DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spill the Beans Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-6
DROPS Design: Mynstur z-993
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 g litur 9031, mandla

TÖLUR:
DROPS TALA NR 628: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Lykkjur eru auknar út á eftir/undan A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í byrjun er aukið út hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð (8 lykkjur fleiri), síðan breytist útaukningin. Útaukning fyrir framstykki/bakstykki heldur áfram eins og áður í annarri hverri umferð, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð – þ.e.a.s. að í annarri hverri umferð með útaukningu á framstykki/bakstykki er ekki aukið út á ermum (4 lykkjur fleiri).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar garðaprjón í kanti að framan mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 126-126-138-138-150-154 lykkjur á hringprjón 2,5 í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroffprjón frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt. Haldið áfram með stroff svona þar til stykkið mælist 5 cm. Í 2 næstu umferðum eru fitjaðar upp 7 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í lok hverrar umferðar (kantlykkjur að framan) = 140-140-152-152-164-168 lykkjur. Haldið áfram með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 10 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu (það á að brjóta síðar inn stroffið í miðju og þá verður kantur í hálsmáli 5 cm).
Setjið eitt prjónamerki að innanverðu á kantlykkjum að framan í annarri hliðinni, héðan er nú berustykkið mælt frá.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón, A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 20-20-24-24-28-32 lykkjur (bakstykki), A.1, 20 lykkjur (ermi), A.1, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Það hefur verið aukin út 1 lykkja í hverri mynstureiningu af A.1 = 144-144-156-156-168-172 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón, A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 20-20-24-24-28-32 lykkjur sléttprjón (bakstykki), A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan, útaukning byrjar í næstu umferð frá réttu. Haldið áfram í sléttprjóni með köntum að framan í garðaprjóni JAFNFRAMT sem nú er prjónað eftir mynsturteikningu A.2 yfir mynsturteikningu A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 22-22-26-30-30-31 sinnum í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma. Það eru 320-320-364-396-408-420 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð.
Aukið svona út 8-12-10-12-16-20 sinnum á framstykkjum / bakstykki (aukið er út 4-6-5-6-8-10 sinnum á ermum). Alls hefur verið aukið út 30-34-36-42-46-51 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 26-28-31-36-38-41 sinnum á ermum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 368-392-424-468-504-540 lykkjur í umferð. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 20-22-24-27-29-32 cm mælt frá prjónamerki við kanta að framan. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 39-43-49-55-63-68 lykkjur sléttprjón, A.2, setjið næstu 72-76-82-92-96-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), A.2, 80-88-96-108-120-134 lykkjur sléttprjon, A.2, setjið næstu 72-76-82-92-96-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið A.2, 39-43-49-55-63-68 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú er fram- og bakstykkið og ermar prjónað hvert fyrir sig, fram- og bakstykkið er núna mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 244-260-284-308-340-364 lykkjur. Prjónið með kanta að framan í garðaprjóni, sléttprjón og mynstur eins og áður (nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-20-19-19-18 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð sé 4. umferð í mynsturteikningu A.2 – næsta umferð er prjónuð frá réttu og það eru 244-260-284-308-340-364 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 13 lykkjur í hverju A.2 – þannig að auðveldara sé að sjá hvort mynstrið passi þegar auka á út fyrir stroffi eins og útskýrt er að neðan.
Héðan á einungis að prjóna eins og í 4. umferð í A.2 yfir 13 lykkjur í A.2.

Prjónið næstu umferð frá réttu jafnframt því sem aukið er út:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 39-43-49-55-63-68 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 18-22-20-20-18-25 lykkjur jafnt yfir (57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir (12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 80-88-96-108-120-134 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 36-44-40-40-36-46 lykkjur jafnt yfir (116-132-140-152-164-188 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir (12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 39-43-49-55-63-68 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 18-22-20-20-18-25 lykkjur jafnt yfir (57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón) og prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Það eru 320-352-372-396-424-272 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 116-132-140-152-164-188 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Nú byrjar stroff og fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Skiptið yfir í hringprjón 2,5.
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan síðasta prjónamerki, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Frá röngu er prjónað garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið stroff svona fram og til baka í 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 72-76-82-92-96-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 10-10-12-12-14-14 lykkjur í lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-86-94-104-110-116 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4-3-3-4-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3½-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 9-9-12-16-18-20 sinnum = 64-68-70-72-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-34-32-30-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 20-16-18-20-22-20 lykkjur jafnt yfir = 84-84-88-92-96-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 43-42-40-38-36-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið í hálsmáli niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum í hvora hlið, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2023
BERUSTYKKI: Nú byrjar stroff og fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Skiptið yfir í hringprjón 2,5....
Yfirfarið á vefsvæði: 28.09.2023
FRAM- OG BAKSTYKKI:..prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir (12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón),..

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = engin lykkja, farðu í næstu rúðu í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – það á ekki að myndast gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það á að myndast gat
symbols = prjónið 3 lykkju slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2 lykkjurnar, þannig að lykkjan liggur utan um 2 síðustu lykkjur sem voru prjónaðar (1 lykkja færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Andrea Fredskild wrote:

Jeg har lavet udtagninger til Raglan, og der er 368 m på pinden. Der står jeg skal strikke som før, til arbejdet måler 20 cm. Før hvad? Før Raglan? der strikkede jeg A1, men A1 fortsætter jo ikke mønstret. Før det strikkede jeg Rib. Hvordan fortsætter jeg?

02.04.2024 - 15:53

DROPS Design answered:

Hei Andrea. Du fortsetter å strikke som du har gjort, men du skal ikke øke til raglan. Altså, strikk stolpemaskene, glattstrikk og diagrammen, men ingen økninger. Maskeantallet skal være likt på alle omgangene frem til arbeidet måler 20 cm. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 11:47

country flag Åse Johansen wrote:

Jeg kan ikke forstå hvorfor, der skal tages så mange masker ud, når rib starter. Det er ikke pænt, jeg gjorde det ikke og min rib, strikket på pinde 2 1/2 blev rigtig, ikke stram

29.03.2024 - 11:16

country flag Barathé wrote:

Bonjour je souhaiterais connaître le mode d’entretien pour DROPS ALPACA ? S’il vous plaît merci d’avance Cordialement Mme Barathé

06.01.2024 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barathé, retrouvez toutes les consignes d'entretien de DROPS Alpaca sur la page de son nuancier: onglet Entretien sous les couleurs. Bon tricot!

08.01.2024 - 10:04

country flag Ragnhild wrote:

Strikker jakken i str L - mange feil i oppskrift vedr antall masker mv.. Har «fikset» mange undervegs i min jakke. F.eks BOL: 2 avsnitt - i feltet mellom de to A2 - 12 m + 4 økte = 16 i str L. Etter alle økninger er riktig anntall: 7+69+13+16+13+140+13+16+13+69+7=376 i str L. Det var også noe lenger fremme, men husker nå ikke hvor… Der er irriterende med feil i oppskrifter! Man blir usikker og det er jo ikke så kos…

19.11.2023 - 17:39

country flag Kristin Bjerkenås wrote:

I diagram 1 og 2 i denne oppskriften står det at : en svart maske(=beskrivelse av utseende av masken)= ingen maske, gå til neste rute. Hva betyr det? Mvh Kristin

12.10.2023 - 07:55

DROPS Design answered:

Hej, Kristin, du hopper bare videre til næste maske (den sorte rude er den maske du tog ud med omslag og skal først strikkes på næste pind)

17.10.2023 - 14:00

country flag Nelly Lafon wrote:

Bonjour,\r\nCeci concerne la taille XL\r\nDans le paragraphe tricoter ainsi dur l\'endroit pour le dos et les devants erreur dans la 1ère section aug dans les 12m jersey 4aug ce qui donne 16m et non 14m\r\nen ce qui concerne les aug avant les cotes je n\'ai aug que 18m et non 20 dans chaque devant sinon le résultat n\'allait pas\r\nbonne journée merci pour tous vos modèles

26.09.2023 - 10:24

country flag Maaike Aarts wrote:

Bij het breien van het patroon klopt volgens mij niet de boord heb ik gebreid dan naar de pas met het verdelen van de steken voor de steken bij de pas hoe ik steken over de pas geeft aan 120 steken en na de boord brijen hou ik 168 over waar blij dan de overige steken dan dat zijn 40 steken die ik over hou ik hoop dat u mij een uitleg kan geven groetjes maaik aarts

19.09.2023 - 09:38

DROPS Design answered:

Dag Maaike,

Helaas begrijp ik je vraag niet helemaal. Houd je 40 steken over op de naald nadat je de pas in zijn geheel hebt gebreid? Welke maat ben je aan het breien?

05.10.2023 - 06:27

country flag Lorrette wrote:

I was asking about the rib at the end of the body, it doesn't specify to change the neddle size. Not the rib at the begining. At the end of the body, The rib is worked with 3.5mm or with 2.5 mm? Thank you.

18.09.2023 - 18:02

DROPS Design answered:

Dear Lorette, thanks for noticing, the needle size has now been added, this means you will switch to the circular needle size 2,5 mm. Happy knitting!

19.09.2023 - 10:00

country flag Lorrette wrote:

Hi, i have a question. The body rib îs worked with 3.5 mm needles or 2.5 mm? It doesn't specify and i want to be sure. Thank you

13.09.2023 - 19:02

DROPS Design answered:

Hi Lorette, You cast on and work rib with needle size 2.5 mm. Happy knitting!

14.09.2023 - 06:49

country flag Nelly Lafon wrote:

Bonjour, faut-il vraiment ouvrir la 1ère boutonnière quand les cotes mesurent 2cm ou quand on a tricoté 2 cotes de bordure au pt mousse ? car une fois le col plié en 2 les boutonnières ne sont pas alignées merci d'avance pour votre réponse

12.09.2023 - 12:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lafon, la 1ère boutonnière doit se trouver 2 cm après avoir monté les mailles de la bordure devant. Bon tricot!

12.09.2023 - 17:07