DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Caramel Ridge

Prjónað vesti úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-19
DROPS Design: Mynstur x-493
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-700-750-850-950-1000 g litur 66, toffee

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð (18 sýnilegar umferðir) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2.

ÚTAUKNING (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu!
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Í KLUKKUPRJÓNSLYKKJU INNAN VIÐ 4 LYKKJUR Í GARÐAPRJÓNI Í HVORRI HLIÐ ÞANNIG:
Prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna, þ.e.a.s. prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur.
Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjón með uppslætti.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 105-111-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 71-75-81-89-97-105 lykkjur – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (fram og til baka) – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 7-7-7-9-9-11 lykkjur í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum sem hann tilheyrir og aðrar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni eins og áður).
Á eftir 4 umferðum í garðaprjóni, fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-75-79-87-91 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni.
Þegar prjónaðar hafa verið 20-20-20-16-16-16 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg (10-10-10-8-8-8 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í 20.-20.-20.-16.-16.-16. hverri umferð alls 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 73-77-83-91-99-103 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið og fellið af fyrir hálsmáli. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflana SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram!

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl, í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Setjið 1 lykkju á þráð alls 13 sinnum í hvorri hlið, síðan eru síðustu 13-15-17-21-23-25 lykkjur settar inn á þráðinn (alls 26-28-30-34-36-38 lykkjur á þræði fyrir skáhallandi öxl).

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig (jafnframt því sem skáhallandi öxl heldur áfram eins og áður).
Prjónið eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl.
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af (uppslátturinn er nú felldur af eins og eigin lykkja til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm. Nú eru miðju 9-9-11-11-15-15 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og á bakstykki og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl. Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 5 og fellið af á sama hátt og á bakstykki.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn.
Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – skiljið eftir op ca 6 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 84-84-90-90-106-106 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5.
Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 12-12-12-14-14-14 cm – ATH: Stillið af að stroffið haldi áfram fallega yfir klukkuprjónslykkjurnar mitt að framan.
Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af aðeins laust.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum við hvorn axlasaum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Juliet wrote:

Thank you for your reply 😊

09.04.2024 - 07:57

country flag Juliet wrote:

I don’t understand how to increase in English rib. It says work 3 sts in the knitted stitch, do these 3 stitches include the the 4 outer garter stitches? Or do I start counting 3 sts after completing the 4 outer garter sts?

08.04.2024 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Juliet, the edge stitches you always knit with garter stitch. As for "3 sts in the knitted stitch," it means, that wherever you need to increase (in the English rib) you should knit 3 stitches into one stitch that is knitted (as opposed to purled). I hope this helps. Happy Knitting!

08.04.2024 - 20:39

country flag Bea Palland wrote:

Hallo, Misschien een domme vraag maar ik neem aan dat ik dit patroon ook gewoon met twee breinaalden kan breien i.p.v met de rondbreinaald?

26.02.2024 - 16:54

DROPS Design answered:

Dag Bea,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

28.02.2024 - 20:22

country flag Adrianna wrote:

Hi thank you for your answer. Do you have a video how to do diagonal shoulder and neck for this pattern please? Thank you for your help

07.11.2023 - 23:08

DROPS Design answered:

Dear Adrianna, slip the stitches as for short rows; in this other video, we also show for another pattern how to work a diagonal shoulder - both videos might help you. Happy knitting!

08.11.2023 - 08:23

country flag Adrianna wrote:

Hi, I’m trying to do diagonal shoulders and neck but I can’t finish in 73sts(I’m doing size S) 26sts on 1 site, 17 neck, 26 on 2 site = 69 where are those 4 stitches that we finished armholes? Please help as I’m confused 😬

06.11.2023 - 21:33

DROPS Design answered:

Hi Adriana, The last 4 stitches are cast off on each side of the neck (after casting off the 17 middle stitches), all of which happens while you are still placing stitches on threads for the diagonal shoulders. Hope this helps and happy knitting!

07.11.2023 - 06:50

country flag Lina wrote:

Nydelig!

03.08.2023 - 09:59