DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Snow Flake Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað frá hlið með köðlum, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 243-31
DROPS Design: Mynstur me-272
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 39, ísblár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-175-200-225 g litur 07, ljós himinblár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 630: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KANTLYKKJA:
Prjónuð er 1 eða 2 kantlykkjur í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er í uppskrift. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.X og A.Y sýna útaukningu fyrir kaðal.

BRÁÐABIRGÐAUPPFIT:
Með því að fitja upp lykkjur með bráðabirgðauppfitjun þá kemur þú til með að fá opnar lykkjur sem sitja á hjálparþræði eða hjálparprjóni, í stað þess að fá stífan uppfitjunarkant. Þegar kantur að framan er prjónaður í lokin, dragið hjálparþráðinn / hjálparprjóninn út og lykkjurnar eru settar á prjón.
Byrjið á að gera lykkju með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk sem haldið er saman (2 þræðir) og setjið þessa lykkju á prjóninn sem þú ætlar að fitja uppá með, síðan er hjálparþræðinum / hjálparprjóninum haldið með þumli og Merino Extra Fine + Kid-Silk með vísifingri. Fitjið upp á venjulegan máta þannig að lykkjurnar liggi utan um hjálparþráðinn / hjálparprjóninn. Haldið hjálparþræði / hjálparprjóni í stykkinu þegar prjónað er áfram. Síðar er hjálparþráðurinn / hjálparprjóninn dreginn út og lykkjurnar eru settar á þann prjón sem kantur að framan er prjónaður með. Sjá e.t.v. myndband með bráðabirgðauppfiti í útskýringu á netinu eða leitaðu í Skýringar og Aðstoð á heimasíðunni okkar.

ÍTÖLSK AFFELLING:
Fellt er af með því að sauma ítalska affellingu með nál. Með þessari aðferð þá fæst teygjanleg affelling. Þráðarendinn sem sauma á með verður að vera minnst 4 sinnum lengri en stykkið sem fella á af.

Byrjið með að læsa fyrstu sléttu lykkjunni þannig: Nálinni er stungið í 1. lykkju eins og prjóna eigi brugðið og herðið að. Ekki sleppa lykkjunni af prjóninum.
Nálinni er stungið frá bakhlið á milli 1. og 2. lykkju þannig að þráðurinn komi að framhlið, dragið þráðinn í gegn, nálinni er stungið inn í 2. lykkju eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn.
Nálinni er stungið inn í 1. lykkju eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn, lyftið síðan 1. lykkju af prjóninum.
Nálinni er stungið inn í 2. lykkju eins og prjóna eigi brugðið, dragið þráðinn í gegn, nálinni er stungið inn í 1. lykkju eins og prjóna eigi brugðið, dragið þráðinn í gegn, lyftið 1. lykkju af prjóni (þráðurinn er núna á bakhlið á stykki).
Frá bakhlið, nálinni er stungið á milli 1. og 2. lykkju, dragið þráðinn í gegn.
Frá framhlið, nálinni er stungið í 2. lykkju eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn, nálinni er stungið í 1. lykkju eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn, lyftið síðan 1. lykkju af prjóni.

Nú byrjar affelling í stroffi.
1: Þegar fella á af brugðna lykkju, saumið þannig: Nálinni er stungið í 2. lykkju (slétt lykkja) eins og prjóna eigi brugðið, dragið þráðinn í gegn, nálinni er stungið í 1. lykkju (brugðin lykkja) eins og prjóna eigi brugðið, dragið þráðinn í gegn, lyftið 1. lykkju af prjóni (þráðurinn er nú á bakhlið á stykki).
2. Þegar fella á af slétta lykkju, saumið þannig:
Frá bakhlið, nálinni er stungið á milli 1. og 2. lykkju, dragið þráðinn í gegn.
Frá framhlið, nálinni er stungið í 2. lykkju (brugðin lykkja) eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn, nálinni er stungið í 1. lykkju eins og prjóna eigi slétt, dragið þráðinn í gegn, lyftið síðan 1. lykkju af prjóni.
Endurtakið útskýringu 1 og 2 þar til allar lykkjur hafa verið felldar af (2 síðustu lykkjur eru felldar af á sama hátt, jafnvel ef það eru 2 lykkjur slétt á eftir hvorri annarri). Dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað samtímis í eitt stórt stykki frá hægri hlið að vinstri hlið á stykki, séð þegar flíkin er mátuð. Smá saman er fellt af fyrir hálsmáli, lykkjur settar á þráð fyrir kant að framan á hægra framstykki, lykkjur fitjaðar upp fyrir kant að framan á vinstra framstykki, lykkjur auknar út fyrir hálsmáli og prjónað er áfram að loknu máli.
Ermar eru prjónaðar í hring, neðan frá og upp. Frágangur á stykki er útskýrður í uppskrift. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp fyrir stroff að neðan, tvöföldum kanti í hálsmáli og fyrir kanta að framan.

HÆGRI HLIÐ Á STYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 169-169-185-185-201-201 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk sem haldið er saman (2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki í 85.-85.-93.-93.-101.-101. lykkju í umferð. Það eru 84-84-92-92-100-100 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki (séð frá réttu) = framstykki og 84-84-92-92-100-100 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki = bakstykki.
Lykkja með prjónamerki merkir mitt á öxl – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 KANTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, 6 lykkjur sléttprjón, A.1, 21-21-21-21-29-29 lykkjur sléttprjón, A.X, A.1, 61-61-77-77-77-77 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr í 31.-31.-39.-39.-39.-39. lykkju), A.1, A.Y, 21-21-21-21-29-29 lykkjur sléttprjón, A.1, 6 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja = 177-177-193-193-209-209 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúið, svo ekki myndist gat).

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja, 6 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2A, prjónið A.2B alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.2C, A.3, A.1, A.2A, prjónið A.2B alls 6-6-8-8-8-8 sinnum, A.2C, A.1, A.4, A.2A, prjónið A.2B alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.2C, A.1, 6 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir þar til A.2 hefur verið prjónað alls 3-3-4-4-5-5 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. það er eftir ein umferð frá röngu).
Í næstu umferð er fellt af fyrir hálsmáli, þ.e.a.s. prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 16 lykkjur yfir öxl (6 lykkjur á undan prjónamerki á bakstykki, lykkja með prjónamerki í og 9 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki í á framstykki), prjónið eins og áður út umferðina. Stykkið mælist ca 19-19-25-25-31-31 cm frá uppfitjunarkanti.
Síðan er hægra framstykki og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 79-79-87-87-95-95 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 3 sinnum = 73-73-81-81-89-89 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.2 hefur verið prjónað alls 4½-4½-5½-5½-6½-6½ sinnum á hæðina frá uppfitjunarkanti, þ.e.a.s. endið eftir 7. umferð í A.2 þannig að rúðurnar lokist í toppi. Setjið síðan 73-73-81-81-89-89 lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Hægra framstykkið mælist ca 27-27-33-33-39-39 cm frá uppfitjunarkanti.

BAKSTYKKI:
= 82-82-90-90-98-98 lykkjur. Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir, fellið af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 80-80-88-88-96-96 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til 3 umferðir eru eftir þar til A.2 hefur verið prjónað alls 6-6-7-7-8-8 sinnum á hæðina frá uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu).
Í næstu umferð (ranga) eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 82-82-90-90-98-98 lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 16 nýjar lykkjur í lok umferðar = 98-98-106-106-114-114 lykkjur. A.2 hefur nú verið prjónað 6-6-7-7-8-8 sinnum á hæðina frá uppfitjunarkanti. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-73-81-81-89-89 lykkjur á hringprjón 5 með BRÁÐABIRGÐAUPPFIT – lesið útskýringu að ofan (eða opin / tímabundið uppfit til að lykkjur í uppfiti haldist opnar meðfram uppfitjunarkanti) með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið til baka frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu): 15-15-23-23-23-23 lykkjur sléttprjón, prjónið eins og 2. umferð í mynsturteikningu í eftirfarandi röð: A.1, A.3, A.2C, prjónið A.2B alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.2A, A.1, 6 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (öll mynstureiningin byrjar nú í 1. umferð, nema frá A.2 sem byrjar í 7. umferð til að mynstrið í A.2 geti byrjað á sama hátt og A.2 endaði á hægra framstykki): Prjónið 1 kantlykkju, 6 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2A, prjónið A.2B alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.2C, A.3, A.1, A.2A, prjónið A.2B út umferðina.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 12 umferðir í A.2. Haldið áfram með mynstur eins og áður og aukið út fyrir hálsmáli með því að fitja upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar frá réttu alls 3 sinnum = 79-79-87-87-95-95 lykkjur. Prjónið síðan til baka frá röngu. Vinstra framstykki á nú að vera lokið á sama stað í A.2 og á bakstykki. Setjið vinstra framstykki saman með bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI HLIÐ Á STYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá vinstra framstykki og haldið áfram eins og áður yfir lykkjur frá bakstykki = 177-177-193-193-209-209 lykkjur.
Prjónið A.2 þar til prjónað hefur verið alls 3-3-4-4-5-5 sinnum á hæðina eftir hálsmáli (alls 9-9-11-11-13-13 sinnum á hæðina eftir uppfitjunarkant í byrjun á stykki). Síðan er prjónuð 1 umferð frá réttu eins og áður þannig að rúðurnar í A.2 lokast í toppi – JAFNFRAMT í þessari umferð fækkar um 2 lykkjur yfir hvern kaðal í A.3 og A.4 með því að prjóna lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 169-169-185-185-201-201 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í 85.-85.-93.-93.-101.-101. lykkju í umferð. Lykkja með prjónamerki í merkir miðju á öxl.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 54-54-66-66-78-78 cm frá uppfitjunarkanti.

STROFF NEÐST Á BAKSTYKKI:
Prjónið upp frá réttu ca 113-113-139-139-163-163 lykkjur innan við 1 kantlykkju á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur – lesið KANTLYKKJA í útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 7 cm. Fellið af með ÍTÖLSK AFFELLING – lesið útskýringu að ofan, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 59-59-64-64-69-69 cm frá prjónamerki á öxl.

STROFF NEÐST Á HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
Prjónið upp frá réttu ca 56-56-70-70-82-82 lykkjur innan við 1 kantlykkju á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (frá miðju að framan): 1 kantlykkja, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjum.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 7 cm. Fellið af á sama hátt og á bakstykki.

STROFF NEÐST Á VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið upp frá réttu jafnmargar lykkjur og á hægra framstykki og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (frá hlið): 2 kantlykkjur, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 7 cm. Fellið af með ítalskri affellingu, en þegar 1. lykkja er læst, farðu beint áfram í útskýringu 1 og 2 og fellið af með þessum hætti þar til allar lykkjur hafa verið felldar af, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur eða brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 62-64-66-68-72-74 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt.
Síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 7 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 11-13-15-9-13-15 lykkjur jafnt yfir = 51-51-51-59-59-59 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð og látið hann fylgja með í stykkinu.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, A.5A, prjónið A.5B alls 5-5-5-6-6-6 sinnum, A.5C, 1 lykkja sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 12-6-4-7-3-3 cm millibili alls 3-5-6-4-6-7 sinnum = 57-61-63-67-71-73 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 43-45-40-41-36-37 cm – fallegast er að enda eftir 2. umferð eða 8. umferð í A.5. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermin á sama hátt.

FRÁGANGUR:‘
Setjið 1 prjónamerki bæði í framstykkið og bakstykkið, ca 18-19-20-21-22-23 cm niður frá prjónamerki á öxl = handvegur (athugið mál efst á sjálfri erminni – breiddin efst á ermi á að passa við lengd á handvegi).
Saumið hliðarsauma innan við affellingarkant / uppfitjunarkant á fram – og bakstykki (garðaprjón á að vera sýnilegt) – byrjið sauminn við botninn á handvegi og saumið niður að stroffi = 7 cm klauf í hvorri hlið.
Saumið ermar í á milli prjónamerkja innan við affellingarkant / uppfitjunarkant á fram- og bakstykki (garðaprjón á að vera sýnilegt).

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið upp frá réttu ca 105 til 115 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 kantlykkju. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 kantlykkja. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir). Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, prjónið upp ca 14 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram stroffi, setjið síðan 73-73-81-81-89-89 lykkjur af þræði / hjálparprjóni yfir á hægra framstykki á prjóninn, prjónið sléttar lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, síðan eru prjónaðar upp ca 14-14-14-14-16-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram kanti í hálsmáli (í gegnum bæði lögin) = ca 107-107-117-117-129-129 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka.
JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir (efsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli kant í hálsmáli og fram- og bakstykki, neðsta hnappagatið er staðsett ca 3-4 cm frá neðri kanti). 1 HNAPPAGAT = sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Prjónið þar til kantur að framan mælist 3½ til 4 cm. Fellið af með ítalskri affellingu, en þegar 1. lykkja er læst, farðu beint áfram í útskýringu 1 og 2 og fellið af með þessum hætti þar til allar lykkjur hafa verið felldar af, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir). Byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki, prjónið upp ca 14-14-14-14-16-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram kanti í hálsmáli (í gegnum bæði lögin), setjið síðan 73-73-81-81-89-89 lykkjur af þræði / hjálparprjóni (frá bráðabirgðauppfiti) yfir á hægra framstykki á prjóninn, prjónið sléttar lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, síðan eru prjónaðar upp ca 14 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram stroffi = ca 107-107-117-117-129-129 lykkjur - stillið af að það séu jafn margar lykkjur og í hægri kanti að framan.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3½ til 4 cm. Fellið af með sama hætti og í hægri kanti að framan.
Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.09.2023
BAKSTYKKI: Lykkjufjöldinn hefur verið leiðréttur í hálsmáli í stærð XL og XXL.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu í næstu umferð (það á að myndast gat)

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið frá röngu í næstu umferð (það á ekki að myndast gat)

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, stingið inn hægri prjóni aftan frá á milli 2 lykkja frá kaðlaprjóni og prjónið vinstri lykkju slétt, ekki lyfta lykkjunni af prjóni, prjónið hægri lykkju slétt þannig að lykkjan liggi þversum yfir hinar 2 lykkjurnar og lyftið báðum lykkjum af kaðlaprjóni
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
symbols = teikning sýnir framstykkið / bakstykkið í prjónstefnu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Jos wrote:

Bonjour, auriez-vous un vidéo qui montre comment faire le 7ième icône. Merci

14.03.2024 - 11:15

DROPS Design answered:

Bonjour Jos, tout à fait, retrouvez-la ici. Bon tricot!

14.03.2024 - 16:32

country flag Kate wrote:

On ne voit jamais de photos du dos de vos modèles . pourquoi ? c est dommage

12.09.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Kate, on ne montre des photos du dos que lorsqu'il a un intérêt particulier, ici, comme souvent, il est tout simplement comme le devant (sans les bordures des devants au milieu bien sûr). Bon tricot!

12.09.2023 - 16:58

country flag Savita Khurana wrote:

Classy cables

07.08.2023 - 03:03

country flag Blue Mist wrote:

Irina Shirley

03.08.2023 - 21:30

country flag Veronique wrote:

Soft winter cardi

03.08.2023 - 16:38