the end of the row. A.3 is worked over the new cast on stitches, so you repeat A.3 over all of the new chain stitches. Once you have finished working A.3 you only work A.2 and the treble crochets. Happy crochetting!

01.04.2024 - 00:25

country flag Conny wrote:

Aan het einde van het lijf A6. Als je 3 stokjes in dezelfde steek haakt, krijg je steeds meer steken. Slechts één keer moet je ook minderen door 3 stokjes samen te haken. Je krijgt dus steeds meer steken en gezien de foto is dat niet de bedoeling. Hoe moet dat?

21.12.2023 - 22:14

DROPS Design answered:

Dag Conny,

Ja, dat is verwarrend, waarschijnlijk moet deze ene steek in dat geval gewoon een stokje zijn.

14.01.2024 - 19:04

country flag Brigitte Le Gac wrote:

Bonjour je ne comprends pas l étape de l assemblage du dos et des devants a propos des 8 maille en l air pourrais ton m éclairer par avance merci

12.09.2023 - 21:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Gac, les 8 mailles en l'air en taille S sont crochetés à la transition entre le devant gauche et le dos (pour le côté = sous le bras) et à la transition entre le dos et le devant droit (pour le côté = sous le bras); ce sont les mailles des emmanchures. Bon crochet!

13.09.2023 - 08:26

country flag Justyna wrote:

Nie rozumiem w jaki sposób połączyć przody z tyłem. Robię 8 o łańcuszka potem w moim przypadku 12 o lewego przodu i dalej kompletnie nie wiem jak ruszyć.

08.09.2023 - 20:51

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, przerabiasz teraz na prawej stronie robótki: bierzesz lewy przód i przerabiasz zgodnie z opisem na początku części TYŁ & PRZODY, dalej przerabiasz 12 oł (podkrój rękawa), bierzesz tył i łączysz z przodem w jedną część przerabiając 1 słupek w każdy słupek/każde oczko łańcuszka tyłu (czyli wykonujesz narzut i wbijasz szydełko w pierwszy sł tyłu i przerabiasz słupek, itd.), przerabiasz 12 oł na podkrój rękawa i łączysz z prawym przodem przerabiając 1 słupek w każdy słupek/każde oczko łańcuszka prawego przodu, przerobić 8 oczek łańcuszka na końcu rzędu. Pozdrawiamy!

12.09.2023 - 08:55

country flag Evelyn wrote:

Ich habe eine Bitte ich weiss grad nicht weiter bei diesem Top.Ich habe auf beiden Seiten 20 Maschen für die Ärmel mit Luftmaschen gehäkelt .Muss ich diese getzt auch mit Stäbchen bis zu einer Länge von 22cm behandeln oder nicht?

25.07.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Liebe Evelyn, beim Rumpfteil häkeln Sie: (von der Vorderseite gesehen): linkes Vorderteil, die 20 Luftmaschen, Rückenteil, 20 Luftmaschen, rechtes Vorderteil. Dann bei der 2. Reihe häkeln Sie 1 Reihe Stäbchen und dann häkeln Sie Stäbchen mit A.4 und A.5 beidseitig. Viel Spaß beim häkeln!

27.07.2023 - 14:03

country flag Irene Santos wrote:

Muchas gracias por la respuesta. ¿Y en el caso de los delanteros? Una vez tejidos los 7cm del principio, comienzan las 11 filas de aumentos. ¿Habría que hacer también dos filas antes de comenzar los aumentos? ¿Como serían estas dos filas? Muchas gracias.

17.07.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Hola Irene, sí, la espalda y los delanteros se trabajan de la misma manera. Lo único a tener en cuenta en los delanteros es que la sisa se trabaja solo a un lado (de cada delantero) y en el otro lado de los delanteros se trabaja el escote.

20.07.2023 - 14:32