Swirling Sea Vest |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónað oversized / stórt vesti úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum, skáhallandi öxl og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL
DROPS 239-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. I-CORD AFFELLING: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. FRÁ RÖNGU. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 4, 13, 19, 25 og 31 cm S: 4, 13, 19, 25 og 31 cm M: 4, 13, 19, 25 og 31 cm L: 4, 11, 18, 25 og 32 cm XL: 5, 12, 19, 26 og 33 cm XXL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant í handvegi í lok 2 næstu umferða = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loknu máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstrið, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 14-16-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (47-52-52-58-63-63 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hlið við hálsmál eru felldar af fyrstu 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur á ermi). Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl svo að axlirnar fái betra form, með byrjun í næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 7-9-9-9-10-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi alls 4 sinnum. Í síðustu umferð frá hálsmáli eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 40-45-45-51-56-56 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með i-icord yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig, frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu – lestu ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilum kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant á ermi í lok umferðar frá röngu. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 48-53-53-59-64-64 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu, fellið af 5 fyrstu lykkjur (kantur á ermi) og prjónið skáhallandi öxl þannig: SKÁHALLANDI ÖXL: Nú er prjónaðar stuttar umferðir yfir öxlina til að hún fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Prjónið næstu umferð frá hlið þannig: Prjónið þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-51-56-56 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með i-cord yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af . Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 8½-9-9-9-9½-9½ cm aðeins strekkt á stykkinu. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig, frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá réttu – lestu ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilum kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant á ermi í lok umferðar frá réttu. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 48-53-53-59-64-64 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá röngu, fellið af 5 fyrstu lykkjur (kantur á ermi) og prjónið skáhallandi öxl þannig: SKÁHALLANDI ÖXL: Nú er prjónaðar stuttar umferðir yfir öxlina til að hún fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Prjónið næstu umferð frá hlið þannig: Prjónið þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-51-56-56 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með i-cord yfir axlalykkjurnar þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjurnar frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 8½-9-9-9-9½-9½ cm aðeins strekkt á stykkinu. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við ystu lykkju meðfram i-cord affellingu. Saumið hliðarsaumana innan við 1 kantlykkju niður þar til ca 8 cm eru eftir (klauf). Saumið kantinn að framan saman mitt að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Gitte Lindenskov Overby wrote:
Er opskriften rette
27.11.2023 - 11:25Marian Blichsted wrote:
DROPS Design answered: Hei Marian Takk for din tilbakemelding. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en vurdering om det skal tilføyes noe i oppskriften ang strikkefastheten der det strikkes fletter. mvh DROPS Design 26.07.2023 kl. 07:51 Jeg venter spændt på jeres designafdeling, da det er ret vanskeligt selv at regne ud, hvordan man skal lave halslukningen - hvornår kan jeg forvente et svar?
31.07.2023 - 20:47DROPS Design answered:
Hej Marian, der er taget hensyn til snoningerne i opskriften. Hvilket garn strikker du i? Den mindste størrelse = 98 masker/17 = 58 cm (glatstrik) i bredden og måleskitsen siger 50 cm i bredden med snoninger.
07.08.2023 - 12:09Marian Blichsted wrote:
Jeg sidder med præcis det samme problem som den forrige svenske strikker - strikkeprøven viste korrekt strikkefasthed - men med snoninger bliver ryggen 47 cm bred, hvor den skulle være 63 cm! Burde der ikke være taget højde for det i opskriften, så man ikke først skal opdage det meget sent i arbejdet????
14.07.2023 - 07:43DROPS Design answered:
Hei Marian Takk for din tilbakemelding. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en vurdering om det skal tilføyes noe i oppskriften ang strikkefastheten der det strikkes fletter. mvh DROPS Design
26.07.2023 - 07:51GERD BRODÉN wrote:
Jag skulle önska att det fanns en stickfasthet på flätmönstret. Jag stickade en provlapp på slätstickning som stämde men västen blev ganska mycket för liten. Hade jag har en stickfasthet på flätmönstret att rätta mig efter så hade jag nog upptäckt det tidigare. Går det att ordna?
25.04.2023 - 08:15DROPS Design answered:
Hej Gerd, det kan du regne ud ved at sige antal masker / cm x 10. Ryggen i den mindste størrelse er 50 cm: 98m/50cm=1,96 = 20 m på 10 cm :)
25.04.2023 - 14:42Gerd Brodén wrote:
Jag skulle önska att det fanns en stickfasthet på flätmönstret. Jag stickade en provlapp på slätstickning som stämde men västen blev ganska mycket för liten. Hade jag har en stickfasthet på flätmönstret att rätta mig efter så hade jag nog upptäckt det tidigare.
20.04.2023 - 14:44Hannah wrote:
Ocean Breeze
21.01.2023 - 22:45Natratics Éva wrote:
Kényelmes viseletnek gondolom
20.01.2023 - 19:18Inma wrote:
Brisa
20.01.2023 - 06:39Zitaantoinete wrote:
Einfach super
19.01.2023 - 08:30Charlene wrote:
Cozy Cape Cod
18.01.2023 - 17:58